Ægir - 15.12.1974, Page 14
Utgerð og
SUÐUR OG SUÐVESTURLAND
í nóvember 1974
Gæftir voru misjafnar á svæðinu, en yfir-
leitt góðar. Afli bátaflotans varð alls 8.906
lestir af óslægðum fiski auk þess 550 lestir
hörpudiskur 500 lestir síld úr reknetum og
1.668 lestir spærlingur. Auk þessa lönduðu
togarar 4.218 lestum af fiski til vinnslu.
Afli í einstökum verstöðvum:
Hornafjörður: Þaðan stunduðu 13 bátar
veiðar með línu, net og botnvörpu og öfluðu
457 lestir af fiski og 493 lestir síld. Gæftir
voru góðar.
Vestmannaeyjar. Þaðan stundaði 41 bátur
veiðar með línu, net og botnvörpu og öfluðu
alls 989 lestir af fiski, auk þess landaði Vest-
mannaey 470 lestum. Gæftir voru góðar.
Eyrarbakki. Þar stunduðu 2 bátar veiðar
með botnvörpu og öfluðu 54 lestir. Gæftir
voru stirðar.
Þorláksliöfn. Þaðan stunduðu 16 bátar veið-
ar með net og botnvörpu og öfluðu 626 lestir
af fiski og 1.668 lestir spærling. Gæftir voru
góðar.
Grindavík: Þaðan stunduðu 40 bátar veiðar,
með línu, net og botnvörpu og öfluðu 1.545
lestir af fiski og 7 lestir af síld. Gæftir voru
góðar.
Sandgerði: Þaðan stunduðu 26 bátar veiðar
með handfæri, línu, net og botnvörpu og öfl-
uðu 998 lestir. Gæftir voru góðar.
Keflavík: Þaðan stunduðu 48 bátar veiðar
með línu, net og botnvörpu og öfluðu 1.581
lest. Auk þessa lönduðu þar 3 skuttogarar 979
lestum af fiski til vinnslu úr 7 veiðiferðum.
Gæftir voru góðar.
Vogar. Þar stundaði 1 bátur veiðar með net
og aflaði 34 lestir. Gæftir voru góðar.
Hafnarfjörður. Þar stunduðu 8 bátar veiðar
með línu, net og botnvörpu og öfluðu 243 lest-
ir auk þess lönduðu þar 3 togarar 424 lest-
um. Gæftir voru góðar.
Reykjavík. Þar lönduðu 18 bátar afla sem
stunduðu línu, net og botnvörpu. Aflinn alls
var 528 lestir, auk þess lönduðu 7 togarar afla
úr 9 veiðiferðum 1.950 lestum.
Akranes. Þar stunduðu 8 bátar veiðar með
net og línu og öfluðu 508 lestir auk þess lönd-
uðu 2 skuttogarar 395 lestum úr 4 veiðiferð-
um.
Rif. Þar stunduðu 15 bátar veiðar með línu,
net og botnvörpu og öfluðu 283 lestir. Gæftir
voru góðar.
Ólafsvík. Þar stunduðu 12 bátar veiðar með
línu og netum og öfluðu 659 lestir. Gæftir
voru góðar.
Grundarf jörður. Þar stunduðu 12 bátar veið-
ar með línu, net og botnvörpu og öfluðu alls
395 lestir. Gæftir voru góðar.
Stykkisliólmur. Þar stunduðu 8 bátar veiðar
með skelplóg og öfluðu 550 lestir af hörpu-
diski ennfremur stunduðu tvær trillur veiðar
með línu og öfluðu 6 lestir. Gæftir voru góð-
ar.
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í nóvember 1974
Gæftir voru sæmilega góðar í nóvember, en
tregfiski allan mánuðinn, bæði hjá línubátum
og togurum. Greinilegt er, að ennþá hefir eng-
inn fiskur gengið á Vestfjarðamið. Er
ástandið að þessu leyti mjög svipað og var um
sama leyti á síðasta ári.
Heildaraflinn í mánuðinum var 3.804 lest-
388 — Æ GIR