Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 15
Orkumál
38. Fiskiþing felur stjórn Fiskifélagsins að beita
sér fyrir eftirfarandi:
•• Að fiskmjölsverksmiðjum og öðrum fiskiðju-
verum verði gert kleift með viðráðanlegri lána-
fyrirgreiðslu að ráðast í nauðsynlegar fram-
kvæmdir til þess að bæta nýtingu, spara orku og
vinna að mengunarmálum.
2- Að rafmagnsgjöld til fiskvinnslufyrirtækja verði
tekin til endurskoðunar, þar sem séð er að raf-
orkugjaldskrár þær sem fiskvinnslan býr við eru
óeðlilegar miðað við aðra gjaldtaxta.
3. Að starfsmenn tæknideildar haldi áfram aðstoð-
ar- og upplýsingastörfum í sambandi við olíu-
sparnað í fiskiskipum og að aðstaða þeirra verði
bætt í því skyni. Tæknideildin kanni hvaða
ástæður hafi valdið verulegum tjónum á vélum
skipa, sem breytt hefur verið til vinnslu á svart-
olíu, og kynni niðurstöður þessara athugana
fyrir eigendum skipa með sömu vélagerð.
4. Þingið þakkar starfsmönnum tæknideildar vel
og samviskusamlega unnin störf og lýsir sérstakri
ánægju með þann árangur og áhrif sem deildin
hefur haft í orkusparnaði fiskiskipa.
Ingólfur Falsson:
• •
Oryggismál
Þingforseti, góðir þing-
fulltrúar.
Það hefur fallið í minn
hlut að ræða um örygg-
ismál. Fiskiþing hafa á
liðnum árum og áratug-
um látið öryggismál sem
innlegg í frekari umræður
mjög til sín taka, til að
skapa sem mest öryggi
sjómanna okkar og ann-
arra við strendur landsins.
sem Fjórðungsþingin hafa ályktað um ör-
yggismál fyrir þetta Fiskiþing er eftirfarandi:
yFjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi beinir
PVl til Fiskiþings að beita sér fyrir því við Vita-
°g hafnarmálastofnun að séð verði til þess að ljós
logi að jafnaði á Hlöðu og Ketilflesjarvita, en
sjómenn þurfi ekki að búa við það að hafa þá tímum
saman ljóslausa vegna bilana. Jafnframt verði ljós-
magn þessara vita, svo og Hvalsnes- og Papeyjarvita,
aukið eins fljótt og auðið er. Einnig verði vegua
síendurtekinna óhappa í innsiglingu til Vopna-
fjarðar athugað að setja bauju á Mikkaelsen-
boða. Þá verði settur upp margumbeðinn hljóð-
viti á Kambanes til að auðvelda smábátum land-
töku. Jafnframt er því beint til Vita- og hafnar-
málastofnunar að hún láti teikna inn á sjókort
grunnleið við Papey og Kambanes til að auðvelda
ókunnugum siglingu á þessari leið“.
,,Fjórðungsþing fiskideildanna í Norðlendinga-
fjórðungi skorar á stjórn Fiskifélags íslands að
beita sér fyrir fræðslu útgerðarmanna á bátum
undir 12 smálestum um líf- og örorkutryggingu
áhafna báta sinna til samræmis við samnings-
bundnar tryggingar á skráningarskyldum skipum.
Jafnframt skorar þingið á stjórn Fiskifélagsins
að beina því til stjórnvalda að lögskráð verði á
alla fiskibáta.
Fjórðungsþing fiskideilda í Norðlendingafjórð-
ungi, beinir þeim tilmælum til stjórnar Fiski-
félags íslands að fá Vita- og hafnarmálastofnun
til þess að bæta úr og auka ljósmagn vitanna við
Skagafjörð. Ljósmagn þeirra vita að undanskildum
vitanum á Hrauni er að mati sjófarenda allt of lítið.
Einnig verði sett upp ljósbauja og radarmerki við
Innstalandssker".
„Fjórðungsþing Sunnlendinga ítrekar fyrri sam-
þykktir í öryggismálum og beinir því jafnframt
til 38. fiskiþings að kannað verði notagildi sjálf-
virks slökkvibúnaðar fyrir fiskiskip sem nú er
kominn á markað. Ennfremur hvort tryggingar-
félögin væru ekki tilbúin til að veita afslátt af
iðgjöldum, ef slíkur útbúnaður væri settur í skip.
Ennfremur væri eðlilegt að tryggingarfélögin
lánuðu til kaupa á slíkum búnaði".
Fjórðungsþing fiskideilda í Vestfirðingafjórðungi
hefur ekkert ályktað um öryggismál á þessu hausti
og tel ég það miður. Þótt ég sé að mörgu leyti
ókunnugur á Vestíjörðum, er ýmislegt sem ég tel að
betur mætti fara en nú er, sérstaklega er varðar
vitamál. Á Svalvogum var rafmagnsljósviti og
radióviti. Þegar vitavörðurinn þar hætti störfum
var auglýst laus staða vitavarðar og bárust þó
nokkrar umsóknir, þá skeður það að vitamálastjóri
ákveður að því er ég best veit að leggja vitann
niður í þeirri mynd sem áður var, þ.e.a.s. sem
ÆGIR — 3