Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 34

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 34
lands fái sæti í veiðimálanefnd samkvæmt tilnefningu félagsins. Fiskiþing harmar, að breytingatillögur þær, sem síðasta Fiskiþing samþykkti einróma við frumvarp til laga um fiskeldi í sjó, hafa ekki verið teknar til greina við afgreiðslu frumvarpsins á Alþingi enn sem kiomið er. Tillögur Fiskiþings 1972 í þessu efni voru svohljóðandi: „Til meðferðar var tekið bréf sjávarútvegs- nefndar neðri deildar Alþingis, dags 15/2 s. 1., þar sem óskað er umsagnar Fiskifélags ís- lands um frumvarp til laga um fiskeldi í sjó, sem lagt hefur verið fyrir Alþingi á 92. lög- gjafarþingi 1971—1972. Stjórn FiFskifélagsins lagði þetta bréf fyrir 31. Fiskiþing, sem nú situr. Laga- og félags- málanefnd, sem fengið hefur málið til með- ferðar, hefur yfirfarið frumvarpið grein fyrir grein. Er það álit nefndarinnar, eftir vandlega at- hugun, að frumvarp þetta sé þannig úr garði gert, að það muni hindra, ef að lögum verð- ur, að einstaklingar eða félagssamtök hefji fjárfrekar aðgerðir til þess að reisa fiskeldis- og klakstöðvar við eða í sjó. Hinsvegar er brýn nauðsyn á, að einstakl- ingar og félög sjái sér fært að leggja út í slíkar framkvæmdir, en vegna margvíslegra takmarkana, sem fram koma í frumvarpinu, virðist þessi starfsemi vera útilokuð nema á vegum ríkisins. Leggur nefndin því til, að áðurnefndu frum- varpi verði gjörbreytt með tilliti til þess, sem að framan er sagt.“ Þar sem Fiskiþing telur brýna nauðsyn bera til þess að einstaklingar og félög hefji að- gerðir til þess að reisa fiskeldis- og klak- stöðvar við eða í sjó, skorar Fiskiþing á Fiski- félagið að gera það sem því er unnt til þess að tillögur Fiskiþings 1972 um fiskeldi í sjó nái fram að ganga við afgreiðslu málsins á Al- þingi. Fiskiþing lýsir ánægju sinni með tilraunir þær, sem Ingimar Jóhannsson, vatnalíffræð- ingur, hefur gert um laxeldi í sjó með atbeina Fiskifélagsins. Telur þingið, að Fiskifélagið eigi að gera það sem því er unnt til þess að tryggja, að Ingimar geti haldið áfram þessum stórmerku tilraunum og hindra að þær stöðv- ist vegna fjárskorts." Fiskifélagsins. Telur þingið, að Fiskifélagið núverandi sjávarútvegsráðherra Matthías 408 — Æ GIR Bjarnason hefur beitt sér fyrir því að auka fjárveitinguna til Fiskifélagsins í því skyni, að sérfræðingur verði fastráðin, sem ráðu- nautur félagsins í fiskiræktarmálum. Fiskileit og hafrannsóknir. 33. Fiskiþing telur, að hraða beri sem mest leit og rannsóknum á hinum ýmsu tegundum skeldýra og smáfiska, svo nokkur vissa fáist um magn þeirra og vaxtarhraða. Einnig telur þingið, að athuga þurfi hvort hægt sé og hagkvæmt að veiða aðrar ónýtt- ar fisktegundir á djúpmiðum til vinnslu. Vill þingið fela stjórn Fiskifélagsins og fiskimála- stjóra, að fylgjast vel með þessum athugun- um, og ýta á eftir framkvæmdum. Greinargerð. Nefndarmenn áttu tal við Hrafnkel Ei- ríksson fiskifræðing, og upplýsti hann, að stöð- ugt væri unnið að leit og athugunum á skel og fisktegundum, með hagnýtingu fyrir augum, en of hægt gengi vegna skorts á fjármagni. Taldi hann, að áfram yrði haldið leit að rækju og fljótlega yrði aukin athugun á magni kú- fisks. Þá sagði hann, að unnið hefði verið að undirbúningi á athugun kræklings í Hvalfirði. Vegna þess, að leit og athugun á hinum ýmsu tegundum geta ekki farið fram nema stuttan tíma í senn, geti verið hyggilegra að taka báta og minni tæki, ef hægt er, á leigu fremur en kaupa. Samgöngur milli Vestmannaeyja og Þorláksliafnar. Með tilliti til þeirra miklu hafnarfram- kvæmda, sem fyrir dyrum standa í Þorláks- höfn, svo og þess að nú er ákveðið um kaup á skipi, sem halda á uppi reglubundnum áætl- unarferðum milli Vestmannaeyja og Þorláks- hafnar, vill 33. Fiskiþing skora á Hafnarmála- stjórn, að sjá svo um að við komu skipsins verði til staðar viðhlítandi aðstaða, fyrir það, bæði í Vestmannaeyjum og í Þorlákshöfn. Þingið lítur svo á að hér sé um mjög brýnt mál að ræða varðandi uppbyggingu Vest- mannaeyja. flmlsbókasafnid á /ikureyri

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.