Ægir - 01.11.1984, Side 20
Þótt útlitið varðandi ýsustofn-
inn virðist þannig ekki eins dökkt
og aflaminnkun gæti gefið til
kynna, standast spár frá í fyrra um
þróun afla og stofnstærðar ekki
óbreyttar lengur vegna áður-
nefnds ofmats á yngri árgöngum.
Nú er talið að hrygningarstofn og
heildarstofn hafi verið ofmetnir
sem svarar til tölu á bilinu 15—
20%.
Ástæður þessa ofmats eru eftir-
farandi: Árgangurinn frá 1980 var
ofmetinn í fyrra og talinn vera
töluvert yfir meðalárgang að
stærð. Þá var um nokkurt ofmat á
árganginum frá 1979 að ræða en
það kemur meira á óvart þar sem
sá fiskur kom inn í veiðina í fyrra
sem fjögurra ára og þar með talið
að um stærð hans lægi nokkuð
haldbær vitneskja.
1.2. Árgangaskipan
Árgangurinn frá 1975 (9 ára)
sem var nokkuð undir meðallagi
er nú því sem næst úr sögunni, en
hlutur hans var 2% í afla. Stóri
árgangurinn frá 1976 (8 ára) var
sem áður sagði um 35% af afla.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
hann fari mjög þverrandi og verði
um 15% í afla hvað þunga varðar
en innan við 10% í fjölda.
Árgangurinn frá 1977 (7 ára) er
nú talinn nokkuð yfir meðalár-
gang og hefur mat á honum
heldur færst niður þar sem hann
skilaði sér inn í veiðina í nokkuð
minna mæli í ár heldur en 76
árgangurinn, en ífyrra voru þessir
árgangar nær jafnir að fjölda í
veiði. Árgangurinn t'rá 1978 (6
ára) var 24% í veiði og er talinn
vera nokkuð undir meðalárgangi.
Hlutur fimm ára fisks frá 1979
virðist ekki meira en 6% í veiði.
Það hlutfall bendir til smæsta ár-
gangs sem sést hefur í veiðinni
um áratuga skeið. Þar sem þetta
hlutfall hans í afla bendir til
árgangsstærðar sem er svo langt
fyrir neðan allt sem áður hefur
þekkst, hefur við framreikninga
verið gert ráð fyrir að hann eigi
enn eftir að skila sér og hlutur
hans í veiði næsta árs verið sett
13%. Þrátt fyrir slíka bjartsýni er
árgangurinn samt metinn mjög
lítill. Stærðarmat á 1980 árgang-
inum (4 ára) er nú meðalárgangur
og er um leið það bjartasta sem er
í sjónmáli af árgöngum ýsustofns-
ins þótt vonir um hann hafi
brugðist að töluverðu leyti sem
áður sagði.
Skal þá vikið að væntanlegum
nýliðum sem enn eruekki komnir
inn í veiði. Samkvæmt athugun-
um, óháðar veiðum, er 1981
árgangurinn (3 ára) talinn frekar
lélegur og árgangurinn frá 1982
(2 ára) mjög lélegur. Seiðaathug-
anir benda til þess að árgangarnir
frá 1983 og 1984 séu skárri, þó
sérstaklega árgangurinn frá í ár.
1.3. Tillögur um afíahámark 1985
Reiknuð hafa verið útáhrif mis-
munandi ársafla á ýsustofninn í
nánustu framtíð. Þessir fram-
reikningar eru byggðir á þeim
forsendum um árgangastærðir og
nýliðun sem nefndir hafa verið að
framan og meðalnýliðun eftir
þetta ár og hefur V.P. greiningin
verið notuð við útreikningana.
(Tafla 1.)
Þegar áhrif mismunandi afla á
ýsustofninum eins og hann er nú
talinn en tekin með í reikninginn,
kemur í Ijós, að hrygningarstofn-
inn minnkaróhjákvæmilega tölu-
vert á næstu árum, jafnvel þótt
farið sé niður í mjög lítinn afla, en
það er í samræmi við fyrri spár.
Með óbreyttri sókn á næsta ári
er áætlað að hinn veiðanlegi
stofn eins og hann er metinn nú
muni gefa af sér 45 þús. tonn.
Hafrannsóknastofnunin leggur
því til að ýsuafli á næsta ári verði
45 þús. tonn.
Tafla 7. Áætlun um stærð heildarstofns
ýsu 1985-1987 við mismunandi
ársafla (þús. tonna).
Ár ársafli ársafli ársafli
50 45 40
1985 .... 225 225 225
1986 .... 225 230 235
1987 .... 230 240 250
Áætlun um stærð hrygingarstofns ýsu
1985-1987 við mismunandi ársafla
(þús. tonna).
1985 .. 180 180 180
1986 . . 140 145 150
1987 . . 130 140 150
I. Þorskur
l.l. Ástand stofnsins
Það er alkunná að eftir góðærið
í þorskveiðunum árin 1980 og
1981 hefur afli og stofn farið
hraðminnkandi og var afli á síð-
astliðnu ári tæp 300 þús. tonn og
þarf að far allt aftur til áranna
1947 og 1948 til að finna svo
lágar aflatölur á þorski (1. mynd)-
Mat Hafrannsóknastofnunar-
innar síðastliðíð haust sem bygg1
var á niðurstöðum V.P. grein-
ingar og samanburði á niður-
stöðum úr stofnmælingarleið-
öngrum með botnvörpu í septem-
ber 1982 og 1983 gáfu til kynna
að stærð heildarstofnsins í árs-
byrjun 1984 myndi vera 113°
þús. tonn og stærð hrygningar-
stofns 300 þús. tonn. Á þessum
forsendum lagði Hafrannsókna-
stofnunin til, að þorskafli 1984
yrði takmarkaður við 200 þú5-
tonn.
Þessar tillögur, svo og léleg
veiði á árinu 1983, áttu eflaus1
mestan þátt í því, að sett var a
þessu ári í fyrsta sinn í sögu þorsk'
veiðanna við ísland, aflamark a
þorsk og reyndar fleiri botnfiska-
I upphafi árs var aflamark þetta
sett við 220 þús. tonn, en me
endurskoðun og lagfæringum
532-ÆGIR