Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 31

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 31
4. Yfirstjórn matsmála verði þannig, að það sé ekki á hendi eins manns að meta það, hvort breytingar á reglum um mat séu nauðsynleg- ar eða skynsamlegar. Um afurðamat. Þegar ákveða þarf flokkunarreglur fyrir afurðir, er það augljóst mál, að þau atriði verður að taka upp við samningaborð eða með beinum tengslum við markaði. Mjög óeðlilegt er, að opinber stofnun annist slíkt. Skynsamlegast er, að samtök fram- leiðanda standi að gerð matsreglna fyrir afurðir eins og í reynd tíðkast í frystiiðnaði, en opinbert mat komi inn í dæmið varðandi kröfur um hrein- læti og hollustu svo og varðandi erlendar reglur. í Danmörku t.d. eru matsreglur fyrir afurðir samdar af nefnd, sem í eiga sæti sex fulltrúar atvinnulífsins og tveir frá hinu opinbera. íslenskt afurðamat stendur á tímamótum. Um áratugi hafa verið í notkun aðferðir og reglur, sem hafa þróast mann fram af manni, og enginn veit nákvæmlega hvernig þær urðu til í upphafi. Það má segja, að séríslensk flokkun hafi þýðingu með- an henni er haldið óbreyttri frá ári til árs, og við- skiptavinir ganga út frá þeim í viðskiptum. Nú hafa aðstæður til sjós og í landi breyst svo mikið, að gamla kerfið stenst nýjum tímum ekki snúning. Þess vegna ber að endurskoða þessi mál með þátt- töku hagsmunaaðilanna sjálfra. BÓKAFREGN Breskir togarar á íslandsmiðum 1889—1916 Komin er út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi, bók- in: Breskir togarar á íslandsmiðum 1889—1916 eftir Jón Þ. Þór, sagnfræðing. Þar sem Ægi barst þessi bók rétt sem blaðið var að fara í prentun, gefst ekki tækifæri nú til að fjalla um bókina, sem lesendum Ægis mun eflaust þykja fróðleg lesning um sögulegt efni, sem allir er við sjávarútveg fást hafa efalítið áhuga á. Þótt ekki sé nema flett bókinni, þá er sjáanlegt, að þarna er saman kominn mikill fróðleikur um upphaf bresku togveiðanna hér við land, en höfundur telur þær hafa hafizt 1889 en ekki 1891 eins og sagnfræðingar hafa hingað til haft fyrir satt. Þá eru sjónarmið Jóns Þ. Þór nokkuð önnur um Fisk- veiðideilurnar 1896—97 en almennt gerist og þá ekki síð- ur um dansk-brezka samninginn 1901 og mun áreiðan- lega mörgum þykja forvitnilegt að kynnast sjónarmiðum Jóns, sem hann rökstyður mjög rækilega. Þá eru í bókinni kaflar um veiðisvæði brezku togar- anna á árunum fram að 1894 og siðan frá 1894—1916 og úthaldið og aflabrögðin og fylgja þessum köflum kort og töflur yfir heildaraflabrögð brezku togaranna á tímabil- inu 1904—1916. Þá fjallar Jón um dönsku landhelgisgæzluna og einnig þar fer hann aðrar götur en menn hafa almennt farið í skrifum um dönsku gæzluna. Það má kannski segja svo, að það sé athyglisvert og Jón ríði þar á vaðið, að nú eru að vaxa upp sagnfræðingar, sem ekki eru þungt haldnir af Danahatri heldur reyna að gera sér grein fyrir málum með tilliti til tímans, sem um er að ræða og allra að- stæðna. Það er vissulega ánægjulegt að kynnast bók um þessi hjartans mál okkar íslendinga, fiskveiðideilur og framkomu Dana og þó einkum Breta í þeim efnum, þar sem höfundur heldur rósemi sinni og reynir að ræða málin hlutlaust og stjórnast ekki af blindu hatri á þess- um þjóðum, og heldur þó vel á málstað okkar íslend- inga. Þá er kaflinn um samskipti brezku togaramann- anna við landsmenn athyglisverður. Bók Jóns Þ. Þór skiptist í sjö meginkafla og margar undirgreinar eða sem hér segir: Aðfararorð. Viðfangsefni og markmið. Heimildir. Fyrri rannsóknir. I. kafli Aðdragandi og fyrstu tilraunir brezkra skipa til botnvörpuveiða við ísland. Brezk gufuskip hefja veiðar á íslandsmiðum. Veiddu brezk gufuskip með botnvörpu á íslandsmiðum sumarið 1889? Landhelgi íslands árið 1889 og fyrstu lög um bann við botnvörpuveiðum.... Framhald á bls. 654. ÆGIR —639
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.