Ægir - 01.01.1952, Qupperneq 37
Æ G I R
31
22. Borgarnes 75 000
23. Grafarnes 75 000
24. Borgarfjörður eystri 70 000
25. Bakkafjörður 65 000
26. Bolungavík 260 000
27. Hofsós 60 000
28. Ólafsvík 60 000
29. Fáskrúðsfjörður 50 000
30. Stokksevri 50 000
31. Tálknafjörður 50 000
32. Vopnafjörður 50 000
33. Neskaupstaður 40 000
34. Svalbarðseyri 30 000
35. Hafnir 25 000
36. Haganesvik 25 000
37. Járngerðarstaðir 25 000
38. Kaldrananes 25 000
39. Breiðdalsvik 25 000
40. Eyrarbakki 25 000
41. Grenivík 20 000
42. Blönduós 15 000
43. Drangsnes 15 000
44. Flatey á Skjálfanda 15 000
45. Grímsey 15 000
46. Hnífsdalur 15 000
47. Hrísey 15 000
48. Suðureyri 15 000
49. Hvammstangi 15 000
50. Flatey á Breiðafirði 10 000
51. Súðavík 10 000
52. Hellnar 10 000
53. Landshöfnin á Rifi á Snæfells-
nesi 500 000
Samtals 5 145 000
Til hafnarbótasjóðs samkvæmt
lögum 1 430 000
Til ferjuhafna:
1. í Hornafirði 200 000
2. í Ögri 65 000
3. Á Brjánslæk 155 000
Samtals 420 000
Gömlu togararnir.
Gömlu togararnir eru nú ýmist seldir úr
landi til niðurrifs eða þeir eru teknir til
gegngerðrar viðgerðar og sett í þá olíukynd-
ingartæki.
Belgaum var í fyrra seldur til Höfða-
kaupstaðar. Fór fram á honum mikil við-
gerð jafnframt því, sem sett voru í hann
oiíukyndingartæki. Fyrir áramót var skipið
tilbúið til veiða og var nú skírt Höfðaborg.
Brátt kom i ljós, að skipið eyddi miklu
meiri oliu með hinum nýju tælcjum en
eðlilegt gat talizt. Hefur útgerð skipsins nú
verið hætt í bili og liggur það nú bundið
í Reykjavíkurhöfn.
Togarinn „Júpiter“ var seldur til Þing-
eyrar. Stálsmiðjan og vélsmiðjan Héðinn
tóku að sér að gera endurbætur á skipinu.
Kolaboxin voru tekin burt, en í stað þeirra
sett olíugeymar og olíukyndingartæki. Skip-
ið var styrkt, sett í það ný skilrúm og plöt-
ur. Fóru alls um 20 smál. af stáli í þessar
viðgerðir. Af öðrum viðgerðum og breyt-
ingum má nefna, að í nokkrum hluta af
skipstjóraherbergi var gerður klefi fyrir
loftskeytatæki og loftskeytamann. í efri
hluta brúarinnar fyrir aftan stýrishúsið var
gerður kortaklefi. Dekk var sett af nýju
efni, reykháfur lækkaður og aftursigla og
raflagnir endurnýjaðar. Ný lifrarbræðslu-
tæki af sömu gerð og eru í nýsköpunartog-
urunum voru sett í skipið. Júpíter er með
þeim stærstu af eldri togurunum, 394 rúml.
brúttó, smíðaður í Englandi 1925 fyrir Þór-
arinn Olgeirsson, en keyptur hingað til
lands af Tryggva Ófeigssyni.
Júpíter hefur nú verið skírður upp og
heitir nú Guðmundur Júní eftir hinum ný-
látna aflamanni og sjósóknara Guðmundi
Júní Ásgeirssyni. Togarinn Guðmundur
Júní lagði af stað til heimahafnar 21. fe-
brúar og er nú kominn úr fyrstu veiðiferð-
inni, þegar þetta er ritað. Skipstjóri á tog-
ara Þingeyringa er Sæmundur Jóhannes-
Framhald á blaðsiðu 37.