Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 17

Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 17
Björn Dagbjartsson: Um selveiðar 1982 Góðir þingfulltrúar. Það var sagt við mig einu sinni í sumar, að sjaldan hefði nokkur nefnd verið skömmuð önnureins ósköp eins og þessi hringormanefnd. Ég veit að það hefur ekki farið framhjá neinum. Nú, eins og gerist þegar deilumál verða svona heit, þá hirða menn oft lítið um það að afla sér þeirra staðreynda, sem að prýða hvern málflutning og það var svo komið að það var gjörsamlega von- laust orðið að koma á framfæri leiðréttingum á þessum fréttum öllum saman. Ég veit, að það þarf ekki að skýra út fyrir ykkur hversvegna ráðist var í það að reyna að auka veiði á sel í sumar, né heldur samhengið milli sela og hringorma. Þessi stóri hringormur, hann heitir raunar sel- ormur, og það er raunar galli að við skulum ekki hafa tekið upp þá nafngift áður. Hann heitir á latínu Phocanema decipions — selormur, hinn ósjáanlegi selormur — og það er engin ástæða til annars en að kalla kvikindið selorm. Það eru til fleiri hringormar. Það er til hringormur, sem er mun smærri og ljósari, stundum kallaður síldar- ormur. Hann getur notað sér hvali, jafnvel sjó- fugla, sem lokahýsla, en það er alveg ljóst að sel- ormur verður hvergi kynþroska nema í maga sels. Það hefur aldrei fundist, þrátt fyrir mikla leit, kyn- þroska selormur í nokkurri ajtnarri skepnu. Hring- ormur er alltaf dauður eftir rjokkrar klukkustundir í frosti, hann deyr í saltfiski mjög fljótt og hann þolir ekki einu sinni hálfþurrkun. Hringormanefndin var sett á stofn haustið 1979 sem framhald af annarri nefnd, sem að Fiskifé- lagið átti frumkvæði að á árinu 1976. í þessari nefnd sitja auk mín þeir Hjalti Einarsson, Árni Benediktsson, Þorsteinn Gíslason, Guðjón B. Ólafsson og Friðrik Pálsson. Nú er einum nefndar- funda nýlokið. Ég get aðeins sagt ykkur frá því, að þar var lagt til að leitað yrði eftir samþykki sam- takanna um að haldið yrði áfram greiðslu veiði- verðlauna. Þá var samþykkt að veita þó nokkuð miklu fé í það að reyna nú enn einu sinni að hvetja til rannsókna á því að finna orm og fjarlægja úr fiskflökum. Þetta starf mun verða unnið bæði hér heima og eins vestan hafs. Þá get ég sagt ykkur frá því að það er i gangi, eins og sjávarútvegsráðherra kom reyndar inn á í gær, vinna við að semja frum- varp til laga um selveiðar, þar sem hugmyndin er að selveiðar og öll þau mál heyri undir sjávarút- vegsráðherra. Sjávarútvegsráðherra hefur áhuga á því sem sjávarútveginum er fyrir bestu og ber hans hag fyrst og fremst fyrir brjósti. Hinsvegar mun þrýstingurinn utan frá hafa sitt að segja, ef sjávar- útvegsráðherra hefði vald til að stöðva selveiðar. í þessu lagafrumvarpi verður að taka tillit til ýmislegs, og það er eitt sem við verðum að muna, að þetta eru fyrst og fremst hlunnindi og þetta verður ekki gert nema með fullri virðingu fyrir eignarétti á landi. það verður væntanlega ein grein i þessu frumvarpi að hefjast á þessa leið: ,,Land- eiganda er einum heimilt að veiða sel í sínu landi og 115 metra frá stórstraumsfjöruborði“. Þetta eru landslög, sem ekki verður breytt. Við höfum tekið á móti töluvert á fjórða þúsund sýnum og verða þau sennilega upp undir 4 þúsund, fyrst og fremst vegna þess að útselskópaveiði geng- ur mjög rösklega um þessar mundir. Ég get vel Nýfœddur útselskópiir ÆGIR —625
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.