Ægir - 01.01.1980, Síða 23
áliti fiskifræðinga. Jafnvel þó þeir geti ekki
sannað sitt mál fullkomlega frekar en aðrir er
um þessi mál fjalla. Óneitanlega hafa fiski-
fræðingar nokkur rök fyrir áliti sínu, sem var-
hugavert er að vanmeta. Flest rök hníga að því að
ráðlegast muni reynast að haga sér í samræmi
við vitneskju þeirra. Vanmat fiskifræðinga á
þorskastofninum þýðir ekki annað en aukinn
afla í framtíðinni. Er það ekki það, sem að
er stefnt? Ofmat þeirra á stofninum veldur út-
gerðinni og þjóðinni ófyrirsjáanlegu tjóni. En
samviska þjóðarinnar allrar getur verið rólegri,
að hafa tekið þátt í þessum aðgerðum. Farsælast
væri að þessar aðgerðir nytu stuðnings þeirra
sem við þær búa. Hafa ber í huga að taka tillit
til atvinnu og skiptingu tekna og eigna, enn-
fremur byggðasjónarmiða. Þá ber að hafa í huga
að skerða sem minnst athafnafrelsi manna í
þessum aðgerðum.
IV. mál
Fjórðungsþing Sunnlendinga mælir með því að
farið verði eftir tillögum fiskifræðinga um nýt-
ingu kolastofnsins.
VI. mál
Fjórðungsþing Sunnlendinga ítrekar fyrri sam-
þykktir sínar varðandi:
1. Friðunarsvæði á Selvogsbanka „Frímerkið"
verði ekki stækkað, en togveiðar verði bann-
aðar með öllu sunnan þess allt út á fisk-
veiðilandhelgismörk.
2. Að togveiðar verði bannaðar frá áramótum
til 15. maí á svæði frá 22. lengdarbaug að
Þjórsárósum, 10 mílur frá landi, enda er
slíkt bann forsenda þess að línuveiðar megi
stunda með árangri á þessu svæði.
3. Leitað verði rækjumiða á djúpslóð fyrir
Suðurlandi.
4. Mótmæli við því að þorskanetaveiðar séu
háðar leyfum, frekar en aðrar þorskveiðar.
5. Að eftirlit með aflasamsetningu báta á
spærlingsveiðum verði hert og tekið til
athugunar hvort ekki ætti að banna slíkar
veiðar á grynnra vatni en 80-100 föðmum.
VIII. mál
Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til
Fiskiþings að veiðisvæði vestan við svonefnt
í,Frimerki“ taki gildi 1. janúar 1980 og verði
lokað fyrir öllum togveiðum til 31. maí 1980,
sama gildir um línu- og netasvæði vestur og
norður af Eldey.
Greinargerð:
Telja má með þó nokkrum rökum að togveiðar
sem voru b.annaðar frá 20. marz til 30. apríl í
ár á þessu svæði hafi komið Suðurnesjabátum
til góða og átt mikinn þátt í þeirri aflaaukningu
sem varð á vertíðinni. All mikill fiskur var á
þessu svæði og afli góður þegar því var lokað
30. apríl með reglugerð.
X. mál
Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til
Fiskiþings:
1. hvort ekki sé æskilegt að breyta síldveiði-
tímabili með tilliti til markaða og breyttra
vinnsluhátta,
2. ennfremur hvað varðar reknetaveiði, að
heildarkvótanum verði skipt niður á báta,
svo sem gert er með hringnótakvótann,
3. að gæðamat verði tekið upp á ferskri síld
svo sem á öðrum fiski.
III. Frá Qórðungssambandi fiskideOda á Norðuriandi.
IV. mál
Stjórnun fiskveiða og nýting fiskstofna.
„Þingið lítur svo á, að halda beri áfram
takmörkunum á þorskveiðum. Leitast verði við
að jafna sem mest hráefnisframboð yfir árið
og samræma veiðar og vinnslu.
Þingið telur ekki þörf að ganga lengra í
veiðitakmörkunum en gert hefur verið í ár og
bendir á að breyta þurfi reglum um hámark
þorsks í afla togara (togveiðiskipa), sem eru í
þorskveiðibanni, þannig að kostur verði á að
jafna leyfðu þorskmagni yfir allan tímann, sem
takmarkanir standa.
Þingið ályktar um takmarkanir þorskveiða í
net:
Á svæðinu Horn - Langanes hefjist veiðar í
þorsknet ekki fyrir 1. febrúar 1980. Helmingur
leyfðra neta verði tekinn úr sjó um helgar í
maímánuði.
Engar netaveiðar verði leyfðar á hrygningar-
svæðum sunnan og vestanlands í maímánuði
og helmingur leyfðra neta verði tekinn úr sjó
um helgar í aprílmánuði á þessu svæði.
Skipum, sem leyfi hafa fengið til loðnuveiða
verði ekki veitt leyfi til veiða í þorskfiskanet.
ÆGIR — 11