Ægir - 01.11.1984, Blaðsíða 33
því sem hentast þykir. Á mynd 4
rná þannig sjá yfirlitsmynd af
stöðu skipsins, þegar það er á
siglingu milli Akraness og
Reykjavíkur. Mynd 5 gefur hins-
vegar nærmynd af staðsetningu
skipsins við brottför frá Reykja-
vík. Nákvæmni Loran-C kerfisins
er svo mikil að segja má, að fylgj-
ast megi með skipinu að bryggju,
þótt slíkt sé ekki nauðsynlegt
vegna öryggisgæslu.
I fullri útfærslu er að sjálfsögðu
gert ráð fyrir mörgum strand-
stöðvum, sem mundu hver um
sig þjóna tilteknu hafsvæði eins
°g áður er getið. Fyrst í stað
mundu slíkar stöðvar einkum
nota metrabylgjuna til gagna-
sendinga milli skips og lands.
Hinsvegar er Ijóst, að til þess að
t>á meira en 50-60 sjómílur til
hafs yrði að notast við stuttbylgju,
þar sem sjónlínusamband nær
ekki til þessara svæða. Gagna-
sendingar um gervitungl eru enn
sem komið er of kostnaðarsamar
til að geta talist raunhæfur val-
kostur.
4. Kostir sjálfvirks tilkynninga-
kerfis
Sjálfvirkt tiIkynningakerfi hefur
atarga kosti umfram núverandi
kerfi Tilkynningaskyldunnar. Þar
aiá einkum nefna eftirfarandi
atriði:
• Upplýsingarnar berast sjálf-
virkt frá hverju skipi á 5-15
mínútna fresti.
• Öll úrvinnsla og framsetning
gagna er sjálfvirk.
• Upplýsingar um einstök skip
eru fyrir hendi og má kalla
fram að vild.
Sérstaklega er mikilvægt, hve
skammurtími er milli tilkynninga
frá hverju skipi. Eftirgrennslan
eftir skipi, sem ekki heyrist til,
getur því hafist að skömmum
tíma liðnum. Jafnframter hægt að
senda neyðarskeyti án tafar með
þvf að styðja á rofa á skipstækinu.
Þar sem útsendingar skeytanna
eru á gagnaformi er auðvelt að
koma í veg fyrir, að óviðkomandi
aðiljar geti hlerað þær.
Sjálfvirkar sendingar milli skips
og lands og strandstöðva og eftir-
litsstöðvar tryggja, að skammur
tími líður þar til upplýsingar hafa
borist til eftirlitstölvunnar. Auk
þess að sýna mynd af staðsetn-
ingu og ferlum skipa, fylgist
tölvan í eftirlitsstöðinni með því
SKIPUH)
Mynd4. Staðsetningogferill Akraborgarinnar kl. 17:52 ásiglingu milli Akra-
ness og Reykjavíkur.
Mynd 5. Staðsetning og ferill Akraborgarinnar kl. 19:02 við brottför úr Reykjavík-
urhöfn.
ÆGIR - 545