Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1982, Blaðsíða 14

Ægir - 01.07.1982, Blaðsíða 14
Aðalsteinn Sigurðsson: Tilraunaveiðar með dragnót í Faxaflóa 1981 Vorið 1981 samþykkti Alþingi breytingu á lög- um um veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands þannig að banni við dragnótaveiðum í Faxaflóa var aflétt. í samræmi við þessa lagabreytingu veitti sjávarút- vegsráðuneytið 6 bátum leyfi til skarkolaveiða með dragnót í flóanum frá miðjum júlí til nóvemberloka 1981. Leyfishafar urðu að uppfylla viss skilyrði, svo sem að möskvastærð í poka og belg nótarinnar yrði ekki undir 155 mm og að bol- fiskafli færi ekki yfir 15% af heildarafla á viku hverri. Fimm bátanna voru þeir sömu og árið á undan (Aðalsteinn Sigurðsson 1980), en við bættist Reykjaborg RE 25, 29 rúml. bátur. Skarkolanum varð að landa hjá þremur vinnslu- stöðvum, sem hafa heppilegar vélar til að flaka kolann. Þær eru ísbjörninn í Reykjavík, Sjöstjarn- an í Innri-Njarðvík og Skipaskagi á Akranesi. Fylgst var með veiðunum eftir því, sem við varð komið ýmist af eftirlitsmönnum eða starfsmönn- um Hafrannsóknastofnunarinnar. Þar að auki fylgdist sjávarútvegsráðuneytið daglega með löndunum bátanna. Leyfilegt var að stunda veiðar utan heilu lin- unnar, sem dregin er um flóann á 1. mynd. Hins vegar fóru bátarnir aldrei norður fyrir brotnu línuna. Mikið af því svæði, sem veiðar voru leyfðar á, er óhæft til dragnótaveiða vegna þess að botninn er slæmur (Aðalsteinn Sigurðsson 1980). Fyrsta tafla gefur yfirlit yfir dragnótaaflann úr Faxaflóa í júli til nóvember 1981. Þar má sjá hvernig heildaraflinn frá dragnótavertiðinni skiptist á milli tegunda og svæða bæði í þyngd og hundraðshlutum, einnig er meðalafli í róðri sýndur. í næst síðustu linu töflunnar og á 2. mynd má sjá, að mestallur aflinn eða 89,3% var skarkoli. Lúða var 3,6% ýsa 2,0%, þorskur 4,1% og annar fiskur 0,9%. Það er því augljóst að Þa^r var um skarkolaveiðar að ræða eins og 0 ætlast, þar sem aðeins 10,7% veiddust af ö r ^ tegundum. Það liggur einnig í augum uppi. a smál. af ýsu og 50 smál. af þorski hafa lítiljáhfl . stofna þessara tegunda. Lúðustofninn hefir verið ofveiddur, en það er ekki frekar dragn0^ kenna en öðrum veiðarfærum. Sýnt hefir ^v0 fram á, að stofninn nær sér ekki nema me ,: víðtækum friðunaraðgerðum, að þær eru ekki framkvæmanlegar (Aðalsteinn Sigurðsson 19'}^ Á 2.—6. töflu er afli hvers mánaðar sun 350 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.