Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 12

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 12
ávallt reynzt skammgóður vermir, þar sem þær geta haft, og hafa haft, þau áhrif í för með sér, að alþjóðleg verkaskipting og viðskipti dragast enn frekar saman og þar með eykst atvinnuleysi. Nú blandast víst engum hugur um, hvílíkt áfall það yrði íslenzku efnahagslifi, ef slík verndarstefna næði að gera sig almennt gildandi hvað varðar við- skipti með sjávarafurðir. Vissulega er farið að bera á þróun i þessa átt hjá nokkrum af okkar við- skiptaþjóðum. Nauðsynlegt er að vinna gegn þessari þróun með öllum tiltækum ráðum á alþjóðlegum vettvangi. Jafnframt ber okkur að forðast eftir mætti að gefa á okkur höggstað í þessu efni m.a. með því að grípa sjálfir til ráða, sem túlka má sem brot á samningsbundnum skuldbindingum við viðskipta- þjóðir okkar. Versnandi árferði í atvinnumálum nágranna- og viðskiptaþjóða okkar er þegar farið að valda okk- ur búsifjum. Staðnað og i mörgum tilfellum lækk- andi verðlag sjávarafurða á erlendum mörkuðum er farið að segja til sín í óhagstæðum við- skiptakjörum og erfiðleikum íslenzkra fyrirtækja að standa við skuldbindingar sínar. Að hluta má rekja hið dökka útlit, sem við blasir til óhagstæðrar þróunar fiskafla. Samkvæmt áætl- un Fiskifélagsins verður heildarafli á þessu ári ein- ungis milli 760—770 þúsund lestir, samanborið við 1.440 þús. lestir á s.l. ári. Þetta er vissulega mikið áfall. Hér gætir að sjálfsögðu mest, að loðnuaflinn á þessu ári er einungis um 13 þús. lestir, en var lið- lega 640 þús. lestir á s.l. ári. Að vísu var hlutdeild loðnu- og loðnuafurða á s.l. ári einungis 12% heildarverðmætis. Engu að síður munar um minna. Þá er þess að gæta, að verðlagsþróun mjöls og lýsis hefur verið okkur afar óhagstæð á árinu, svo óhagstæð raunar, og er sárgrætilegt til þess að vita, að við hefðum vart haft efni á að veiða og vinna loðnu, þótt ástand loðnustofnsins hefði leyft svipaðar veiðar og á s.l. ári. Ástæður fyrir þessu lága verð lýsis og mjöls er einkum að leita í minni eftirspurn annarsvegar og aukna framboði hins- vegar. Um annan fiskafla gildir nokkuð öðru máli, þótt óvissa sé nú mikil á skreiðarmörkuðum og erfið- leikar augljósir á að nýta leyfilegan síldarafla til fulls. Að mati Fiskifélagsins mun botnfiskafli einungis minnka um 6—7% á þessu ári borið saman við metárið í fyrra, og verður því sem næst 670 þús. lestir á móti um 715 þús. lestum þá. Það er því ekki hægt að tala um aflabrest á botnfiskveiðum, þegar á heildina er litið. Samt er aflasamsetningin óhag- stæðari en á s.l. ári. Ætla má, að þorskafli dragist saman um 19% frá í fyrra og verði um 375 þús. lestir samanborði við 460 þús. lestir á s.l. ári. Þannig vega ódýrari og að mörgu leyti verr seljan- legri fisktegundir á móti, þegar á heildaraflann er litið. Nokkur aukning verður á ýsu- og ufsaafla, svo og á karfa, sem er kapituli útaf fyrir sig, þegar litið er á ástand karfastofnsins. Mun láta nærri, að karfaafli íslendinga fari í 100 þús. lestir á þessu ári. Þá er mikil hlutfallsleg aukning á grálúðuafla. Til allrar óhamingju veiddist mest af grálúðu á 620 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.