Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1985, Side 34

Ægir - 01.02.1985, Side 34
Jakob Jakobsson: Síldarstofnar og stjórn síldveiða í norðaustan- verðu Atlantshafi Framhald SÍLDIN VIÐ VESTURSTRÖND SKOTLANDS 1. Afli Síldaraflinn á svæðinu vestan Skotlands (skýrslusvæði Vla) var að meðaltli um 60.000 tonn á ári á tímabilinu frá 1946-1965 eins og sýnt er á 9. mynd. Eftir það jókst aílinn mjög hratt og var kominn í u.þ.b. 250.000 tonn árið 1973. Eftir það minnkaði hann ört og var kominn niður í 50.000 tonn árið 19-77. Á tíma- bilinu 1978-1980 voru síld- veiðar bannaðar en leyfðar aftur árið 1981, þá varð aflinn 51.000 tonn en 1982 varð hann 92.000 tonn. Skipta má síldveiðunum vestan Skotlands í tvennt, þ.e.a.s. sumarveiðar sem stund- aðar eru vestan og norðan Suður- eyja (Hebrideseyja) og vetrar- veiða sem einkum eru stundaðar í sundinu milli skoska megin- landsins og Suðureyja. 2. Stærð síldarstofnsins Síldarvinnunefnd Alþjóða- hafrannsóknaráðsins gerði fyrstu úttekt á þessum stofni árið 1969. Niðurstaða þeirrar úttektar var sú að stofninn væri sennilega í kringum 400.000 tonn, hann væri ekki ofveiddur og gæti hugs- anlega staðið undir eitthvað auknum veiðum. Allt frá árinu 1974 hefur vinnunefnd Alþjóða- hafrannsóknaráðsins sem fjallar um síldarstofna gert árlega úttekt á þessum stofni. Eftir á að hyggja kemur í Ijós að á árunum 1976 og 1977 áleit nefndin að þessi síldar- stofn væri mun stærri en síðar kom í Ijós. Hins vegar virðist úttekt nefndarinnar árið 1978 hafa átt við rök að styðjast en þá var lagt til að síldveiðar yrðu bannaðar. Nýliðunin í þennan stofn hefur verið miklum sveiflum háð. Það er t.d. eftirtektarvert, að hrygn- ingarstofninn á þessu svæði tvö- faldaðist árið 1966, þegar hinn sterki árgangurfrá 1963 varð kyn- þroska. Næstu árin þar á eftif bættust margir sterkir árgangar ' stofninn. Þessu skeiði lauk 1972, þegar hinn geysisterki árgangut frá 1969 bættist í stofninn- Hrygningarstofninn var þá allt að 650 þús. tonn, eins og sýnt er a 10. mynd. Eftir þetta góðæristímabil breyttist stærð árganganna og bættust stofninum þá margit lélegir árgangar í röð. Nokkut tími leið áður en fiskifræðingat gerðu sér fulla grein fyrir þessari gífurlegu breytingu sem hafð' 82-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.