Ægir - 01.01.1980, Page 22
deilur um stjórn fiskveiða með sjávarútvegs-
mönnum sjálfum, - þá er sú hætta fyrir hendi að
sjónarmið og óskir allra annarra en þeirra munu
verða ofan á - til ófyrirsjáanlegs tjóns, þeim mönn-
um, sem eiga allt sitt undir velgengni útvegsins.
Að svo mæltu vil ég gera grein fyrir málum er
hin ýmsu fjórðungsþing og fiskideildir hafa sam-
þykkt til 38. Fiskiþings, og leggja þau fram til
fyrri umræðu, en þau varða öll stjórn fiskveiða.
I. Frá fjórðungsþingi fiskideilda á Austurlandi.
IV. mál
Fjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi hald-
ið í Neskaupstað 14. og 15. sept. 1979 beinir
þvi til Fiskiþings að reynt verði til hins ítrasta
að ná samstöðu um kvótafyrirkomulag hvað
varðar stjórnun þorskveiða.
Greinargerð:
Þar sem tilburðir þeir, sem reyndir hafa verið
undanfarin ár hafa ekki reynst nægjanlegir til
þess að halda þorskveiðum innan þeirra marka,
sem talið hefir verið æskilegt og auk þess
skapað ýmsa erfiðleika í sambandi við veið-
arnar sem til koma vegna þeirra aðferða sem
beitt hefir verið, viljum við að reynt verði að
breyta til með þeim hætti að setja ákveðið afla-
hámark á hvert skip, hvað varðar þorsk. Reynt
verði að finna þá sanngjörnustu leið sem fær
telst til þess að koma þessu á. Verði í því sam-
bandi tekið tillit til sem flestra þátta gagnvart
veiðunum.
Við álítum að með því að útgerðaraðilar
og sjómenn viti í upphafi árs hvað þeim er
ætlað að veiða mikið yfir árið, geti þeir skipu-
lagt veiðar sínar miklu betur og á hagkvæmari
hátt en nú er unnt, því að fyrirkomulag það sem
viðgengist hefir, æsir til þess kapphlaups, sem
skaðar alla, bæði sjómenn og útgerð og ekki
hvað sist fiskvinnslu.
Með þessari tillögu okkar viljum við reyna
nýja leið og gera tilraun í eitt ár með þessa
hugmynd, þar sem mikið er í húfi, þ.e. að
þorskstofninn verði ekki ofveiddur.
V. mál
Fjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi haldið
í Neskaupstað 14. og 15. sept. 1979 beinir því
til Fiskiþings að þorskveiðar opinna báta og
þeirra smábáta sem stunda einungis veiðar yfir
sumarið, verði ekki takmarkaðar umfram það,
sem veður og straumar hamla veiðum þeirra.
VIII. mál
Fjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi haldið
í Neskaupstað 14. og 15. sept. 1979, beinir því
til Fiskiþings hvort hugsanlegt sé, að fá tog-
veiðiheimildir fyrir minni báta á steinbítsmiðum
fyrir sunnan Papey og einnig því að unnið
verði að auknum veiðum á skarkola.
Greinargerð:
Þar sem óhjákvæmilegt virðist að stjórnun
fiskveiða verði framkvæmd í vaxandi mæli á
næstunni telur Fjórðungsþing að á meðan þorsk-
veiðar eru bannaðar þurfi að beina veiðunum
að þeim fiskstofnum sem taldir eru vannýttir.
IX. mál
Fjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi haldið í
Neskaupstað 14. og 15. sept. 1979, beinir því
til Fiskiþings að fylgst verði betur með sam-
setningu afla í ýmis togveiðarfæri, svo komist
verði hjá því að veiða smáýsu ogannan ungfisk.
Þá telur Fjórðungsþingið að hætta eigi til-
raunum með sandsílisvörpu, þar sem alltof
mikið veiðist í vörpuna af seiðum ýmissa annarra
nytjafiska.
X. mál
Fjórðungsþing fiskideilda á Austurlandi haldið í
Neskaupstað 14. og 15. september 1979, beinir
því til Fiskiþings að við úthlutun síldveiðileyfa
með hringnót verði hlutur einstakra landsfjórð-
unga ekki fyrir borð borinn.
II. Frá fjórðungssambandi Sunnlendinga.
II. mál
Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til Fiski-
þings að stefnt verði að samstöðu um að þorsk-
afla verði deilt niður milli togaranna og báta-
flotans á næsta ári og hafður verði til viðmið-
unar þorskafli síðustu 10 ára. Allar ákvarðanir
um stjórnun fiskveiða liggi fyrir í byrjun árs.
Greinargerð:
Það er nú ljóst, að þær reglur er settar hafa
verið, og eftir átti að fara á undanförnum
árum, til viðhalds þorskstofninum duga ekki til.
Sýnilegt er að þorskaflinn fer nokkuð fram úr
því marki er sett hefur verið með hliðsjón af
10 — ÆGIR