Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 18

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 18
Þar sem ég taldi rétt að gefa ykkur nokkra yfirsýn varðandi metrabylgjukerfið og hvernig því er háttað í dag frá okkar sjónarhóli séð með tilliti til hinna ýmsu hafsvæða og þá jafnframt álits sérfróðra manna um ágæti þess bæði með tilliti til öryggis sjómanna og þjónustu við þá tel ég mér skyllt að dæma mjög harðlega, hvað svo- kallaðar CB eða FR talstöðvar tíðkast nú um borð í skipum og bátum í dag. Það er fyllsta ástæða til að ætla, að með tilkomu þessara talstöðva hafi hlust- vörslu stórhrakað á hinum viðurkenndum tíðnum strandarstöðvar Landssíma íslands. Það hlýtur því fyrr en seinna að því að koma, að þessar stöðvar verði ekki leyfðar um borð í talstöðvarskyldum skipum. Það fer ekki fram hjá neinum, hve oft skip- stjórnarmenn eru hvattir til að sinna tilkynninga- skyldunni og svara næstu strandarstöð Lands- símans. Þetta má heyra í síendurteknum orðsend- ingum í útvarpi á morgnana, um miðjan dag og á kvöldin. Eftirgrennslanir frá einni höfn til annarrar stórseinka allri úrvinnslu og rýra það öryggis- gildi sem tilkynningaskyldan er fyrir alla sjófar- endur. Það er með öllu óafsakanlegt það kæruleysi og tómlæti, sem því miður allt of margir skip- stjórnarmenn hafa sýnt í þessum efnum. í lok skyldutímans er gerð úttekt á því hvaða skip hafa ekki tilkynnt sig. Þeim er þá skipt í köllun hjá strandarstöðvunum og á vaktaskiptum eru þau, sem enn eru ókomin lesin með veðurfréttum. Fyllsta ástæða er til að ætla, að þeir sem sjóinn sækja fylgist vel með öllu því er lýtur að veðurspám og veðurlýsingu. Og fullviss er ég um, að háværar raddir mundu hefjast, ef þessi öryggisþjónusta, sem veðurfréttir og veðurspá eru, yrði skyndilega aflögð. Skip vantar með skyldu, strandarstöð kallar, það er áminnt með skyldu í veðurfréttatíma, en samt er þagað. Og hvað veldur? Það læðist að manni sú hvimleiða hugsun, að hlustvörslu sé mjög svo ábóta- vant, eða kæruleysi nema þá að hvorttveggja sé. Ef skipstjórnarmenn sinntu hlustvörslu sem skyldi þyrfti heldur aldrei að kyrja þennan leiðinda skipalista í veðurfréttatímum útvarpsins. Eins og tilkynningaskyldan er starfrækt í dag mótast hún af þrem meginþáttum: A. til öryggis fyrir sjómenn. B. upplýsingaþjónusta fyrir útvegsmenn og að- standendur sjómanna. C. miðstöð, sem varðveitir óyggjandi heimildir um úthaldsdaga skipanna og sem slík hefur hún oft komið að góðu gagni fyrir sjómenn svo og útvegsmenn. Þessi sérstæða öryggisþjónusta hefur vakið verð- skuldaða athygli víð um lönd og má með réttu segja að við íslendingar séum brautryðjendur á þessu sviði. Fer líka vel á því, þar sem fáar þjóðir eru eins háðarsjósókn ogsiglingumogviðogfáarverða að sækja á eins viðsjál mið og víðfemt úthaf á öllum tíma árs. Tilkynningaskyldan er staðreynd, lögboðin öryggisþjónusta. Það stoðar lítið að starfandi séu stofnanir, félög og nefndir, ef ráð þeirra eru ekki virt. Lög og reglugerðir ná skammt og hafa á sama hátt lítinn eða engan tilgang sé þeim ekki hlýtt. Aukin og vaxandi samvinna á þessu sviði er að- kallandi nauðsyn. Þar geta sjómenn og útvegsmenn átt drýgstan og farsælastan þáttinn í því að vel sé að verki staðið. Það er ekki aðeins, að með lögum skuli land byggja heldur einnig líf trvggja. Öryggismál 38. Fiskiþing gerir eftirtaldar ályktanir um ör- yggismál: 1. Vitastjórn tilnefnd af hagsmunasamtökum verði gerð að virkri stjórn vitamála. 2. Hvatt er til þess að átak verði gert í hafnarmálum þeirra staða, sem búa við erfið hafnarskilyrði. 3. Komið verði á lögskráningarskyldu á alla báta, sem nýttir eru til veiða 1 atvinnuskyni. 4. Talið er brýnt, að veðurfréttir í útvarpi verði jafnan byggðar á nýjustu upplýsingum Veður- stofunnar og útvörpun þeirra verði með jöfnu millibili á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn. Ennfremur verði það kannað, hvort ekki mætti bæta verðurþjónustuna með því að fá skip til að gefa upp vindstyrk og vindátt jafnhliða tillkynningaskyldu. 5. Fiskifélag íslands sjái til þess að Leiðabók fyrir sjófarendur verði endurprentuð. 6. Með tilliti til þess að margir skipstjórnarmenn hafa sýnt ótvíræðan trassaskap, hvað snertir tilkynningarskyldu þeirra, þá ber brýna nauðsyn til að nú þegar verði fundin leið til að tryggja að hér verði gerð bragarbót á. 7. Siglingamálastjóri er hvattur til að endurskoða öryggismál skipa í samráði við ályktanir Fiski- þings. 6 — ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.