Ægir - 01.02.1985, Blaðsíða 39
AFMÆLISKVEÐJA
Hjalti
Gunnarsson
70 ára
Fjutt við setningu
Fiskiþings
Þ 'ð setningu Fiskiþings flutti
orsteinn Gíslason fiskimálastjóri
lalta Gunnarssyni eftirfarandi
arr,aðaróskir.
f h'n.n °kkar virtustu fiskiþings-
u trúa á merkisafmæli í dag, en
ann Hjalti Gunnarsson fæddist
s ey^arfirði fyrir 70 árum síðan,
0°nur hjónanna Unu Jónsdóttur
8 Gunnars Bóassonar útvegs-
°nda á Reyðarfirði.
jalti hóf ungur störf við sjáv-
mtveginn, hann aflaði sér vél-
horaréttinda hjá Fiskifélagi
ands 1937, tók minna fiski-
'papróf 1939 Qg ^,5 meira fiski-
'Papróftil skipstjórnar 1950.
Hjalti hófskipstjórn 1940. Við
sem erum hér staddir og áttum
því láni að fagna sumir hverjir að
vera í áratugi með eða í næsta
nágrenni við Hjalta á sjónum
færum honum alúðarþakkir.
Við minnumst Hjalta og hans
frammistöðu á „Stuðlafossi" frá
stríðsárunum þegar við vorum í
næsta nágrenni við hann að berj-
ast um á vetrarvertíðum við S.V.
ströndina og þegar hann var að
sumarlagi aðeltastviðsíld norður
á Grímseyjarsundi í miðnætur-
sólinni.
Við minnumst hans einnig
þegar við vorum samtímis að
glíma við stórþorskinn austur í
Buktum, eða á eftir síldinni
norður eftir öllu Dumbshafi. Þar
var Hjalti oft í fararbroddi á skipi
sínu „Gunnari".
Nú veit ég að vini mínum
Hjalta er ekki gefið um að láta
hæla sér, en ég gat ekki látið hjá
líða að færa honum þakkir frá
okkur sem vorum samtímis
honum á sjónum. Það var svo
einkennilegt með hann Hjalta, að
ef einhverjir áttu í erfiðleikum,
þá var eins og hann væri alltaf
næstur og þó hann væri ekki
næstur þá var hann svo oft fyrstur
til aðstoðar þeim, sem þurftu á
hjálp að halda.
Hjalti er mikill félagsmálamað-
ur; hann hefur setið fjölda mörg
Fiskiþing, hann er formaður
fjórðungssambands fiskideilda í
Austfirðingafjórðungi og hefur
unnið mikið í þágu Fiskifélagsins.
Einn þáttur í félagsstörfum Hjalta
verður aldrei fullþakkaður, en
það eru störf hans í þágu öryggis-
og slysavarnamála landsmanna.
Þar hefur hann sett mikinn svip
á öllum þeim Fiskiþingum,
sem hann hefur setið og eins
við stjórnun Slysavarnafélags
íslands.
Ef til vill mótuðu þær mann-
raunir, sem hann lenti í ungurað
árum, hann til þessara viðhorfa.
Ungum að árum var honum
bjargað frá drukknun er hann féll
fyrir borð úti í Reyðafjarðardjúpi,
skömmu seinna var honum
bjargað ásamt öðrum er bátur
þeirra fórst í Hornafjarðarósi en
tveir félagar þeirra drukknuðu.
Ég efast ekki um að þetta hefur
átt stóran þátt í að móta viðhoif
Hjalta Gunnarssonar þannig að í
vitund okkar er hann einn af aðal
frumkvöðlum í framvindu
öryggis- og slysavarnamála.
Fyrir hönd Fiskiþings færi ég
Hjalta innilegustu árnaðaróskir
með afmælið og óskir um aldur
og góða heilsu. Og sem þakklæt-
isvott fyrir þín heilladrjúgu störf í
íslenskum sjávarútvegi færi ég
þér þessa kveðju og það er e.t.v.
táknrænt að hún er íformi blóma,
sem eru ímynd fegurðar og þess
sem lifir.
Hjalti Gunnarsson, haf þú
þökk fyrir öll þín góðu störf.
TÍMI
PENINGAR
VÐ SPORUM ÞER
HVORUIVEGGJA
TOYOTA
B
U
LYFTARAR
NÝBÝLAVECI 8 200 KÓPAVOCI SÍMI 91-44144
ÆGIR-87