Ægir - 15.12.1974, Side 27
Ég tel, aö' okkar sjónarmið um hagnýtingu
fiskstofnanna eigi miklu fylgi að fagna. En
margir erfiðleikar og miklir eru samt í vegi
lokaniðurstöðu í því efni.
1. Mörg hafsvæði eða fiskstofnar þeirra eru
raunar sameign margra þjóða, eða fleiri
en einnar. Má nefna Norðursjó, Guineu-
flóa við V.Afríku, Karabiska hafið og
Mexíkóflóa, Bengalflóa, Persaflóa, Bar-
entshaf, svo að nokkur dæmi séu nefnd.
2. Mörg ríki sem svipuð sjónarmið hafa og
við, hafa lýst því yfir að þau ætli að
veita fjarlægum fiskveiðiþjóðum tíma-
bundna umþóttun eða jafnvel ótímabund-
in fiskveiðiréttindi á sínu hafsvæði. Má
nefna Kanada, Ástraliu, Nýja Sjáland,
Indland o. fl.
Eins og málin standa í dag, finnst mér lík-
legt, að hafréttarsáttmálinn muni kveða á um
einhvem rétt fjarlægra fiskveiðiþjóða, e. t. v.
tímabundinn eftir aðstæðum, til að fiska á
auðlindasvæði annarra strandríkja. Þessi mál
munu væntanlega skýrast betur á næsta þætti
Hafréttarráðstefnunnar sem hefst í Genf hinn
17. marz n. k.
Eitt er það hagsmunamál okkar, sem ég vil
nefna að lokum þessa spjalls um Hafréttarráð-
stefnuna. Það er afstaða okkar til eyðiskerja
eins og Rockall og sérstaklega Jan-Mayen.
Mér finnst ótækt, að Bretland eða Noregur
geti umyrðalaust helgað sér 200 milna auð-
lindalögsögu umhverfis þessar eyjar. Það
minnsta, sem nærliggjandi önnur lönd geta
krafizt, er jafn réttur á þessum svæðum á við
þau ríki, sem slegið hafa eign sinni á eyði-
sker þessi.
Eins og við munum, voru samþykkt á Al-
þingi á s.l. vetri lög um veiðar með botnvörpu,
flotvörpu og dragnót í fiskveiðilögsögunni.
Hafa lög þessi verið í gildi í tæplega eitt ár.
Á 32. Fiskiþingi var frumvarp að þessum
lögum til umræðu. Taldi Fiskiþingið margt
við frumvarpið að athuga og gerði ályktanir
þar um. Voru nokkrar athugasemdir þingsins
teknar til greina og annmarkar numdir úr
frumvarpinu áður en það var samþykkt sem
lög á Alþingi. Hins vegar voru ýmsar aðrar
ályktanir okkar ekki teknar til greina. Má
segja, að af þeim sökum séu lög þessi óþjálli
og erfiðari að búa við og starfa eftir en ella.
Ég tel, að gera þurfi ýmsar breytingar á
lögum þessum í ljósi þeirrar reynslu, er
fengizt hefur. Eru þær helztar, að veita hags-
munasamtökum meiri rétt til að hafa áhrif á
framkvæmd laganna og að auka heimildir til
að ákveða með reglugerðum ýmis fram-
kvæmdaatriði, alls staðar þar sem því verður
við komið um veiðiheimildir og svæða- og
stærðar-flokkaskiptingu fyrir hina ýmsu veið-
arfæraflokka fiskiskipastólsins. Ákvæði lag-
anna um opnun og lokun veiðisvæða í frið-
unarskyni hafa reynzt þung í vöfum og tilvilj-
anakennd í framkvæmd. Það segir sig sjálft,
að framkvæmd slíkra laga verður að miðast
bæði við hagsmuni einstakra byggðarlaga og
landshluta með hliðsjón af hagsmunum sjáv-
arútvegsins í heild — bæði útgerðar og fisk-
vinnslu. Vonir okkar standa til þess, að geta
sjálfir í náinni framtíð algjörlega stjórnað
helldarsókninni í fiskstofnana hér við land.
Af því leiðir, að lög um hagnýtingu fisk-
stofna verða að vera sveigjanleg og í sam-
ræmi við það takmark að ná fullri nýtingu
stofnanna ásamt með sem skynsamlegastri
notkun þess flota, er beitt er við veiðarnar og
hámarksnýtingu vinnslustöðva í landi. Stjóm
Fiskifélagsins hefur oftsinnis rætt þessi mál á
fundum. Liggja fyrir þinginu nokkrar athuga-
semdir um veiðieftirlit, er teknar voru saman
að tilhlutan stjórnarinnar. Það vekur nokk-
urn ugg á þessum síðustu tímum meiri ríkis-
útgjalda en dæmi eru til um áður, að í upp-
siglingu virðist vera nýtt eftirlitskerfi, enda
þótt fyrir séu aðilar, er vel geta sinnt svo-
nefndu veiðieftirliti. Virðist svo vera, að
vinstri höndin viti ekki hvað sú hægri er að
gera — eða vilji ekki vita það.
Afkoina sjávarútvegsins.
Ekki er þörf langrar framsögu um þetta
eíni af minni hálfu í skýrslu þessari, þar sem
mál þessi eru nú til umræðu hjá hagsmuna-
samtökum sjávarútvegsins og á Alþingi og
vegna þess að fyrir liggja skýrslur okkar til
þessara aðila.
Við annars konar vanda er nú að glíma
en oft áður, þar sem ekki er einungis um að
ræða ólióflega hækkun innlendra kostnaðar-
liða og lækkun verðlags á erlendum markaði,
heldur einnig meiri hækkun erlendra kostn-
aðarliða á skömmum tíma en dæmi eru til
um. Gengisbreyting sem slík hefur því önnur
áhrif en áður reyndist.
Æ GIR — 401