Ægir - 15.12.1955, Blaðsíða 6
324
ÆGIR
Sveinti Benediktsson:
SÍLDARVERKSMIÐJUR RÍKISINS 25 ÁRA
I•æitir úr síldveiðisögu tslendinga
Hinn 19. júlí s.I. var liðinn aldarfjórðungur frá
því Síldarverksmiðjur ríkisins hófu starfsemi sína
á Siglufirði.
Yfirlit það eftir Svein Benediktsson, núver-
andi formann stjórnar Síldarverksmiðja ríkisms,
sem hér fer á eftir og fjallar um sögu síldveiða
hér við land og þróun Síldarverksmiðja ríkisins,
er að meginhluta erindi, er Sveinn flutti á Siglu-
firði í tilefni afmælisins.
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa um langt skeið
verið stærsta atvinnufyrirtæki í landinu og haft
ómetanlega þýðingu fyrir síldveiðarnar. Eru þetta
merkileg tímamót í sögu verksmiðjanna og hefur
Ægir því farið þess á leit við Svein að fá yfirlit
þetta til birtingar. Ritstj.
Hinn 19. júlí 1930 hófu Síldarverk-
smiðjur ríkisins starfsemi sína. Þann dag
fyrir 25 árum var tekið á móti fyrstu síld-
inni í fyrstu verksmiðju Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði.
Þykir rétt að minnast þessa viðburðar
með því að rekja nokkra þætti í síldveiði-
sögu íslendinga og sögu verksmiðjanna.
Litlar sögur fara af síldveiði Islendinga
á fyrri öldum, enda mun síldveiði ekki hafa
verið stunduð hér við land fram á síðari
hluta nítjándu aldar nema lítið eitt með
ádráttarnetjum á einstaka stað, aðallega
við Eyjafjörð og í Hafnarfirði.
Örnefnið „Síldarmannagata" er nefnt í
Harðarsögu, og er leið úr Hvalfjarðar-
botni í Skorradal ofanverðan enn nefnd
því nafni.
„Síldargarðar" er örnefni í Grafarvogi,
sem bendir á, að þar hafi síld verið veidd
með því að girða fyrir hana að nokkru
leyti með grjótgörðum, og girða síldina
þannig inni og ná henni svo með útfallinu.
Þessi veiði var svo lítil og stopul, að hún
hafði litla sem enga þýðingu fyrir afkomu
landsmanna.
Sveinn Benediktsson.
í „Lítilli fiskibók“ segir Jón Sigurðsson
árið 1859:
„Skoðum vér fyrst tegundir fiskjarins,
sem veiddur er, þá er það helzt þorskveið-
in, sem menn leggja alúð við, en þó síldin
sé í stöppu bæði djúpt og grunnt, þá er
henni lítill sem enginn gaumur gefinn“.
„Síldin er sú fisktegund, sem á öllum
öldum hefur verið hin mesta auðsupp-
spretta fyrir löndin“.
Forsetinn hvatti landa sína til að hefj-
ast handa um síldveiði, að dæmi annarra
þjóða, en sökum deyfðar, vankunnáttu og