Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1980, Síða 17

Ægir - 01.01.1980, Síða 17
En á þessum vettvangi hefur orðið mikil breyting, tæknibylting, þegar öldur ljósvakans voru virkj- aðar, fyrst á sviði loftskeyta og síðan talstöðva. Menn átta sig fljótt á því, að komið er til sögunnar mikið og gott öryggistæki, sem nýta beri í sem flestra þágu. í dag blandast engum heilvita manni hugur um, að íjarskiptasamband skipa á milli og frá þeim til hinna fjölmörgu strandarstöðva er einn stærsti öryggisstuðullinn í starfi sjómannsins, bæði far- og fiskimanna. Og þegar einhver hlekkur þeirrar miklu keðju brestur þá er líka voðinn vís. A það erum við þráfaldlega minntir eins og dæmin sanna og enn gerast þau atvik, sem við stöndum ráðþrota gegn. Því er það enn sígild krafa til þeirra, sem á þessum vettvangi vinna, að þeir slaki ekki á klónni, haldi vöku sinni og séu ávallt vel á verði gagnvart öllu því, er að öryggismálum lýtur. En það eitt er ekki nægjanlegt. Enn meiri kröfur verður þó að gera til hinna, sem þessa öryggis njóta, að þeir fari að settum lögum og reglum, virði og meti það sem áunnist hefur hverju sinni og skilji að slíkt er gert í þágu þeirra sjálfra og engra annarra. Svo sem kunnugt er voru fyrst sett bráðabirgða- *ög um Tilkynningaskyldu ísl. skipa í maí 1968 °g gefin út reglugerð um framkvæmd hennar. Hinn 2- maí 1969 voru lögin staðfest og ný reglu- gerð gefin út í júní sama ár. Nú gilda um tilkynn- 'ngaskylduna lög nr. 40 frá 13. maí 1977 og reglu- gerð staðfest varðandi þau á sl. vori. Að lögboðinni úlkynningaskyldu varð komið á má tvímælalaust rekja til tveggja sjóslysa, hið fyrra er v.s. Stuðla- herg frá Seyðisfirði fórst úti af Stafnesi 17. febrúar 1962 með allri áhöfn, 11 mönnum, og hið síðara er v;s- Stígandi frá Ólafsfirði fórst á síldarmiðunum v'ð Jan Mayen 26. júlí 1967. Áhöfn skipsins, 12 menn, komst í gúmmíbjörgunarbáta og var bjargað eftir 4 sólarhringa og 17 tíma. Frá því fyrsta hefur tilkynningaskyldan verið í umsjón og á ábyrgð Slysavarnarfélags íslands og tekið miklum breytingum eftir því sem reynslan hefur sýnt og sannað hverju sinni. Veturinn 1973 Þótti nauðsynlegt að koma á 24 tíma varðstöðu yegna hinna tíðu slysfara sem þá urðu og þá voru 1 g'ldi tveir skyldutímar að deginum og á kvöldin. ar sá háttur á hafður mánuðina okt. til aprílloka, en 16 tíma varðstaða frá maíbyrjun til loka sept- ember. Hélst sú tilhögun óbreytt þar til nú í ár að 24 Oma varðstaða hjá tilkynningaskyldunni var a veðið allt árið. í þessu sambandi er skylt að gda þess, að miðstöð tilkynningaskyldunnar er jafnframt stjórnstöð hinna margháttuðu umsvifa SVFÍ við leitar- og björgunarstörf, hjálp ogaðstoð. Þegar beiðnir berast geta starfsmenn tilkynninga- skyldunnar þegar hafið aðgerðir en ávallt er maður á bakvakt til að sinna slíkum útköllum, sem oftast eru þess eðlis, að einn maður annar þeim ekki ásamt með öðrum tímafrekum umsvifum. Hjá tilkynn- ingaskyldunni er staðsettur neyðarsími félagsins, bein lína við lögregluna í Reykjavík, auk þess sem starfsmenn hennar eru í stöðugu sambandi við strandstöðvar L.í. og hin ýmsu verstöðvaradíó. Nú er í undirbúningi að tengja fjarrita tilkynn- ingaskyldunnar beint við hinar ýmsu strandar- stöðvar, sem flýta ætti allri afgreiðslu í stað þess að senda öll skeyti um ritsímastöðina í Reykja- vík eins og verið hefur til þessa. Þegar SVFÍ var falin framkvæmd tilkynninga- skyldunnar 1968 var þegar haft samráð við L.í. um bætt móttökuskilyrði strandarstöðvar. Vissu- lega hafa miklar breytingar á orðið til hins betra á þessu sviði þótt hinu sé heldur ekki að neita að enn skortir talsvert á að viðunandi sé. Er þar fyrst og fremst um að kenna, að uppbygging og endur- bætur á tæknibúnaði strandarstöðva hefur verið í svelti hjá fjárveitingavaldinu og að skortur hefur verið á línum til fjarstýringar. Hér á ég við VHF eða metrabylgjukerfið og eru enn nokkur hafsvæði algjörlega út undan í þessu tilliti. Um leið og fagna ber stöðinni á Viðarfjalli með tillit til hafsvæði- sins frá Sléttu að Digranesi verður að þrýsta á nauðsyn þess að Héraðsflóa séu viðunandi skil gerð og einnig svæðinu á milli TFT (Hornafj.) og TFM (Nesradíó). Nú er í augnmáli að farsæl lausn fáist við Ingólfshöfða með uppsetningu metra- bylgjustöðvar í öræfum. Þá er enn eftir að sinna vestanverðu Norðurlandi frá Almenningum að Horni um Skagafjörð og Húnaflóa, á sunnan- verðum Vestfjörðum og djúpmiðum Breiðafjarðar. Með tilkomu metrabylgjustöðvanna hafa radíó- viðskipti gjörbreyst hér við land. Sífellt fleiri bátar hafa tekið upp viðskipti á metrabylgju í stað millibylgju. það er jákvæð og skynsamleg þróun. Þessa sjónarmiðs hefur gætt í viðræðum við for- ráðamenn þessara mála og þá jafnframt að stefna beri að því, að bátar, sem sækja miðin við landið eingöngu, ættu að nota metrabylgjusviðið í stað millibylgju. Hafandi þessar staðreyndir í huga þá verða allir, bæði einstaklingar og félagasamtök, að vinna að farsælum úrlausnum þessara mála og að mínu mati eiga þau hiklaust að hafa forgang fyrir öðrum framkvæmdum í náinni framtíð. ÆGIR — 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.