Ægir - 15.12.1974, Blaðsíða 29
Þá felur Fiskiþing stjórn Fiskifélags íslands
að beita sér fyrir:
1. Að ráðinn verði námsstjóri í sjóvinnu-
og sjávarútvegsfræðslu og verði hann
með aðsetur sitt hjá Fiskifélaginu til að
komast í sem besta snertingu við þarfir
líðandi stundar hverju sinni.
2. Að kennsla í sjóvinnu verði tekin upp
sem skyldunám í sambandi við verklega
kennslu í unglingaskólum sjávarþorpa
og valgrein í gagnfræða- og fjölbrauta-
skólum stærri staða.
3. Að haldið verði áfram kennaranám-
skeiðum fyrir sjóvinnukennara og að
þeir, sem taka þátt í slíkum námskeiðum
njóti sömu fjárhagslegrar fyrirgreiðslu
og kennaralærðir menn.
4. Að tekin verði upp fræðsla um meðferð
og verkun sjávarafla fyrir alla nemend-
ur unglinga- og gagnfræðaskóla (bæði
pilta og stúlkur).
5. Athuga hvort ekki sé hægt að koma upp
fyrsta hluta fiskiðnaðarnáms í tengslum
við útibú rannsóknastofnana sjávar-
útvegsins í hverjum landsfjórðungi.
6. Að Kennaraháskólinn undirbúi kenn-
araefni sín til að veita fræðslu í helstu
þáttum sjávarútvegs og verklegri sjó-
vinnu.
7. Að athuga hvort Háskóli íslands geti
ekki tekið upp kennslu í vissum þáttum
sjávarútvegs.
8. Að komið verði af stað við Stýrimanna-
skólana öldungadeildum fyrir þá sem
hafa 1. stig stýrimannaprófs (þ. e. 120
rúml. próf) og starfsreynslu, svo að þeir
hljóti 2. stigs próf, þ. e. hið meira fiski-
mannapróf.
9. Að komið verði á fót úti á landi nám-
skeiðum í sambandi við gagnfræða- og
iðnskóla fyrir þá, sem hafa smáskipa-
próf (þ. e. 30 rúml. próf) og vissa starfs-
reynslu, svo að þeir geti tekið að því
loknu 1. stigs próf.
10. Að komið verði á við sem flesta gagn-
fræða- og fjölbrautaskóla vélfræði-
kennslu fyrir nemendur. Einnig nám-
skeiðum fyrir þá eldri við sömu skóla,
svo að þeir geti tekið þar próf í fyrsta
stigi vélstjóranámsins.
11. Að koma af stað fræðslu í öllum fram-
haldsskólum um slysa- og öryggismál
sjófarenda með fyrirlestrum og fræðslu-
myndum og taka þetta atriði rækilega
fyrir á endurhæfingarnámskeiðum Sjó-
mannaskólanna.
12. Að opinberir f jölmiðlar komi sannri og
óbrjálaðri mynd til landsmanna frá lífi
og starfi fólks við sjávarsíðuna.
13. Fræðslu um fiskirækt verði beint inn í
framhaldsskólana í sambandi við sjáv-
arútvegsfræðsluna.
14. Fiskiþing lýsir ánægju sinni yfir störf-
um Tæknideildar Fiskifélagsins. Hvetur
þingið stjórnina að vinna ötullega að
frekari uppbyggingu og framgangi þess-
arar þörfu deildar.
15. Athugaðir verði möguleikar á að koma
af stað færanlegri sjávarútvegsstarfs-
fræðslu, sem um leið yrði tæknikynning
og námskeið fyrir hina ýmsu notendur
og þjónustumenn siglinga- og fiskileitar-
tækja.
16. Að tekinn verði saman leiðbeiningabækl-
ingur fyrir sjómenn í siglingu við strend-
ur íslands. Þar komi fram það sem enn-
þá er í gildi í Leiðsögubók sjómanna við
strendur íslands, ásamt upplýsingum og
viðvörunum reyndra sjómanna í siglingu
með ströndinni.
17. Að beita sér fyrir því að nýjungar á
sviði véltækni í sjávarútvegi verði kann-
aðar af Tæknideild Fiskifélagsins og
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Allar
þær nýjungar er þessar stofnanir gefa
viðurkenningu verði kynntar í blaði fé-
lagsins og fjölmiðlum fyrir þeim er að
sjávarútvegi starfa. Ennfremur bendir
þingið á nauðsyn aukinnar véltækni í
fiskiðnaði og skorar á opinbera aðila að
hinir ýmsu lánasjóðir veiti aukin lán til
vélvæðingar í sjávarútvegi.
18. Athugað verði við stjórn Hafrannsókna-
stofnunar og sjávarútvegsráðherra að
þegar nýtt hafrannsóknaskip verður
byggt, verði það þannig útbúið að hægt
sé að hafa nokkurn hóp ungra manna
við nám um borð.
Hafnarmál.
1. 33. Fiskiþing ályktar að brýna nauðsyn
beri til að endurskoða starfsemi Hafnar-
málastofnunarinnar. í því sambandi vill
þingið benda á að nauðsynlegt sé, að
Æ GI R — 403