Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 29

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 29
lögum til endurbóta. Skýrsla þessi var samin eftir rækilega úttekt og var kynnt sem trúnaðarmál á fundi með fulltrúum hagsmunaaðila í sjávarútvegi í síðustu viku. Þótt efni skýrslunnar sé að nokkru leyti trúnaðarmál, get ég þó upplýst, að ástand ferskfiskmats er því miður mjög slæmt. Matsnið- urstöður eru það óáreiðanlegar, að ekki er unnt að byggja á þeim samanburð á gæðum afla eftir veiðarfærum, stöðum, árstímum, landshlutum o.fl. Nafni minn Blöndal skrifaði nýlega ágæta grein í Ægi um tjón það, sem skapast vegna skemmda á hráefni. Hann reiknaði út, að tjón vegna gallaðs hráefnis gæti numið um 200 milljón- um á ári, og byggði hann þá útreikninga sína á matsniðurstöðum, en eins og áður getur, eru þær með öllu óáreiðanlegar og endurspegla gæði hrá- efnisins aðeins í hluta tilfella. Sennilegast er, að tjónið sé mun meira. Þegar hráefnisgallarnir koma fram á afurðum, hafa þeir í sumum tilfellum margfaldast hvað þýðingu og tjón varðar. Sem dæmi má nefna, að úttekt á vegum Handbókar um fiskvinnslu og fisk- mat, sem nú er verið að vinna að á Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins, sýnir, að milli 70 og 80“7o af göllum í saltfiski á Reykjavíkursvæðinu á vertíð 1982 stafar frá hráefninu með nokkuð óyggjandi hætti. Bætt hráefnisgæði. Þegar rætt er um endurbætur á gæðum hráefnis, koma óteljandi atriði til greina. Stytting togtíma og útivistartíma, net höfð takmarkaðan tíma í sjó, blóðgunarkör fyrir vafasaman fisk, rétt ísun og lögn í kassa, minni geymslutimi í landi og betri ísun o.s.frv. í raun vita sennilega velflestir, hvað þarf að gera til þess að sem bestur fiskur fáist und- ir hnif. Vandamálið er aftur á móti það, að flest atriði, sem til bóta horfa, kosta annaðhvort pen- inga beint eða leiða til minni afla. Ennþá önnur atriði má lagfæra með hirðusemi og natni, en slíkt kostar líka eitthvað yfirleitt. Þegar rekstur stendur í járnum eða er með tapi, er augljóst, að oft er erf- itt um vik. Hinsvegar má vera ljóst, að aukin sölu- verðmæti afurða ættu að koma á móti kostnaði við endurbætur í gæðum hráefnis. En stundum er leiðin löng frá seljendum fersks fisks til tekna af afurðasölu, svo erfitt er að átta sig á því, hvernig það kemur seljendur fisks til góða. Mér virðist útilokað að ætla sér að binda öll þau atriði í reglum, sem geta orðið fiski til óþurftar. Slíkt er dæmt til að mistakast. Eðlilegasta leiðin er, að fiskverð miðist alfarið við hráefnisgæði, þ.e. endurspegli nákvæmlega verðmæti fisksins fyrir fiskvinnsluna. Þá finna menn beint fyrir því, þegar ÆGIR —637
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.