Ægir - 01.01.1952, Síða 25
Æ G I R
19
Manntjón og skipsskaðar.
Ofviárið 5. janúar.
Nóttina 4. og 5. janúar skall á ofsaveÖur
af austri og suðaustri og olli manntjóni
og miklum sköðum á sjó og landi. Að
kvöldi þess 4. reru sex bátar úr verstöðv-
uin við Faxaflóa, einn úr Keflavik, einn
úr Reykjavík og fjórir frá Akranesi.
Laugardagskvöldið 5. janúar voru ókomnir
að landi vélbátarnir Valur og Sigrún frá
Akranesi. Við Sigrúnu hafði verið haft tal-
samband fram til kl. 10 um morguninn,
en ekki úr því og talsambandið við Val
slitnaði að fullu kl. hálf þrjú um daginn.
Um fimm leytið sunnudaginn 6. janúar
kom Sigrún til Akraness. Fyrr um daginn
úafði borizt fregn um það til Akraness frá
varðskipinu Þór, að Sigrún væri á leið til
lands í fylgd með varðskipinu. Hafði bát-
urinn hreppt foraðsveður og stórsjói, svo
að mjótt var á munum, að hann fengi
haldizt ofan sjávar. Brotnaði báturinn
uiikið ofan þilja, t. d. tók af borðstokk
°ðru megin aftan frá skut og fram fyrir
L'emri stagfestingu, rúður allar í stýris-
húsi brotnuðu og siglingaljós öll tók af.
Eftir að þetta hafði gerzt, var bátnum hald-
^ upp í andóf í tuttugu stundir. Hélzt
oveðrið linnulaust allan þann tíma. Um
þessarar greinar, skulu skipaðir fyrir tak-
niorkuð svæði, sem atvinnumálaráðuneyt-
tiltekur. 2) Gegn slíku vottorði og vott-
oi'ði um sundkunnáttu gefur lögreglustjóri
ut skírteini, sem veitir rétt til að vera skip-
stjóri á skipum allt að 15 rúmlestir og stýri-
maður á skipum allt að 30 rúmlestir, eða
skipstjóraskírteini á skipi allt að 30 rúm-
lestir samkvæmt þessari grein.
2) Auglýsing nr, 5 28. janúar 1937.
dagmálaleytið á sunnudag var haldið und-
an veðri í áttina heim. En skömmu eftir
að sú ferð liófst, fékk Sigi'ún á sig mikinn
sjó og tók þá út stýrimanninn Þórð Sig-
urðsson. En með því að hann er hreysti-
menni mikið og syndur vel, tókst honum
að halda sér á floti þangað til skipsfélagar
hans gátu náð til hans. Matarlausir voru
skipverjar frá því á laugardagsmorgni, að
eldfæri fóru úr skorðum og svefnlausir
með öllu frá því að óveðrið hófst og þang-
að til að landi var komið. Var hrakningur
Sigrúnarmanna strangur mjög og langur,
þótt eigi sé hann rakinn nánar hér. Skip-
stjóri á Sigrúnu er Guðmundur Jónsson.
Á sunnudagskvöldið fann leitarflokkur
úr björgunarsveit Borgarness ýmislegt
rekið úr v/b Val vestur á Mýrum. Eigi varð
þó að fullu ráðið af þeim fund, að báturinn
kynni ekki að vera ofansjávar. Að fullu
þótti úr skugga gengið um það á þriðju-
dag, að Valur hefði farizt í ofveðrinu og
með honum sex menn. — Á Val voru þessir
menn:
Sigurður G. Jónsson, skipstjóri, Heiðar-
braut 41 Akranesi, 33 ára. Hann var kvænt-
ur og átti þrjú börn, það elzta sjö ára. Sig-
urður lauk prófi frá stýrimannaskólan-
um síðastl. vor.
Sveinn Traustason, 1. vélstjóri, 23 ára,
ókvæntur.
Ingimundur Traustason, 2. vélstjóri, 18
ára. Þeir voru bræður, báðir búsettir á
Hólmavík.
Brynjólfur Önfjörð Kolbeinsson, mat-
sveinn, 22 ára. Hann var búsettur á ísa-
firði, kvæntur og átti tvö börn ung.
Guðmundur Hansson, háseti, 19 ára, bú-
settur í Reykjavík.
Sævar Sigurjónsson, háseti, 19 ára, bú-
settur á Akranesi.
Hlutafélagið Ásmundur á Akranesi átti