Ægir - 01.11.1984, Blaðsíða 34
að skeytin berist á tilsettum tíma
og gerir viðvart, ef eitthvað fer
úrskeiðis. Vinnuálag starfsmanna
strandstöðva og í eftirlitsstöð
mundi því minnka verulega, þrátt
fyrir aukið upplýsingastreymi
sjálfvirka kerfisins.
Öll gögn, sem berast frá skip-
unum eru geymd í tölvuskrám.
Því er auðvelt að kalla fram upp-
lýsingar um ferðir einstakra skipa
jafnvel langt aftur í tímann og
sýna ferla þeirra á myndskjá.
Einnig er auðvelt að miðla upp-
lýsingum um skip til útgerða eða
einstaklinga, sem hafa rétt á að fá
slíkar upplýsingar. Þá má gera
ráð fyrir að komið yrði upp eins-
konar svæðisbundnum eftirlits-
stöðvum t.d. í útgerðarhöfnum,
þar sem fá mætti upplýsingar um
skip á nærliggjandi svæðum.
Þannig þyrfti ekki að leita til eftir-
litsstöðvar í Reykjavík til að fá
upplýsingar um skip í næsta ná-
grenni. Þetta fyrirkomulag mundi
einnig stuðla að auknu rekstrar-
öryggi.
Hugsanlegt er að nota tilkynn-
ingakerfi af þeirri gerð, sem hér
hefur verið lýst, til að senda
ýmsarfleiri upplýsingar en skrán-
ingarnúmer skipa og staðsetn-
ingar þeirra. Þannig hefur verið
stungið upp á að senda hitastig
sjávar frá skipum með sjálfvirka
sjóhitamæla, t.d. nokkrum
sinnum á sólarhring. Fleiri hug-
myndir af þessu tagi koma til
álita, ogtæknilegaerekkertþvítil
fyrirstöðu að senda almenn skeyti
með sama hætti milli skips og
lands. Spurningin snýst fyrst og
fremst um afköst kerfisins og til-
kostnað við að koma því á fót.
Núverandi athuganir miða við,
að hver strandstöð geti annað
öllum tilkynningum frá tvö-
hundruð og fimmtíu skipum á
innan við fimmtán mínútum.
5. Framtíöarþróun
Verkefni Verkfræðistofnunarer
fyrst og fremst að kanna tækni-
legar forsendur sjálfvirks tilkynn-
ingakerfis og gera áætlanir um
stofnkostnað þess. Þessar undir-
búningsathuganir standa enn yfir
og er m.a. verið að kanna stað-
setningu strandstöðva, hæfni-
kröfur fyrir skipsbúnað og
aðferðir til fjarskipta. Þá verða
gerðar ýmsar endurbætur á til-
raunakerfinu, skipstækjum fjölg-
að og ýmis sérstök viðfangsefni
tekin til nánari athugunar.
Að lokinni þessari undirbún-
ingsvinnu er tímabært að hyggja
að tilraunarekstri slíks kerfis, þar
sem a.m.k. tuttugu skipyrðu búin
nauðsynlegum tækjum. Eftirlits-
tölvan yrði væntanlega sett upp í
aðalstöðvum Tilkynningaskyld-
unnar, þar sem vakt er allan sól-
arhringinn. Reglubundinn rekst-
ur gæti síðan hafist samhliða
núverandi kerfi, þegar nægileg
reynsla væri fengin með tilrauna-
rekstrinum og skipstækjum hefði
fjölgað. Útbreiðslusvæði kerfis-
ins mundi síðan verða stækkað
með því að fjölga strandstövum.
6. Lokaorð
Af því sem hér hefur verið sagt
má Ijóst vera, að tæknilegar for-
sendur eru fyrir því að koma upp
sjálfvirku tilkynningakerfi fyrir
íslenska fiskiskipaflotann. Þetta
er hinsvegar flókið verkefni og
kostnaðarsamt, þótt endanlegar
kostnaðartölur liggi enn ekki
fyrir. Þó má áætla með nokkurri
vissu, að tækjabúnaður fyrir skip
mundi ekki kosta meira en sem
svarar verði tveggja Loran-C
tækja. A núverandi verðlagi er
hér um 60-70 þús. kr. að ræða.
Nákvæmari kostnaðaráætlanir
munu væntanlega liggja fyrir á
fyrri hluta næsta árs, þegar niður-
stöður Verkfræðistofnunar verða
birtar í skýrslu um yfirstandandi
rannsóknir og tilraunir. Kostir
sjálfvirks tilkynningakerfis eru
hinsvegar svo miklir, að þeir
hljóta að vera þungt á metunum.
Sérstaklega mundi hið öra
streymi tilkynninga frá skipum á
hafi úti og möguleikar á að senda
neyðarskeyti án fyrirvara auka
mjög á öryggi sjómanna, þar sem
leitar- eða hjálparaðgerðir gætu
hafist þegar í stað og verið mark-
vissar.
Að lokum er rétt og skylt 3Ö
geta þess, að auk opinberra fjár-
veitinga hefur Verkfræðistofnun
fengið stuðningfrá nokkrum fyrir-
tækjum og stofnunum vegna
þessa verkefnis. Vil ég þá einkum
geta Kristjáns Ó. Skagfjörð h.f.<
sem hefur veitt aðstoð vegna við-
halds PDP-11/34 tölvukerfisins,
og Örtölvutækni h.f., Sónar s.f-,
Skrifstofuvéla h.f., Fjarski pta-
stöðvarinnar í Cufunesi og Flug-
málastjórnar, sem hafa lánað
ýmsan búnað. Þá hefur samstarf
við útgerð og skipstjóra Akra-
borgarinnar verið með miklum
ágætum.
■
er tímarit þeirra, sem vilja íylgjast með því
helsta, sem er að gerast í sjávarútvegi.
546-ÆGIR