Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 48
NÝ FISKISKIP
ísleifur VE 63
25. október á s.l. ári bættist við flotann nýtt
fiskiskip er ísleifur VE 63 kom í fyrsta sinn til
heimahafnar sinnar, Vestmannaeyjar. Skip þetta,
sem keypt er notað frá Færeyjum, og áður bar
nafnið Durid, er smíðað hjá Skála Skipasmiðju í
Skála í Færeyjum árið 1976 og er smíðanúmer 28
hjá stöðinni.
Skipið er tveggja þilfara, sérstaklega byggt til
nóta- og flotvörpuveiða, og er búið sjókæligeym-
um (RSW). Eftir að skipið kom til landsins voru
gerðar ýmsar breytingar á skipinu og má þar
nefna: Komið fyrir síðulúgum fyrir netadrátt og
netalagningu, sett í skipið línu- og netavinda,
komið fyrir búnaði til meðhöndlunar á fiski í milli-
þilfarsrými og bætt við tækjum í brú.
ísleifur VE er í eigu samnefnds sameignarfélags í
Vestmannaeyjum. Skipsstjóri á ísleifi VEerGunn-
ar Jónsson og 1. vélstjóri Kári Birgir Sigurðsson.
Framkvæmdastjóri útgerðar er Leifur Ársælsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki ij( 1A1,
Deep Sea Fishing, Ice C,Ö& MV. Skipið er tveggja
þilfara fiskiskip búið til nóta-, flotvörpu- og neta-
veiða, með perustefni og gafllaga skut, og tveggja
hæða yfirbyggingu aftantil á efra þilfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með þremur
vatnsþéttum þverskipsþilum i eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu ásamt
hliðarskrúfurými; lestarými, sem skiptist í kassa-
lest fremst en þar fyrir aftan sex sjókæligeymar;
vélarúm með brennsluolíugeymum í síðum; íbúðir
afturskips (káeta) og aftast skuthylki fyrir fersk-
vatn. Undir lestarými eru botngeymar fyrir
brennsluoliu, en aftan við kassalest er asdikklefi.
Að framan liggja hliðarskrúfugöng í stafnhylki, en
að aftan liggja hliðarskrúfugöng undir káetu.
Mestalengd .......................... 44.71 m
Lengd milli lóðlína.................. 38.84 m
Breidd ............................... 9.00 m
Dýptaðefraþilfari .................... 6.70 m
Dýpt að neðra þilfari................. 4.30 m
Mestadjúprista(v/styrkleika) ......... 4.90 m
Eiginþyngd............................. 527 t
Særými(djúprista4.90m) ............... 1190 t
Burðargeta(djúprista4.90m) ............ 663 t
Lestarými (kassalest).................. 105 m3
Lestarými (sjókæligeymar).............. 405 m3
Brennsluolíugeymar .................... 106 m3
Ferskvatnsgeymar ....................... 15 m3
Sjókjölfestugeymir ..................... 29 m3
Rúmlestatala .......................... 428 brl
Ganghraði............................... 12 hn
Skipaskrárnúmer....................... 1610
Fremst á neðra þilfari er geymsla ásamt
keðjukössum, en þar fyrir aftan er milliþilfars-
rými. Aftan við milliþilfarsrýmið eru íbúðir og aft-
ast er nótakassi.
Á efra þilfari, rétt aftan við skipsmiðju, er þil-
farshús og yfir því er brú (stýrishús) skipsins. í þil-
farshúsi eru íbúðir. Framarlega á efra þilfari, b.b.-
megin, er niðurgangskappi, og nokkru aftar er
bipodmastur með tveimur bómum. S.b.-megin á
efra þilfari, rétt aftan við bipodmastur, er aðal-
snurpigálgi og aftur við yfirbyggingu er aftari
snurpigálgi. Nótakassi er s.b.-megin og aftan við
yfirbyggingu, og aftast á efra þilfari eru toggálgar
með sambyggðu bipodmastri. Ratsjármastur er
aftast á brúarþaki, sambyggt skorsteini.
Vélabúnaður:
Aðalvél er frá Nohab, gerð SF 18 VS-F, átta
ísleifur VE 63. Ljósm.: Sigurgeir Jónasson.
656 — ÆGIR