Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 52

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 52
Sunnutindur SU 59 15. desember á s.l. ári kom skuttogarinn Sunnu- tindur SU 59 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Djúpavogs. Skuttogari þessi, sem áður hét Kapp Linné, er keyptur notaður frá Noregi, og er smíð- aður hjá Kaarbos Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi árið 1978 og er nýsmíði nr. 88 hjá stöðinni. Sunnutindur SU er smíðaður hjá sömu stöð eftir sömu frumteikningu og Skafti SK (smíðaður 1972), en fyrirkomulag breytt. Skipið er upphaflega útbúið bæði sem ísfisk- og heilfrystitogari með slœgingarvél, og þremur 5 t plötufrystitækjum. Þá má nefna að skipið hefur flokkunartáknið EO, þ.e. uppfyllir kröfur um tímabundið vaktfrítt vélarúm. Eftir að skipið kom til landsins voru gerðar nokkrar breytingar á búnaði og má þar nefna: Tekin úr skipinu frystitæki og slægingarvél; sett í skipið ísvél og komið fyrir ísgeymslu; og bætt við tækjum í brú. Sunnutindur SU er í eigu Búlandstinds h.f. á Djúpavogi. Skipstjóri á skipinu hefur verið Guð- mundur ísleifur Gíslason, en Stefán Aspar frá október s.l., og 1. vélstjóri Eðvald Ragnarsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Ingólfur Sveins- son. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Det Norske Veritans í flokki SSlAl, Stern Trawler, EO, Ice C, MV. Skipið er skut- togari með tveimur þilförum stafna á milli, skut- rennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri hluta efra þilfars og brú aftantil á hvalbaksþilfari. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hágeyma fyrir brennsluolíu; fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu (framantil) og ferskvatn (aftantil); vélarúm með síðugeymum; og skutgeyma aftast fyrir brennsluolíu. Fremst í vélarúmi er Ulstein andveltigeymir. Mestalengd ........................... 45.57 m Lengd milli lóðlína .................. 39.65 m Breidd ................................ 9.20 m Dýpt að efra þilfari .................. 6.50 m Dýpt að neðra þilfari.................. 4.30 m Eigin þyngd ............................ 594 t Særými (djúprista4.25 m) ............... 840 t Burðargeta(djúprista4.25 m) ............ 246 t Lestarrými (kælilest)................... 255 m3 Lestarrými (frystilest) ................. 35 m3 Brennsluolíugeymar ..................... 113 m3 Ferskvatnsgeymar ........................ 38 m3 Sjókjölfestugeymir ...................... 12 m3 Andveltigeymir (brennsluolía)............ 24 m3 Ganghraði (reynslusigling)............. 14.1 hn Rúmlestatala ........................... 298 brl Skipaskrárnúmer........................ 1603 Fremst á neðra þilfari er geymsla og keðjukass- ar, en þar fyrir aftan íbúðir, s.b.-megin fremst, en vinnuþilfar er b.b.-megin og aftan við íbúðarými með fiskmóttöku aftast. Aftan við fiskmóttöku er stýrisvélarrúm fyrir miðju, en til hliðar við fisk- móttöku og stýrisvélarrúm eru veiðarfærageymsl- ur og vélarreisnir. Fremst á efra þilfari er lokaður hvalbakur, en fremst í honum er geymsla og þar fyrir aftan íbúð- ir. Aftan við hvalbak er togþilfarið. Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist hún í fjórar bobbingarennur, sem ná fram að hvalbak, þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegn- ar og tilbúnar til veiða. Aftarlega á togþilfari, til 1I tl'lllu, Sunnutindur SU 59, myndin er tekin þegar skipið bar nafnið Kapp Linné. 660 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.