Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 24

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 24
Þá hefur félagið haft með að gera ýmsar greiðslur til sjávarútvegsins fyrir hönd ríkis- sjóðs, einkum í samráði við sjávarútvegsráðu- neytið. í þessu sambandi er aðallega um að ræða uppbætur á línuveiddan fisk og reksturs- styrki til togara. 1972 1973 millj. kr. millj. kr. Uppbætur á línufisk 17.5 18.4 Framlag til togara 65.0 65.0 Búið er að greiða um 12 millj. kr. það sem af er þessu ári til línubáta. Endurgreiðsla á launum og launakostnaði togarasjómanna samkvæmt lögum nr. 6/1973, sem Fiskifélagið annaðist, námu samtals 21.2 millj. króna. Að síðustu má geta þess, að Fiskifélagið sá um greiðslur á framlagi til skuttogara vegna tapreksturs þeirra og hafa verið greiddar í samræmi við úthald 1974 102 millj. kr. Einnig sá félagið um greiðslur á olíustyrk til skipa, sem stunduðu síldveiðar i Norðursjó s. 1. sum- ar að upphæð 19.5 millj. króna. Fiskræktardeild. Félagið hefur haldið áfram tilraunum sín- um með eldi fisks í söltu vatni, þó að af mikl- um vanefnum hafi verið. Aðstaða sú sem félagið hefur í Höfnum lofar mjög góðu og virðist hin hagstæðasta. Skýrsla um starfsemi deildarinnar liggur fyrir þinginu og mun ég því ekki fjölyrða þar um. Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur beitt sér fyrir því, að fiskeldisfræðingur verði fastráðinn sem ráðunautur félagsins í fiskræktarmálum, þannig að telja verður að vænkast hafi verulega hagur okkar í þessu efni. Ég tel að tilraunir félagsins, svo og athug- anir sem innlendir og erlendir sérfræðingar hafa gert á aðstöðu hérlendis til fiskeldis í sjó, sýni, svio að ekki verður um villst, að góðir möguleikar eru víða fyrir hendi. Fyrir lax virðist einkum S. V. land koma til greina, svo og þeir staðir aðrir þar sem jarðvarmi er fyrir hendi. Fyrir bleikju, sem er harðgerari fisktegund koma fleiri staðir til greina. Næstu skrefin í þessu efni hljóta að vera að kanna aðstöðu til fiskræktar sem víðast, m. a. með sumareldi í huga. Sérfræðingur frá FAO dvaldist hér á landi á vegum Fiskifélagsins um eins mánaðar skeið fyrr á þessu hausti. Liggur útdráttur úr skýrslu hans um aðstæður hér á landi til fiskræktar í sjó fyrir þinginu. Von er bráð- lega á tveimur öðrum erlendum sérfræðingum. Er sérgrein annars fisksjúkdómar, en hins fóður- og næringarfræði. Dveljast þeir hér á vegum Fiskifélagsins, og munu starfa með ís- lenzkum sérfræðingum. Því miður hafa deilur vaknað um það, hver eigi að sinna tilraunum á fiskeldi í sjó. Hafa þessar deilur m. a. valdið því, að hingað til hefur reynzt erfitt að afla styrks til fram- gangs þessa máls. Hefur það aftur á móti tafið tilraunirnar verulega og valdið okkur tjóni. Hér er um að ræða deilur um keisarans skegg, sem ekki eru þeim til sóma, sem hafa vakið þær. Fiskifélagið gerðist brautryðjandi á þessu sviði, sem mörgum öðrum, og er eðlilegt að það hafi veg og vanda af að koma málunum farsællega í höfn. Óumdeilanlegt er samt, að hér þarf að koma til samvinna margra aðila, ef vel á að vera. Kanna þarf og fylgjast með umhverfisþátt- unum. Getur Hafrannsóknastofnunin veitt að- stoð í þeim efnum. Góð samvinna hefur þegar tekizt við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins um ýmis næringarfræðileg efni, svo og við ýmsa einstaklinga og félög sem starfa að fisk- rækt. Æskilegt er að samvinna takizt við Veiðimálastofnunina. Þá er nauðsynlegt að hafa náið samstarf og samráð við þá aðila, sem sinna þessum til- raunum erlendis. Má raunar segja, að slík samvinna sé þegar komin á við ýmsa slíka aðila. Tæknideild. Ég þarf heldur ekki að rekja ítarlega störf Tæknideildar, þar sem skýrsla starfsmanna liggur fyrir þinginu. Aðalverksvið deildarinnar hefur verið að vera einstökum útvegsmönnum og Fiskveiða- sjóði íslands til ráðgjafar. Er þetta mikið starf og meira en svo, að þeir tveir verk- fræðingar, sem hjá deildinni starfa, geti ann- að líka öðrum aðkallandi störfum, svo sem tækjaprófunum fyrir útveginn og úttekt á ný- smíðum og endursmíðum skipa. Er mjög brýnt, að unnt verði að taka upp þessa starf- 398 — Æ GI R

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.