Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 19

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 19
Selskinn lögð inn hjá SÍS hafa verið eitthvað innan við þúsund stykki af landselskópum í ár og það má ætla að þeir kópar hefðu verið veiddir hvort sem var. Það má segja að landselskópaveiðin sé búin að vera, og ef hætt verður að greiða ein- hverskonar uppbót fyrir veidda kópa, þá leggst þetta alveg niður. Ákveðið má halda því fram, að nógu miklar sannanir séu til fyrir því að hringormatíðni í fiski úti fyrir ákveðinni strandlengju er í beinu sam- hengi vi selafjölda á þessari strönd. Hitt er svo annað mál, að við munum sitja uppi með hring- orm, jafnvel þó að selum fækki eitthvað. Það eina sem fyrir mönnum vakir er að snúa dæminu við, að i staðinn fyrir að hafa stöðugt vaxandi sela- stofn, þá sé hægt að fá hann til að minnka. Ályktun, sem kemur frá Fiskiþingi um að fækka þurfi sel, hún hefur töluvert mikið gildi. Hún mun verða rædd víðar heldur en í ykkar hópi. Við verð- um að muna það að bændur landsins eiga þessi hlunnindi. Þó að við leigðum heilan flota til þess að veiða sel, þá komumst við ekki framhjá því, og það verður aldrei neinn verulegur fjöldi sela, sem skotinn er út á sjó. Að mínum dómi er um tvær leiðir að velja. Það er leið, sem að kalla mætti húsdýraleið, þ.e.a.s. að þetta séu nytjar sem sjálfsagt er að nýta af fullri al- vöru. Þannig munum við halda áfram að leita leiða til að nýta kjöt. A.m.k. þrír refabændur gáfu sel- kjöt i sumar og tillaga hefur komið fram að frysti- hús eignuðust hakkavélar og framleiddu pönnu- fryst refafóður. Við erum auðvitað ekki að leita að hámarksafrakstri, eins og bændur vildu kannske gjarnan gera. Hámarksafrakstur þýddi að það yrðu sem flestir selir. Hitt er meindýraleið. Að setja lög, þar sem selur væri flokkaður með mein- dýrum. Ef við getum fengið samstarf við landeig- endur, að þarna séum við að nýta sérstaklega útsel- inn, því útselurinn er heldur illa séður. Flestir bændur fagna því að útsel sé fækkað, en óneitan- lega eru sumir bændur á því að hafa sem flesta landseli í trausti þess að einhverntímia verði skinn- in aftur verðmæt. Ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra og ég skrif- aði þetta ekki niður. Ég vil benda á, að við höfum allmiklar upplýsingar undir höndum um málefnið sem við getum miðlað ykkur af, ef þið viljið. Takk fyrir Hjálmar R. Bárðarson: Siglingamálastofnun ríkisins og öryggismál sjómanna Siglingamálastofnun ríkisins var sett á stofn með lögum nr. 51 frá 1970, og í þeim lögum er gerð grein fyrir verksviði stofnunarinnar þá. Síðan hafa, reyndar með sér- lögum og með nýjum og breyttum alþjóðasam- þykktum, stcfnuninni verið falin fleiri verkefni en greint er frá i lögunum frá 1970. En grundvöllur þessarar stofnunar er miklu eldri en frá 1970, því að með þeim lögum tók þessi nýja stofnun við þeim verkefnum, sem fram til þess tíma höfðu verið falin Skipaskoðun ríkisins og Skipaskráningarstofu ríkisins, ásamt skipamæl- ingum, en þessum stofnunum höfðu áður verið fal- in verkefni, bæði með sérstökum lögum og regl- um, en einnig með sérstökum ákvörðunum ráðu- neyta. Skipulagsbreytingin, sem gerð var með nýju lög- unum frá 1970, er raunverulega í meginatriðum sú, að þessar sérstöku stofnanir voru sameinaðar formlega í eina stofnun, Siglingamálastofnun ríkisins og henni falin formlega þau verkefni öll, sem áður voru falin sérstofnunum með lögum og reglugerðum. Samtímis var sú breyting gerð, að þessi nýja stofnun heyrir undir sama ráðuneyti, samgönguráðuneytið, en heyrði áður að nokkru undir fjármálaráðuneytið. Segja má, að Skipaskoðun ríkisins eigi sér all- langa sögu. Fyrstu lög, sem gefin voru út um eftir- lit með skipum, voru nr. 25 árið 1903. En sam- kvæmt lögum nr. 37, 19. júli 1922, um eftirlit með skipum og bátum og tilskipun þar um, útgefinni í Amalíuborg 20. nóvember 1922, er hægt að segja, að skipaskoðun hafi hafist hér á landi. íslensk skipaskoðun er því 60 ára gömul árið 1982. Stofnunin hefur, frá upphafi, þróast samhliða ÆGIR — 627
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.