Ægir - 01.01.1952, Page 23
Æ G I R
17
farin ár verið athugað náið hvar og hvern-
ig yrðu gerð háfnarmannvirki, er gögnuðu
Söndurum. Verkfræðingum, sem athugað
hafa stæðhætti á þessum slóðum, ber sam-
an um, að eigi komi til greina nema einn
staður og hann hafi meira til síns ágætis
en flestir aðrir, þar sem hafnarmannvirki
hafi verið gerð hérlendis. Þessi staður er
Rif.
Áður er að því vikið, að í Rifi var mikil
veiðistöð fyrrum, en jafnframt var þar ein
helzta verzlunarhöfn landsins í margar
aldir. Má til gamans geta þess, að hún var
vegna fiskafurða talin ein bezta og arð-
gæfasta höfn landsins og fyrir hana var
greidd hærri leiga en nokkra aðra höfn hér
á landi. Kaupförin lentu í svonefndum
Rifsós, en þegar áin Hólmkela breytti um
stefnu, grynnkaði ósinn svo vegna fram-
hurðar, að sigling á þessa höfn lagðist
niður og Ólafsvík kom til skjalanna sem
verzlunarstaður.
Síðan Rif lagðist niður sem verzlunar-
höfn hefur Hólmkela borið fram mikinn
sand og vikur úr jöklinum og ósinn minnk-
að og grynnkað. En með þeim áhöldum,
sem íslendingar ráða nú yfir, er auðvelt að
stækka hann og dýpka. Að ýmsu öðru leyti
eru aðstæður þannig frá náttúrunnar
hendi, að tiltölulega ódýrt er að gera þarna
höfn. Garður sá, sem hlíft getur höfninni
fyrir hafáttarsjó yrði allur gerður á svo-
nefndu Rifi og er þvi undirstaða hans til.
Um nokkur ár hefur verið um það rætt
að leysa hafnarvandkvæðin á útnesinu með
þvi að gera höfn í Rifi. Svo skanmit er
ttiilli Rifs og Hjallasands, að ekki er tor-
veldara með flutning á milli þessara staða
en t. d. Reykjavíkurhafnar og Kirkjusands.
Vegalengdin til Ólafsvíkur er heldur ekki
Það mikil, að hún komi í veg fyrir það, að
sá staður geti einnig notað Rifshöfn. Hins
Vegar er mikill farartálmi á þeirri leið, þar
sem er Ólafsvíkurenni, er gengur þverhnipt
1 sjó fram. Að dómi verkfræðinga er vegur
framan í Enninu vel gerlegur, en sjálfsagt
yi'ði sú vegagerð nokkuð kostnaðarsöm. Af
þeim sökum mætti því vel fara svo, að Óls-
arar hefðu ekki jafnskjótt gagn af Rifshöfn
sem Sandarar. Það er því ekki óeðlilgt, að
Ólafsvíkurhöfn yrði löguð til bráðabirgða
svo að viðráðanlegra yrði en nú er að gera
þaðan út hæfilega stóra fiskibáta.
Af hafnarhugmynd í Rifi er það að segja,
að á Alþingi 1950 voru samþykkt lög um
landshöfn á þeim stað, og á sama þingi var
samþ. V2 milljón kr. fjárveiting til þeirrar
hafnar. Á fjárlögum fyrir þetta ár er jafn-
há upphæð lil Rifshafnar.
Samkvæmt upplýsingum Emils Jónsson-
ar vitamálastjóra er áætlað, að fyrsti áfangi
Rifshafnar kosti 5% milljón krónur. Á
lcorti því, sem hér er birt, má sjá, hvernig
höfnin lítur út, eftir að lokið hefur verið
við hann. Norðurgarður, sá er gerður verð-
ur á Rifinu, er 800 m langur, en suður-
garður 200 m. Dýpi í höfninni verður sama
og í Reykjavíkurhöfn. Við stærri hafnar-
bakkann geta skip Eimskipafélagsins lagzt.
Dýpkun þessa hluta hafnarinnar er áælluð
kosta eina milljón krónur, en hafnarbakk-
inn með viðleguplássi röskar tvær millj-
ónir. Þá er og innifalið í þessari 5% milljón
kr. áætlun vatnsveita fyrir 200 þús. kr. og
verbúð fyrir 300 þús. kr. Ánni Hólmkelu
hefur nýlega verið veitt í nýjan farveg og
rennur nú til sjávar í gegnum innanverðan
Harðakamb.
Sú fjárhæð, sem til ráðstöfunar var sið-
astl. ár, var öll notuð. Unnið var að vega-
gerð, komið upp íbúðarbragga og lokið við
100 m af norðurgarði.
Talið er, að áður en fiskibátar geti farið
að hafa not af Rifshöfn, þurfi að vinna þar
fyrir 3 millj. kr. Liggur til þess sú ástæða,
að dýpkun hafnarinnar getur ekki farið
fram fyrr en hafnargarðarnir eru full-
gerðir. Það er því ljóst, að ef framlög til
hafnarinnar verða næstu ár látin haldast í
því horfi scm nú er, að mikill dráttur verð-
ur á, að hún geti orðið nothæf.
Þegar það er haft í huga, að samhljóða
álit fagmanna hnigur að því, að þarna sé
hægt að gera góða höfn og ódýra, að inikil