Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1980, Side 56

Ægir - 01.04.1980, Side 56
í skipinu eru tvær hjálparvélasamstæður, önnur í vélarúmi en hin í hjálparvélarými framarlega á neðra þilfari. Hjálparvél í vélarúmi: Caterpillar, gerð 3408 TA, átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftir- kæli, 337 hö við 1500 sn/mín. Vélin knýr bein- tengdan Newage Stamford MC 534B riðstraums- rafal, 180 KW (225 KVA), 3x380 V, 50 Hz, og tvær Vickers 4525 V vökvaþrýstidælur, um Marco DC 26-2-P-211 deiligír, sem eru varadælur fyrir vökvaknúinn vindubúnað. Hjálparvél í hjálparvélarými: Caterpillar 3408 TA, átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftir- kæli, 337 hö við 1500 sn/mín. Vélin knýr bein- tengdan Newage Stamford MC 534B riðstraums- rafal, 180 KW (225 KVA), 3x380 V, 50 Hz, og er auk þess fyrir drift á fremri hliðarskrúfu um vinkil- gír frá Norgear af gerð KVIV-CB, niðurgírun 1.22:1 Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Frydenbo af gerð HS 60, hámarks snúningsvægi 12000 kpm. Stýrisvéln tengist Becker-stýri af gerð S-A 2000/270 F2. Skipið er búið tveimur Brunvoll hliðarskrúfum; að framan véldrifin skiptiskrúfa en að aftan vökva- drifin föst skrúfa. Tœknilegar upplýsingar: Fremri, gerð SPT VP 350 Afl 350 hö Hliðarkraftur 4200 kp Blaðafjöldi/þvermál ... 4/1300 mm Niðurgírun 4.125:1 Snúningshraði 357 sn/mín Dieselvél Caterpillar 3408 TA Afköst vélar 404 hö við 1800 sn/mín Aftari, gerð SPZ AP 500 Afl 500 hö Hliðarkraftur 5600 kp Blaðafjöldi/þvermál ... 4/1450 mm Niðurgírun 3.09:1 Snúningshraði 369 sn/mín Vökvaþrýstimótor Brueninghaus 900 CX- 8WP3 Afköst mótors 500 hö við 1140 sn/mín í skipinu eru þrjár skilvindur frá Alfa Laval, tvær af gerðinni MAB 103 B-24, sem eru til hreinsunar á smurolíu og dieselolíu, en sú þriðja er sjálfhreinsandi af gerðinni MAPX 204 TGT-24 og er fyrir svartolíu. Ræsiloftþjöppur eru tvær fra Espholin af gerð H-3S, afköst 17.1 m3/klst við 30 kp/cm2 þrýsting hvor þjappa. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar frá Semco, afköst 12000 m3/klst hvor blásari. og fyrir hjálparvélarými er einn 3000 m3/klst blásari frá Semco. Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir rafmótora og stærri notendur, en 220 V riðstraumur til ljósa og almennra nota í íbúðum. Fyrir 220 V kerfið eru tveir 40 KVA spennar 380/220 V. Rafalar tengjast samkeyrslubúnaði. í skipinu er 125 A, 3x380 V landtenging. í skipinu er austurskilja frá HDW af gerð TE 1- Tankmælikerfi er frá Peilo Teknikk A/S af gerð Soundfast, aflestur í vélgæzluklefa. Ferskvatns- framleiðslutæki er frá Atlas af gerðinni AFGf 0.5, afköst 1.5 tonn á sólarhring. Halon 1301 slökkvikerfi er bæði fyrir vélarúm og hjálpar- vélarými framskips. íbúðir eru hitaðar upp með vatnsmiðstöð, sem fær varma frá kælivatni aðalvélar og til vara eru tvö 9 KW rafelement. Fyrir heitt vatn er 400 1 hitakútur með tveimur 4.5 KW rafelementum- íbúðir eru loftræstar með rafdrifnum blásurum frá Semco, fyrir innblástur er einn 3000 m3/klst blásari með 30 KW vatnshitaelementi í loftrás, og fyrir útsog frá eldhúsi og snyrtingum eru tveir blásarar, 1000 og 970 m3/klst. Tvö vatnsþrýsti- kerfi frá Bryne Mek. Verksted af gerð 1840 eru fyrir hreinlætiskerfi, annað fyrir sjó en hitt fyrir ferskvatn, stærð þrýstigeyma 150 1. Fyrir hliðarskrúfu að aftan og vindubúnað eitt sameiginlegt vökvaþrýstikerfi með 2700 1 geym1 og áðurnefndum véldrifnum dælum; þ.e. sex dælur drifnar af aðalvél um deiligír og tvær varadælu1" fyrir vindubúnað drifnar af hjálparvél um gír. Fyrir átaksjöfnunarbúnað togvindna er rafknúin Vickers vökvaþrýstidæla. Fyrir sérhvern losunarkrana er sjálfstætt rafknúið vökvaþrýstikerfi, eitt með 46 KW rafmótor og tvö með 19 KW rafmótorum- Fyrir netsjárvindu er sjálfstætt rafknúið vökva- þrýstikerfi svo og sér raf-/vökvaþrýstikerfi fyrir slöngutromlur annars vegar og vökvaknúnar renni- lúgur í kæligeymum hins vegar. Tvær rafdrifnar vökvaþrýstidælur eru fyrir stýrisvél. Fyrir lestar eru tvö kælikerfi; annars vegar fyrir 232 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.