Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1980, Side 20

Ægir - 01.01.1980, Side 20
Greinargerð: Það er almennt talið, að selurinn sé orsakavaldur þess, að ormur sá, sem oft er mikið af í fiski, sem tekinn er til vinnslu og veldur ómældu tjóni, vegna allskonar vinnu og vandræða, sem orðið hafa í markaðslöndum. Ýmsir telja þó að rannsaka þurfi málið betur áður en ákveðið er að minnka selastofninn, því sannanir um árangur liggi ekki fyrir. Hafa ber í huga, að eyðing á selastofni kostar mikið fé. Stór svæði í kringum landið eru friðuð fyrir skotum allt árið vegna selláturs og mun því ekki fást breitt bótalaust. Giskað er á, að selurinn éti á hverju ári um 30-40 þús. tonn af nytjafiski, og ef hann er auk þess valdur að þeim ormi, sem mikið er af í fiski og veldur veru- legu tjóni á afurðum, virðist réttlætanlegt að eyða honum að miklum hluta. Ingólfur Arnarson: Stjórn fískveiða Forseti, góðir Fiskiþing- fulltrúar. Enn stöndum við frammi fyrir nauðsynlegri umfjöll- un um stjórn fiskveiða, - og enn blasir sú stað- reynd við, að lítt hjaðna deilur með mönnum, um þetta mikilsverða mál- efni. Misklíðin er síst minni nú en í upphafi, - og upphafið verður að teljast fólgið í niðurstöðum hinnar svonefndu „Svörtu skýrslu“, - en í þeirri skýrslu lögðu fiskifræðingar allt í einu til. vegna alvarlegs ástands þorskstofnsins, - að einungis yrðu veidd 230 þúsund tonn af þorski, á einu ári, þar með talinn afli útlendinga, en þetta var jú fyrir útfærsluna í 200 sjómílur. í kjölfar „Svörtu skýrslunnar“ kom önnur skýrsla - frá Rannsóknaráði ríkisins, og bar hún heitið „Þróun sjávarútvegs". Með skýrslum þessum má segja að þjóðin hafi í fyrsta sinn verið vakin til meðvitundar um að ástand mikilvægra fiskstofna, var svo alvarlegt, að nauðsynlegt yrði að minnka veiðiskapinn. Hér stóðu menn allt í einu frammi fyrir því, að stór- lega yrði að hefta aðgang að fiskimiðunum um- hverfis landið - og það eitt var út af fyrir sig algjörlega nýtt fyrirbrigði - eða öllu heldur vanda- mál - sem áður hafði ekki þekkst, nema að því eina leyti, sem fólst í algjöru banni, er sett var við veiðum úr íslenska síldarstofninum á sínum tíma. í upphafi má segja að öll umræða um hugsan- legar leiðir til stjórnar, sem mættu leiða til minnk- andi sóknar í þann hinn mikilvæga fisk - þorskinn - hafi einungis verið meðal manna, sem beinlínis búa við fiskveiðar, þ.e. útvegsmanna, sjómanna og fiskvinnslumanna. Síðar hafa komið inn í um- ræðuna allskonar sérfræðingar - allt frá mikil- virkum fataframleiðendum, til hálærðra reikni- meistara, sem aldrei virðast hafa séð til sólar, - nema þá blessuð sólin hafi tekið að skína um skjái háborgar menntanna, Háskóla íslands - og mér virð- ist að einungis útfrá slíku skini séu þessir menn að vísa veginn. Ég trúi því einfaldlega ekki að margs- konar fáránleiki, sem birtist í umfjöllun þessara reiknimeistara - og raunar íjölmargra hámenntaðra hagstjórnarmanna, sé fólginn í þeim hinum mikla mætti, sem sagt er - á íslenska vísu - að felist í menntunni einni saman. Þrátt fyrir það sem ég nú hefi sagt, er það fjarri mér að telja framlag þessara aðila til umræðunnar hjómið eitt, því vissulega er ýmislegt athyglis- vert í máli þeirra, en því verður ekki í móti mælt að í umíjöllun þeirra er fjölmargt svo neikvætt og andstætt því raunverulega, sem við, er þekkjum, og unnið höfum að málefnum sjávarútvegsins, hljótum að álykta, sem svo, að framgangur þessara manna í málinu sé allt annar en sá, að stuðla að því að allt framtak og störf í sjávarútvegi megi í framtíðinni sem hingað til, vera helsta undir- staða velmegunar þjóðarinnar. Nú blasa við sjávarútveginum einhverjir mestu erfiðleikar sem yfir hann hafa dunið. Ástæður þess- ara erfiðleika eru margvíslegar, en í því sambandi hnjóta menn helst um ástæður, sem fólgnar eru í slæmu ástandi nytjastofna svo sem þorsks og loðnu, - og því samfara margháttuðum friðunar- aðgerðum og takmörkunum á sókninni. Hvað sem segja má um stærðir þessara erfiðleika, þá trúi ég því að við munum yfirvinna þá með sam- stilltu átaki. - Hitt kann að verða torleystara sem fólgið er í hinu gífurlega skilningsleysi margra valdhafa og hálærðra sérfræðinga, með 8 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.