Ægir - 15.12.1974, Qupperneq 22
Frá
33. Fiskiþingi
ÍJr skýrslu
f iskimálast j óra
í skýrslu sinni til Fiskiþings fjallaði fiski-
málastjóri um verkefni félagsins á liðnu ári,
og þá sérstöku málaflokka, sem samþykktir
voru á síðasta Fiskiþingi.
Starfsemin.
Starfsemi félagsins var á s. 1. ári með svip-
uðu sniði og árið á undan. Þó má segja, að
nýr þáttur hafi verið tekinn upp, sem er nám-
skeið í sjóvinnu, sem haldin hafa verið víðs-
vegar um landið á starfsárinu. Deildarskipting
sú, sem ákveðin var með breytingum á lögum
félagsins frá 1973, er nú vel komin á lagg-
irnar. Þó mun að sjálfsögðu verða haldið
áfram að hagræða og breyta til eftir því sem
reynsla sýnir þörf á.
Af störfum hinnar almennu deildar félags-
ins, má nefna námskeið þau í sjóvinnu, sem
að framan getur og sem hófust á s. 1. hausti.
Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika, má
segja að góður skriður sé nú kominn á þenn-
an bráðnauðsynlega þátt fræðslumála. Eins og
fram kemur í skýrslu þeirra tveggja manna,
sem leiðbeint hafa á þessum námskeiðum á
vegum Fiskifélagsins og liggur hér frammi,
hafa þau yfirleitt tekizt vel. Er það ekki ein-
ungis að þakka ágætu starfi og áhuga leið-
beinendanna sjálfra, heldur einnig óeigin-
gjörnu starfi erindreka félagsins og trúnaðar-
manna um land allt og margra annarra Fiski-
félagsmanna. Vafalítið hefði, ef allt er talið,
reynzt erfiðara og kostnaðarsamara að
vinna þessu máli framgang, ef ekki hefði verið
fyrir hendi félagskerfi Fiskifélagsins víðsveg-
ar um landið tog áhugi útvegsmanna almennt.
Bæði fyrrverandi og núverandi ráðherra sjáv-
arútvegsmála hafa sýnt máli þessu skilning
og velvilja, svo og menntamálaráðuneytið. Ég
tel, að stefna beri að því að fræðsla í hagnýtri
sjóvinnslu verði eins skjótt og kostur er á
gerð að föstum lið í verknámi unglinga- og
gagnfræðastigs hins almenna skólakerfis í
samvinnu og samráði við Fiskifélagið og sér-
skóla sjómanna.
Vafalítið tekur nokkurn tíma að samræma
námskrár skólakerfisins með þetta markmið
í huga, svo og að bæta við nýjum kennslu-
greinum. Þangað til tel ég, að svipað fyrir-
komulag verði að hafa á þessum málum og
hingað til, sem reynzt hefur vel.
Samkvæmt samþykkt 32. Fiskiþings beitti
Fiskifélagið sér fyrir námskeiði fyrir kennara
í sjóvinnu. Námskeið þetta, sem haldið var í
góðri samvinnu við menntamálaráðuneytið, er
hið fyrsta af sínu tagi, sem haldið hefur verið
hér á landi.
Tvær bækur eða bæklingar eru um þessar
mundir að koma út hjá Fiskifélaginu. Annar
um sjómannaskólana, nám sjómanna og rétt-
indi. Er hann unnin í samráði við skólastjóra
viðkomandi skóla. Hinn er nokkur undirstöðu-
atriði næringarefnafræði. Er hann ætlaður til
fræðslu fyrir unglinga jafnt sem eldri, er
hyggjast kynna sér fiskvinnu og meðferð á
fiski.
Á sviði fræðslu- og upplýsingastarfa Fiski-
félagsins vil ég að síðustu nefna vikulegan
útvarpsþátt. Mun þar einkum leitast við að
svara fyrirspurnum, sem snerta ýmis hags-
munamál sjávarútvegsins í heild og einstak-
ra greina hans.
Önnur störf hinnar almennu deildar eru
óbreytt frá fyrra starfsári.
Sem fyrr er skýrslusöfnun og úrvinnsla
i
396 — ÆGIR