Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1984, Side 50

Ægir - 01.11.1984, Side 50
Tilkynning frá Fiskveiðasjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1985 og endurnýjun eldri umsókna Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði íslands á árinu 1985 hefur eftirfarandi verið ákveðið: 1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði Engin lán verða veitt til byggingaframkvæmda nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga, sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórnar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins, þar með talið hagræðingarfé hrekkur til, verður lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og aukna fram- leiðni. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. 2. Vegna fiskiskipa Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til tækj- akaupa og endurbóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. 3. Endurnýjun umsókna Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til. \ 4. Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984. 5. Almennt Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir tilskil- inn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1985 nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Reykjavík 16. október 1984. Fiskveiðasjóður íslands.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.