Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1980, Síða 29

Ægir - 01.01.1980, Síða 29
gildrur líka. Og Cabo Verde menn skyldu semsagt halda skipinu eftir eftir þetta 18 mánaða tímabil. Jafnframt yrði athugað um það að senda eitthvað af fiskvinnslutækjum. I fyrra var lokað nokkuð mörgum frystihúsum á Suðurnesjum og lagt var fram fjármagn sem átti að gegna því hlutverki að kaupa upp slík fyrirtæki, sem ekki hefðu lengur rekstrargrundvöll og þau gætu í mörgum tilfellum verið með sæmilegustu tæki m.a. frystitæki sem gætu komið að fullum notum þarna. Síðan var tillaga um það, að þar sem við þurfum að nota mikið af aðfengnu vinnuafli hér í fiskiðnað- inum og þar sem þarna er greinilega um að ræða duglegt fólk sem hefur þó að vísu ekki þjálfun í fisk- verkun, að til þess að flýta fyrir þjálfun í fiskverkun þá yrði fengið kvenfólk til þess að starfa í frysti- húsi hér heima. Það fólk bæri síðan þekkinguna sem það öðlaðist hér suðureftir, sem gæti komið þeim að góðu gagni í að koma sér upp alvöru fisk- iðnaði. Síðan var einnig tillaga um það að sölusamtökin hér réðu til sín menn sunnanað í starfsþjálfun, í gæðaeftirliti, sölumennsku og slíku. Það hefur verið markmið þróaðra þjóða hér á Vesturlöndum nú íallmörgáraðverja l%af þjóðar- tekjum í aðstoð við þróunarríkin. Það eru aðeins þrjú ríki í heiminum sem hafa staðið við þetta mark- mið og það eru Svíþjóð, Noregur og Danmörk. Svíþjóð er búin að leggja fram 1% af þjóðartekjum í þetta núna í nokkuð mörg ár, Danmörk ogNoreg- ur hafa náð þessu marki á síðustu árum. 1% af þjóðartekjum á þessu ári væri hér á íslandi rétt um 6 milljarðar króna. Við erum það langt frá þessu marki að við leggjum fram í þessu skyni á þessu ári 320 milljónir kr. eða rétt um 5% af einu Prósenti. Ég held að við séum þarna nokkuð langt frá því sem eðlilegt er og ég held að ef við eigum að auka þetta og auka það þannig að við gerum eitthvert gagn þá getum við ekki gert betur en að bæta við þessa fjárhæð þeim 160 milljónum króna sem talið er að það myndi kosta að framkvæma °fannefndar tillögur. 160 milljónir á ári í eitt og hálft ár, eða samtals 240 milljónir. Væntanlega væri svo að því loknu hægt að gera eitthvað meira °g veitti sjálfsagt ekki af því. Eg held að það sé okkur í raun og veru til nokkurs vansa hvað við höfum gert lítið í þessu og ég held að við getum á þessum stað gert miklu meira gagn heldur en nokkursstaðar annarsstaðar. Þarna er um að ræða að gera það nákvæmlega sama og við kunnum hér heima, ef til vill við nokkuð aðrar aðstæður en ég held að það séu engir færari um það heldur en við. Þetta er þjóð sem er tiltölulega lítið fjölmennari en við, þeir eru eitthvað á milli 350 til 400 þúsund. Þetta er ein af örfáum þjóðum þar sem það raunverulega sæist sem við gerðum. Ég vil af þessum sökum bera fram eftirfarandi tillögu: Þróunaraðstoð 38. Fiskiþing lítur svo á, að aðstoð íslendinga við þróunarþjóðir hafi verið í algjöru lágmarki. Nú vill svo til að Cabo Verde-búar hafa sérstak- lega beðið um aðstoð okkar við að koma upp fisk- veiðum og fiskvinnslu. íslendingar ættu að vera allra manna færastir um að gera gagn á þessu sviði. Fiskiþing skorar því á stjórnvöld að verða á myndarlegan hátt við þessari beiðni Cabo Verde- manna. Og að þarna sé gott tækifæri fyrir íslend- inga til að sýna kunnáttu sína og getu í þessum efnum. Aðrar ályktanir Fiskmat Ferskfiskmat. 38. Fiskiþing telur að ferskfiskmat hafi stuðl- að að bættri meðferð á þeim tegundum, sem fersk- fiskmatið tekur til. Samkvæmt þeirri reynslu leggur þingið til að allur fiskur, sem til manneldis fer verði metinn af ferskfiskmatinu svo og beitusíld. Aftur á móti telur þingið að umfang og kostnaður við ferskfiskmatið hafi orðið óeðlilega stórt hlut- fall af heildarkostnaði Framleiðslueftirlits sjávar- afurða. Þingið telur að þennan þátt Framleiðslu- eftirlitsins beri að taka til gagngerðrar endurskoð- unar. Ríkisskipuð nefnd vinnur um þessar mundir að endurskoðun reglugerðar um Framleiðslueftirlit sjávarafurða í heild og hefur að hluta kynnt þinginu tillögur sínar og virðast þær stefna að einföldun starfsins og færa það nær framleiðslugreinun- um þ.e. veiðum og vinnslu, sem þingið telur. eðli- legt, og gerir þingið ekki aðrar tillögur viðvíkjandi málinu að svo komnu. ÆGIR — 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.