Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 7
RIT FIS KIFÉLAGS ÍSLANDS
6 7. ÁRG. 21.-22.TBL. 15. DES. 1 974
Sjómannaalmanakið 50 ára
EFNISYFIRLIT:
Sjómannaalmanakið
50 ára 381
Lúðvík Kristjánsson:
Sjóslysaárin miklu 382
Útg'erð og aflabrögð 388
Fiskaflinn í júlí
og jan.-júní 1974 og 1973 392
Fiskaflinn í júní
og jan.-júlí 1974 og 1973 394
Frá 33. Fiskiþingi:
Úr skýrslu
fiskimálastjóra 396
Helztu ályktanir
Fiskiþings 402
ÆGIR óskar lesendum sínum
gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
ÚTGEFANDi:
FISKIFÉLAG (SLANDS
HÖFN, INGÓLFSSTRÆTI
SÍMI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELÍSSON (ábm.)
JÓNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GÍSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
(SAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
750 KR
ÁRGANGURINN
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Sjómannaalmanak Fiskifé-
lags íslands kom út í fimmtug-
asta skipti nú um miðjan des-
ember s. 1.
Skýrslur um báta- og skipa-
eign okkar Islendinga eru
strjálar um aldimar. Árið
1770 tók Ólafur amtmaður
Stephensen saman skýrslu um
bátaeign landsmanna, og hún
var þá 2 tólfæringar, 10 tein-
æringar, 386 sexæringar, 223
fimm manna för, 278 fjögra
manna för, 41 þriggja manna
far, 694 tveggja manna för og
5 eins manns kænur, samtals
1859 bátar.
Skýrslur um bátaeign
landsmanna er að finna í bún-
aðarskýrslum 1853—1879 og
þar lítið til þeirra vandað. Frá
1879 til 1899 eru þó enn strjá-
ari heimildimar og óábyggi-
legri eða þar til bátaeign er
tekin upp í landhagsskýrsl-
urnar en lítið þótti fyrst einn-
ig á þeim byggjandi.
1914 hóf stjómamáðið að
gefa út „Almanak handa ís-
lenzkum fiskimönnum". Guð-
brandur Jónsson, prófessor
segir svo í riti sínu „Fiskifé-
lag íslands 1911—1936“ um
aðdraganda þess, að Fiskifé-
lagið hóf að gefa út sjómanna-
almanakið: „Á Fiskiþingi 1925
hafði nefnd ein kvartað und-
an fráganginum á fiskimanna-
almanaki því, sem stjórnar-
ráðið hafði gefið út að und-
anfömu, og var sú umkvört-
un vafalaust á rökum byggð,
bæði að ritið væri ónákvæmt
og frágangur þess að öðru
leyti óheppilegur. Taldi nefnd-
in, að það bæri að ná þeirri
útgáfu undir Fiskifélagið sem
mundi ganga betur frá henni
og mundi þá mega vænta auk-
ins styrks úr ríkissjóði. Nefnd-
inni varð að ósk sinni, því að
stjórnarráðið hefir siðan 1926
látið Fiskifélagið standa
straum af útgáfunni og sú spá
hefur rætzt, að frágangur hef-
ur batnað, en síðari spáin (þ.
e. um styrk) síðar.“ Fram
skal tekið, að um árabil hefur
Fiskifélagið einskis styrks
notið til þessarar útgáfu. Þeir
Fiskifélagsmenn, sem hafa
haft útgáfuna mest með hönd-
um og annast ritstjórnina eru
þessir: Sveinbjöm Egilsson,
ritstjóri Ægis fyrstu árin og
ásamt honum Arnór Guð-
mundsson, skrifstofustjóri,
sem síðar annaðist ritstjórn-
ina einn um árabil. 1961 tók
Þórarinn Árnason, nú fram-
kvæmdastjóri Aflatrygginga-
sjóðs við ritstjórn almanaks-
ins og af honum, eða frá 1970,
Guðmundur Ingimarsson, full-
trúi.
Ýmsir hafa jafnan lagt
hönd að útgáfu almanaksins
árlega, einkum trúnaðarmenn
Fiskifélagsins og forstöðu-
menn ýmissa stofnana,