Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 30

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 30
þessari stofnun verði sett stjórn eða ráð- gjafanefnd. 2. 33. Fiskiþing ályktar, að í stað heimildar í núgildandi hafnarlögum verði ríkis- sjóði gert skylt að greiða 90% af þeim kostnaði, sem leiðir af hafnarfram- kvæmdum í hinum einstöku byggðar- lögum landsins, og telur mikla nauðsyn á, að aukið verði að mun frá því sem nú er, það fjármagn sem ætlað er til hafn- arframkvæmda á fjárlögum ríkisins. 3. 33. Fiskiþing beinir því til stjórnar Fiski- félagsins, að hún hlutist til um það við Hafnarmálastofnunina, að svo fljótt sem auðið er, verði hafist handa um rann- sóknir í straumstöð Orkustofnunar- innar varðandi hugsanlegar úrbætur við innsiglinguna að Hornafjarðarós, og ann- arra staða er búa við svipaðar aðstæður. 4. 33. Fiskiþing telur brýna nauðsyn bera til þess, að úrbætur verði gerðar, svo fljótt sem verða má í þeim höfnum, þar sem skip falla úr tryggingu ef stöðva þarf aðalvél skipsins, og bendir í því sambandi á Landshöfnina í Njarðvík. 5. 33. Fiskiþing telur eðlilegt að hafnar- stjórn á hverjum stað, sem kunnari er öllum staðháttum, fái meiri umráð yfir hafnarframkvæmdum, svo sem að bjóða út verk og ráða verkfræðing til þeirra starfa. Lánamál. 1. 33. Fiskiþing vill vekja athygli á hve lánakjör Fiskveiðasjóðs til báta- og skipakaupa, svo og fiskvinnslustöðva stefna að því að verða lántakendum óbærileg. Fiskiþing telur, að eins og rekstur- staða Fiskveiða og fiskvinnslu er, þá muni frekari uppbyggingu fiskveiðiflot- ans og fiskvinnslufyrirtækja stöðvast, ef lánakjör aðalfjárfestingarsjóðs þess- ara greina verði ekki bætt. Hraði verðbólgu í þjóðfélaginu er með þeim hætti, að Fiskiþing telur með öllu óeðlilegt að Fiskveiðasjóður sé fjár- magnaður með fé, sem bætt sé verðbót- um samkvæmt vísitölu byggingakostn- aðar og jafnframt séu vextir lána háir. Fiskiþing ályktar ennfremur að unnið verði með víðtækari hætti að fjáröflun fyrir Fiskveiðasjóð en verið hefir, og á þann veg að lánakjör séu fiskveiðum og fiskvinnslu viðráðanleg. 2. Fiskiþing telur nauðsyn á að Fiskveiða- sjóður láni allt að 60% af vátryggingar- mati eldri skipa, ef um endurbyggingu eða sölu skipanna er að ræða, enda standi 1. veðréttur í skipinu láninu til trygg- ingar. Augljóst er að á meðan lánamöguleik- ar til minni skipa eru það rúmir eins og nú er, er frekar ráðist í nýbyggingar minni skipa. Þetta leiðir af sér að eldri bátar falla úr notkun fyrr en eðlilegt er. 3. Fiskiþing vill benda á, að þar sem til stendur að auka mjög fjármagn Byggða- sjóðs, með því að verja til hans upphæð er nemi 2% af útgjöldum ríkissjóðs, tel- ur þingið, að allir landshlutar eigi að hafa sama rétt til lána úr sjóðnum. Öryggismál. 33. Fiskiþing ítrekar samþykktir síðasta Fiskiþings um öryggismál, jafnframt því sem það lýsir yfir fullum stuðningi við framkomnar tillögur Sjómannasambands íslands í öryggis- málum, en þær tillögur hafa verið kynntar þingfulltrúum. Til viðbótar því sem nú hefur verið rakið, vill 33. Fiskiþing leggja til eftir- farandi: 1. Að aukin verði fræðsla á meðferð og notkun gúmbáta. 2. Að tekin verði upp kennsla í notkun slökkvitækja. 3. Að hefja áróður fyrir því að björgunar- og brunaæfingar séu haldnar. 4. Að látin verði fara fram athugun á því hvort koma megi fyrir stoppara á spil í rækjubátum af svipaðri gerð og notað er við neta- og línuspil. 5. Að hefja áróður fyrir notkun björgun- arvesta, sem eru þannig útbúin að þau blásist upp með skjótum hætti, eða einu handtaki, og lögskipa notkun slíkra vesta á smábátum. 6. Að kanna hvort ekki sé eðlilegt að koma á og fá lögskipaða notkun sjálfvirkra neyðarsenda. 404 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.