Ægir - 01.11.1984, Qupperneq 25
nokkru hærri á næsta ári, heldur
en þau hafa verið á yfirstandandi
ári (55 cm).
Hryggleysingjar
Tillögur um leyfilegan há-
marksafla rækju hörpudisks og
humars hafa enn ekki verið mót-
aðar. Þó er talið ólíklegt að þær
breytist mikið frá þeim tillögum
sem gerðar voru fyrir 1984.
Athugasemd
í byrjun október s.l. var tekin
upp sú nýbreytni á Hafrann-
sóknastofnun að sérstakri verk-
efnisstjórn var falið að annast
úttekt á ástandi fiskstofna í sam-
ráði við viðkomandi sérfræðinga.
Verkefnisstjóri er dr. Sigfús A.
Schopka. Það sem hér er sagt um
ástand botnfiska er að sjálfsögðu
byggt á niðurstöðum verkefnis-
stjórnar og er henni hér með
þakkað gott og árangursríkt
samstarf.
Jakob Jakobsson
FISKVERÐ
Smokkfiskur Nr. 15/1984
Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið að lágmarks-
Verðá smokkfiski til beitu ogfrystingarsem beitu ásmokkfisk-
Vertíð haustið 1984 skuli vera:
Hvert kg............................ kr. 9,00
Verðið út miðast við smokkfisk upp til hópa, kominn á
flutningstæki við hlið veiðiskips.
Reykjavík, 29. ágúst 1984.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
koðna til bræðslu Nr 16/1984
Vfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á loðnu veiddri til bræðslu frá 1. októ-
bertil 31. desember 1984.
Hvert tonn ...................... kr. 900,00
Verðið er miðað við 16% fituinnihald og 15% fitufrítt þurr-
efni. Verðiðerkr. 57,00til hækkunareða lækkunarfyrir hvert
1% sem fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlutfallslega
fyrir hvert 0,1%. Verðið breytist um kr. 63,00 til hækkunar
eða lækkunar fyrir hvert 1 %, sem þurrefnismagn breytist frá
viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0,1 %. Ennfremur greiði
I<aupendur2 krónurfyrir hvert tonn til reksturs Loðnunefndar.
Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers loðnufarms
skal ákvarðað af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins eftir
sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips og
Fulltrúa verksmiðju eftir nánari fyrirmælum Rannsóknastofn-
Unar fiskiðnaðarins.
Verðið er miðað við loðnuna komna í löndunartæki verk-
smiðju. Ekki er heimilt að blanda vatni eða sjó í loðnuna við
^öndun og óheimilt er að nota aðrar löndunardælur en þurr-
dælur.
Reykjavík, 29. september 1984.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Nr. 16A/1984
Á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins í dag varð samkomu-
lag um eftirfarandi:
Með tilliti til breyttra aðstæðna samþykkir Verðlagsráð
sjávarútvegsins, að skiptaverð á loðnu til bræðslu, verði kr.
1 060,00, hvert tonn frá og með 1. nóvember til 31. des-
ember 1984.
Önnur ákvæði samkvæmt tilkynningu ráðsins nr. 16 frá 29.
september 1984 eru óbreytt.
Reykjavík, 5. nóvember 1984.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Síld til söltunar Nr. 17/1984
Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefurákveðiðeftirfarandi lág-
marksverð á síld til söltunar er gildir frá byrjun sildarvertíðar
haustið 1984 til 31. desember 1984.
1. Síld, 33 cm og stærri, hvert kg ............. kr. 5.30
2. Síld, 30 cm að 33 cm, hvert kg .... kr. 3.60
3. Síld, 27 cm að 30 cm, hvert kg .... kr. 2.65
4. Síld, 25 cm að 27 cm, hvert kg .... kr. 2.20
Stærðarflokkun og gæðamat framkvæmist af Ríkismati
sjávarafurða.
Verðið er miðað við síldina komna á flutningstæki við hlið
veiðiskips. Síldin skal vegin íslaus.
Verðuppbót úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs:
Með vísun til ákvæða III kafla laga nr. 51 frá 28. apríl 1983
um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, samanberogbréfSjáv-
arútvegsráðuneytisins dagsett í dag, skal greiða 6% uppbót á
framangreint verð allt verðtímabilið. Uppbót þessi greiðist úr
verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs og annast Fiskifélag
Islands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir reglum, sem sjávar-
útvegsráðherra setur.
Reykjavík, 12. október 1984.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
ÆGIR-537