Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1952, Side 52

Ægir - 01.01.1952, Side 52
46 Æ G I R „Ægir“, mánaðarrit Fiskifélags Islands, flytur margs konar fróðleik um útgerð og siglingar ásamt fjölda mynda. — Argangurinn er um 300 bls. og kostar kr. 25.00. — Gjalddagi er 1. júli. Afgreiðslusími er 80500. — Pósthólf 81. Ritstjóri: Lúðvík Kristjánsson. Prentað í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg. Heimildargrein fjárlaganna. í 22. gr. fjárlaga fyrir árið 1952 er ríkis- stjórninni m. a. veitt heimild: Að verja í samráði við vitamálastjóra fé til að ljúka viðgcrð á brimbrjótnum í Bol- ungarvík vegna skemmda, er urðu á mann- virkinu 10. dcs. 1950. Að greiða bafnarsjóði Húsavíkur vegna sainnings við Síldarverksmiðjur ríkisins allt að 240 þús. kr. Að greiða að fullu kostnað við viðgerðir skemmda, sem urðu á hafnargarðinum i Dalvík haustið 1950. Að ábyrgjast allt að 2 milljónum króna til að fullgera hraðfrystihús, sem hefur ver- ið ætlað stofnlán úr stofnlánadeild sjávar- útvegsins, en ekki hafa fengið þessi lán vegna fjárskorts stofnlánadeildarinnar. Að ábyrgjast lán, allt að 1.6 millj. kr., fyrir fiskiðjuver ríkisins. Að ábyrgjast lán, allt að sex milljónum króna, til byggingar hraðfrystihúsa og fiskmjölsverksmiðja. Að ábyrgjast fyrir h/f Skipanaust vegna dráttarbrautar og skipasmíðastöðvur allt að 6 millj. króna lán. Að gefa eftir að einhverju leyti aðstoðar- lán úr ríkissjóði, sem veitt voru á árunum 1945—1949 til síldarútvegsmanna, er ekki hafa notið eftirgjafar samkvæmt lögum nr. 120 1950. Að endurgreiða og gefa eftir aðflutnings- gjöld af fiskiskipum, innfluttum eftir síð- ustu styrjöld. Síldar- og fiskimjölsverksmiðjur. í Hornafirði hefur verið reist fiskmjöls- verksmiðja, sem er eign „Fiskiðjan h/f“, en að því félagi standa hreppurinn, Kaup- félag Austur-Skaftfellinga og ýmsir ein- staklingar. Verksmiðja félagsins tók til starfa í janúar. í ráði er, að félag þetta konú einnig upp hraðfrystihúsi. Fisk- og beinamjölsverksmiðjan á Eski- firði hefur verið stækkuð mikið og endur- hætt, svo að hún getur nú unnið úr síld og karfa. Vélar verksmiðjunnar voru reynd- ar um miðjan febrúar. Kaupfélagið á Fáskrúðsfirði hefur látið reisa nýja síldar- og fiskmjölsverksmiðju, sem það mun starfrækja í sambandi við frystihús sitt. Byrjað var á verksmiðjunni í júnímánuði síðastl. sumar, en verk- smiðjuhúsið er 35X11-5 m að flatarmáli. Geymsluþrær rúma um 450 smál. Gert er ráð fyrir, að verksmiðjan geti unnið úr 40 smál. á sólarhring af karfa og öðru slíku hráefni, en 600—900 málum af síld. FuII- búin mun verksmiðjan kosta 1.5—2 millj- ónir lcróna. Verksmiðjan hóf að vinna fisk- úrgang um miðjan febrúar. Hraðfrystihús Grundarfjarðar byrjaði að láta reisa fiskmjölsverksmiðju síðastl. haust og er gert ráð fyrir, að hún geti tekið til starfa seint í marzmánuði. Þessi verksmiðja getur ekki unnið úr feitfiski. Loks er þess að geta, að Þingeyringar hafa komið upp myndarlegri feitfiskverk- smiðju í sambandi við hina nýju togaraút- gerð sína. Að endurgreiða hafnarsjóði Þorláks- hafnar kostnað af lagningu Þorlákshafnar- vegar, kr. 262 851.81, á næstu þremur ár- um með jöfnum afborgunum.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.