Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 31

Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 31
7. Að vinna að því að reykköfunartæki séu í öllum skipum, sem eru stærri en 150 tonn og jafnframt kennd meðferð þeirra. 8. Að athugað verði af stjórn Fiskifélags- ins hvort ekki beri að lögskipa sérstakan klæðnað fyrir þá sem vinna við töku trollsins á skuttogurum, jafnframt því sem öryggisbelti og hjálmar séu notaðir. 9. Að komið verði fyrir skiltum með vam- aðarorðum svo sem: „Aldrei skal hífa á spili nema maður sé til taks við stopp- arann“, og fleiri aðvaranir má hugsa sér, t. d.: „Farið ekki yfir togvírana", „Reykið ekki í kojunni,“ o. s. frv. 10. Að brýnt verði fyrir smáskipamönnum að þeir ætli sér af við útbúnað á netum, að teinar og uppistöður séu ekki úr svo sterku efni að hægt sé að draga bátinn niður án þess að uppistaða eða teinar slitni. 11. Að hefja áróður fyrir því að menn noti sjóferðabækur. 12. Að hlustvarsla verði bætt við Suðurland og annarsstaðar á landinu, þar sem úr- bóta er þörf, að næturvörslu verði komið á við símstöðvar í þéttbýliskjörnum og samtenging símstöðva verði miðuð við að tilkynningar geti örugglega borist all- an sólarhringinn. 13. Að skipshöfnum verði kennd meðferð fluglínutækja, svo ekki komi til svo al- varleg mistök á örlaga stund, að rang- lega sé gengið frá festingum um borð í skipi, sem gæti útilokað björgun úr bráð- um sjávarháska. 14. Að komið verði upp á Austurlandi skýli fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar og Slysavarnafélagsins vegna öryggis við leit í neyðartilfellum. 15. Að veðurathugunarstöð sú, sem nú er staðsett í Vopnafjarðarkauptúni verði flutt út að Strandhöfða. 16. Að stjóm Fiskifélagsins hefji allsherjar áróður fyrir þeim málum sem hér hafa verið nefnd. Að hún komist að samkomu- lagi við sjónvarp um að það taki upp kynningartíma vikulega um notkun b j örgunartæk j a. Þingið ítrekar samþykkt sína frá 32. Fiski- þingi um nauðsyn þess að hafa aðstoðar- og eftirlitsskip á öllum hefðbundnum veiðisvæð- um hins íslenska fiskiskipaflota. Ennfremur bendir 33. Fiskiþing á, í því sambandi, aukna sjósókn allt umhverfis land- ið, á stærri og smærri skipum, er leggja fyrir sig æ stærri hafsvæði til nytja, sérstaklega með stækkandi fiskveiðilögsögu. Þau skip er áður voru í eigu Slysavarnar- félags íslalnds og til öryggis- og eftirlits not- uð, eru of smá og úr sér gengin. Er því nú brýn þörf mikils átaks til úrbóta. Koma þurfa til ný aðstoðar- og eftirlitsskip, ekki færri að tölu en þegar þau voru flest, en miklu stærri og betur búin en áður. Þingið beinir því þeim eindregnu tilmælum til íslenskra stjómvalda, að þegar verði hafist handa til úrbóta með smíði eða útvegun slíkra skipa og bendir á að haft sé samband við Slysavarnafélag íslands og aðra er þekkingu geta látið í té varðandi framkvæmd þessa máls. Verðbólguöngþveitið og skortur á vinnuafli við sjávarútveg. í ályktun Fiskiþings í fyrra sagði svo m. a. um verðbólguöngþveitið: „Fiskiþing skorar á Alþingi og ríkisstjórn að taka verðbólguöngþveitið, mesta vandamál sj ávarútvegsins, til rækilegrar athugunar vegna þess háska, sem nú blasir við. Verðbólga á íslandi allt frá upphafi síðari heimstyrjaldarinnar mun hafa verið meiri en í nokkru öðru landi í Evrópu. Haustið 1971 og til ársloka 1972 og það sem af er þessu ári (þ. e. 1973) hefur verðbólgan magnast svo mjög, að nú horfir til algjörs öngþveitis og stöðvunar höfuðatvinnuvega þjóðarinnar, sjávarútvegs og iðnaðar, á næstu mánuðum, ef svo heldur áfram sem horfir. Óðaverðbólgunni fylgir að einstaklingar og félög leitast við af fremsta megni að koma eigin fé og lánsfé í nýjar byggingar eða eitt- hvað annað en peninga, sem verða verðminni með hverjhm deginum sem líður. Við þetta bætist, að framkvæmdir ríkisins, borgarinn- ar, bæjar- og sveitarfélaga, eru í hámarki. Notað er til framkvæmda að verulegu leyti erlent lánsfé, sem greiða verður af 8—11% ársvexti í erlendum gjaldeyri. Sjávarútvegurinn hefur þá sérstöðu meðal atvinnuvega landsmanna, að hann verður að langmestu leyti að sæta því verðlagi fyrir framleiðslu sína, sem er á erlendum mörkuð- Æ GIR — 405

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.