Ægir - 15.12.1974, Síða 32
um á hverjum tíma. í sjávarútveginum er því
ekki unnt að velta auknum tilkiostnaði yfir
á aðra innlenda aðila, svo sem venjan hefur
verið um ýmis þjónustufyrirtæki og stofn-
anir hins opinbera.“
Framangreind skilgreining á nú við í enn
rikari mæli en s. 1. haust, því að óðaverðbólgan
er nú að sliga sjávarútveginn. Bein afleiðing
verðbólgunnar er skortur á vinnuafli við
hann.
Fiskiþingið telur, að skortur á vinnuafli við
sjávarútveginn á sjó og í landi sé orðinn svo
geigvænlegur að nauðsynlegt sé að grípa til
róttækra aðgerða til skjótrar úrlausnar.
Telur þingið að nauðsynlegt sé meðal ann-
ars að gera eftirtaldar ráðstafanir:
1. Að skólahaldi sé hagað þannig, að
kennsla verði felld niður í gagnfræða-
og framhaldsskólum, eftir því sem við
verður komið á þeim tíma þegar vertíð
stendur sem hæst á hverjum stað og
skólaárið framlengt tilsvarandi.
2. Að Alþingi ákveði með lögum að náms-
lán séu miðuð við það að námsmaður-
inn, piltur eða stúlka, vinni ákveðinn
tíma árs við höfuðatvinnuvegi landsins,
nema heilsufarsástæður hamli, eða af
öðrum óviðráðanlegum ástæðum. Að
sjálfsögðu fái námsfólkið venjulegt kaup
við störf sín hjá þeim, sem þeir vinna.
Greinargerð.
Fiskiþingið telur, að hverjum heilbrigðum
ungling sé nauðsynlegt, til þess að ná andleg-
um og líkamlegum þroska, að starfa um tiltek-
inn tíma við atvinnuvegi þjóðarinnar og gera
sér grein fyrir þýðingu þeirra fyrir fólkið í
landinu.
Óðaverðbólgan á undanförnum árum hefur
skapað flótta starfandi fólks frá höfuðatvinnu-
vegum þjóðarinnar. Það þykir ekki „fínt“ að
stunda almenna vinnu sem áður var.
Vinnuaflskorturinn við fiskvinnu í landi
skapar mikla örðugleika og gerir starfsemi
fiskiðnaðarins ótrygga. Menn skortir til þess
að skipa aflanum í land. Algengt er að skips-
menn hafa orðið að skipa aflanum í land sjálf-
ir. Oft hefur af þessum sökum orðið að sigla
skipunum til fjarlægra hafna til þess að losna
við aflann.
Sé ekki fljótlega bætt úr þessu öngþveiti, er
framtíð sjávarútvegsins í voða.
Fiskeldi og klak á nytjafiskum
í ferskvatni og sjó
Fiskiþingið lýsir ánægju sinni yfir því
starfi, sem Fiskifélag íslands hefur innt af
höndum á undanförnum árum til þess að
stuðla að auknu fiskeldi.
Þessari starfsemi félagsins er glögglegga
lýst í skýrslum þeirra Más Elíassonar, fiski-
málastjóra, Ingimars Jóhannssonar vatnalíf-
fræðings og einnig í ágripi því af skýrslu Dr.
P. H. Milne, verkfræðings, sem lagðar hafa
verið fram á þinginu.
Hinn síðastnefndi dvaldist hér um mánaðar-
tíma í haust á vegum Fiskifélagsins. Fengist
hefur styrkur frá F. A. O., þ. e. Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna i
Róm, til þess að standa straum af kostnaði við
könnun þessa sérfræðings á aðstæðum og skil-
yrðum til fiskeldis og klaks í ám vötnum og í
sjó hér við land. Einnig hefur sama stofnun
gefið fyrirheit um að senda tvo sérfræðiirj,a
sína hingað innan skamms, annan, er hefur
fisksjúkdóma að sárgrein, en hinn í fóður- og
næringarfræði. Starfa þessir menn einn-
ig á vegum Fiskifélagsins, sem mun sjá um að
útvega íslenzka kunnáttumenn í þessum fræð-
um til samstarfs við þá.
Fiskiþingið fagnar þeim ágæta árangri, sem
Jónasi Bjarnasyni verkfræðingi hefur tekist
að ná í starfi sínu á vegum Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins í blöndun alifiskafóðurs
úr fiskmjöli og fleiri efnum.
Af ástæðum sem alkunnar eru þ. e. of-
veiði ýmissa fiskstofna, mengunar í ám og
vötnum og einnig í ýmsum innhöfum og enn-
fremur í úthöfunum, hafa flestar helztu fisk-
veiðiþjóðir heims þegar gert róttækar ráðstaf-
anir til þess að vinna gegn þessari öfugþró-
un.
Þessar ráðstafanir eru fyrst og fremst
fólgnar í friðun stórra hafsvæða, vatna og
fljóta. Ennfremur í vernd klak- og uppeldis-
stöðva fyrir drápi seiða og smáfisks.
Síðast en ekki sízt er leitast við að auka
fiskgengdina með fiskræktun og fiskeldi í
hundruð- og jafnvel þúsundfalt stærri stíl en
áður hefur þekkst. Fiskeldi hefur þó verið
406 — Æ GI R