Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1984, Síða 28

Ægir - 01.11.1984, Síða 28
leiðslu og venjulegast er unnið í soðeimingartækjum. Ensímin bæta vinnsluna í soð- eimingartækjunum á þann hátt, að þau brjóta próteinin í soðinu niður í smærri einingar, sem aftur þýðir, að hægt er að ná þurrefnis- magninu í soðkjarna upp í 60 til 80% í stað 40 til 50%, áður en hann er þurrkaður í fiskmjöl. Þetta hefur í för með sér veru- legan sparnað, því mun orkufrek- ara er að fjarlægja vatn úr soði með beinni þurrkun en eimingu. Þessi aðferð er þegar þekkt, en sú ensímblanda sem framleidd er erlendis til þessara nota, vinnur við það lágt hitastig að kæla verður soðið niður áður en henni er bætt út í, og er af því verulegt óhagræði, eins og gefur að skilja. Þannig bendir allt til þess að hægt sé að leysa þennan vanda mun betur með hjálp gerla úr íslensku hveravatni. Á Raunvísinda- stofnun Háksólans hefur verið unnið að einangrun ensíma úr fiskslógi og á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hafa um árabil verið gerðar rannsóknir á ensím- um úr síld. Gagnstætt ensímum úr hitakærum gerlum vinna fisk- ensímin best við lágt hitastig. Uppi eru áætlanir um að ein- angra þessi ensím í nægilegu magni á Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins, til að kanna hvaða not megi af þeim hafa. Kemur þar ýmislegt til greina. Sem dæmi má nefna losun himna, t.a.m. dökkar himnur af þunnildum, himnur af lifur í sambandi við niðursuðu o.fl. Þess má geta að Norðmönnum hefur þegar tekist að nota ensímblöndur til að fjar- lægja möttul af smokkfiski með góðum árangri, og framleiða þannig úr honum mun verðmæt- ari vöru en ella. Samvinna við fiskiðnaðinn En við hugsum okkurekki ein- ungis gott til samstarfs við aðrar íslenskar rannsóknastofnanir. Ég held að ég geti fullyrt að þeim verkefnum sem unnin hafa verið í samvinnu við fiskiðnaðarfyrir- tæki og samtök þeirra hafi farið fjölgandi á undanförnum árum og höfum við fullan hug á að efla þau tengsl. Eftir því sem þessir aðilar auka sína eigin rannsókna- og vöruþróunarstarfsemi skapast betri grundvöliur til hagnýtingar á rannsóknarniðurstöðum í iðnað- inum. Sem dæmi vil ég nefna samstarfsverkefni Síldarútvegs- nefndar og stofnunarinnar um léttsöltun ásíld. Égerekki vissum að allir geri sér grein fyrir því, að stærsti hlutinn af þeirri síld, sem verið er að salta um þessar mundirer í raun nýafurð. Búiðer að lækka saltinnihaldið það mikið, aðvaranfærverulega aðra eiginleika en hefðbundin saltsíld og þau vandamál sem leysa þurfti í sambandi við geymsluþol virtust óyfirstíganleg fyrir nokkrum árum. Léttsöltun krefstmun meiri nákvæmni við mælingu á salt- skömmtum, meiri hráefnisgæða og betra hreinlætis en áður hefur þekkst við síldarsöltun. Eitt verkefni langar mig einnig til að minnast á, sem við vildum gjarnan fá samstarfsaðila í, en það er pökkun á ferskum fisk- flökum í kolsýruloft. Við teljum okkur hafa gert nægjanlegar prófanir til að sýna, að hægt er að geyma fersk flök með öryggi 1 tvær vikur með þessari aðferð- Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi með pökkunina. Hægt er að pakka flökum sér, saman í 10 til 20 kílóa magni, eða jafnvel ' stærri pakkningar. Hins vegaf krefst svona vinnsla mikillaf nákvæmni, þó tiltölulega auðvelt ætti að vera að leysa þau vanda- mál. Útgáfa handbókarinnar Eins og mönnurn er kunnugter fyrsti hluti handbókarinnar kom- inn út og styttist í það að sá kam sem fjallar um skreiðarverkun se fullbúinn. Það hefur komið glöggt í Ijós í sambandi við þessa vinnu hvegloppótt þekkingokkar er á þessum hefðbundnu afm um, t.d. á sambandi milli hra efnis- og afurðagæða. Hetur orðið að setja upp sérstakar ti raunir til að afla upplýsing3' 540-ÆGiR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.