Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 50

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 50
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur: Nýliðun íslenska þorskstofnsins Forsaga Upphaf þessa þáttar af hendi höfundar var að hann keypti stóra dós af niðursoðnum þorskhrogn- um í matinn, enda eru þau bæði ódýr og góður mat- ur. Kaupmaðurinn í Fjarð- arkaupi í Hafnarfirði sem alltaf er forvitinn um lífs- björg þjóðarinnar, vildi vita hve margir þorskar væru í dósinni ef svo má að orði komast. Það stóð á svari en loforð vargefið um betri upplýsingar næsta föstudag. Þá var það að rit- stjórnarfulltrúi tímaritsins Ægis benti mér á grein frá Hafrannsóknunum dönsku, sem á einfaldan hátt fjallaði um fjölda þeirra hrogna einnar hrygnu, sem að jafnaði náðu því að verða fullþroska. Lesandinn getur reyndar staldrað hér við um sinn og leyst gátuna. Svo einfalt er það. Ritstjórnarfulltrúinn, vestfirskur að kyni og trú- aður á þorskinn — það sé miklu meiri þorskur í sjón- um en fiskifræðingarnir vilji vera láta — veitti mér, sem af mætti reyni að halda uppi orðstír „kolleganna“ heldur betur lið. Fyrst var litið á málið með raunsæju mati ástað- reyndum hfsins, og síðan með tölulegum staðrevnd- um fyrir hvatningu fiskifræðings. Tölurnar eru fengnar að láni hjá þorskamönnum sem ég þakka holl ráð. Sjálfur hefi ég tilhneigingu til að líta á tölur sem stærðir og stærðarhlutföll, sem tala máli út- skýranlegra líkinga, en ekki aðeins sem nákvæmar tölulegar einingar, sem oft segja ekkert um eðli málsins. Snúum okkur nú að efninu eða nýtingu þorsk- hrogna fyrir nýliðun íslenska þorsksins. Sagan um þorskinn. íslenski þorskstofninn er í lágmarki þessi missirin og gildir það bæði um heildarstofninn og hrygningar- stofninn. Það er ekki vitað með vissu hve afföllin á þorskstofninum mega vera mikil án þess að af hljótist viðkomubrestur, en það er augljóst að eftir því sem hrygningarstofninn er minni þá er meiri hætta á viðkomubresti. Það hlýtur að valda áhyggj- um þegar á móti hverjum 7-8 kynþroska 7 ára þorskum eða eldri á íslandsmiðum árið 1970 komu 1-2 slíkir árin 1975 til 1979. Einnig skal bent á að hver kynþroska hrygna á íslandsmiðum hrygnir aðeins einu sinni á ævinni að öllu meðaltali. Það þýðir ekki að gera lítið úr þessu og t.d. benda á mikla frjósemi þorsksins þegar nýliðun er það sem máli skiptir. Það kann að koma óþægilega á óvart að þrátt fyrir milljónir hrogna (3-8 milljónir í hverri hrygnu) þá skila sér í raun sem fullþroska eða kyn- þroska fiskur að öllu jöfnu aðeins tveir slíkir sinn af hvoru kyni við eðlilegar aðstæður. Væri þessu ekki þannig farið þá stækkaði þorskstofninn stöðugt, sem er fjarstæða, eða hann hyrfi, sem er ekki eins mikil fjarstæða. Nýliðun kynþroska þorsks er því í raun ekki meiri en t.d. mannsins, heldur öllu fremur minni þegar litið er á fólksfjölgunina í heiminum. Þar kann þó að koma að vendipunkti einnig, en það er önnur saga og meiri. Hverju má þá ekki búast við þegar þorskurinn verður fyrir áföllum, sem eru mörgum sinnum meiri en maðurinn hefur nokkurn tímann orðið fyrir í styrjöldum eða farsóttum? Reiknidæmið um þorskinn Til þess að sannfæra lesandann betur um þessa eðlilegu nýliðun náttúrulegra dýrastofna eru niður- stöður þessu varðandi fyrir íslenska þorskinn á ár- unum 1960-1976 sýndar í meðfylgjandi töflu. Á þessum árum var stærð hrygningarstofnsins sam- kvæmt niðurstöðum fiskifræðinga, lauslega talið, 700 þúsund til 200 þúsund tonn. Þungi hvers fisks er lauslega áætlaður 5 kg að jafnaði, svo heild- arfjöldi þeirra var 140-40 milljónir fiska. Hrogna- fjöldi í hverri hrygnu er áætlaður 3 milljónir, en gæti hæglega verið hærri tala (4eða 5 milljónir). Nýliðun á 3ja ára fiski var u.þ.b. 100 til 300 milljónir fiska — meðalþyngd þeirra er um 1,1 kg — sem skiptast jafnt milli kynjanna. Fjöldi þeirra á hrygnu viðkomandi árgangs reynist í þessu dæmi aðeins að vera 3-15 fiskar. Þessi 3ja ára fiskur er ekki kynþroska, heldur verður hann það að jafnaði 7 ára. Sé gert ráð fyrir náttúrulegum dauðsföllum eingöngu (20% milli ára), þá standa eftir við 7 dro aldurinn I til 6 ftskar d 38 — ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.