Ægir - 01.09.1985, Page 10
63 brl. og Kolbrúnu 34 brl. Þeir
hafa báðir stundað úthafsveiðar í
sumar, en auk þess hefur
vinnslan haft 2 aðkomubáta á
leigu. Á síðasta ári vann Rækju-
vinnslan úr um 700 tonnum af
íslenskri rækju sem gaf um 220
tonn af framleiddri vöru, auk þess
sem framleidd voru um 25 tonn af
rússarækju. Að jafnaði starfa um
15 manns í Vinaminni. Rækju-
vinnslan er í mjög þröngu hús-
næði og eru uppi áætlanir um að
bæta úr því með byggingu nýrrar
vinnslustöðvar. Hefur verið uppi
sú hugmynd að reisa verksmiðj-
una inni í fjarðarbotninum, en
ekki á hafnarsvæðinu, svo vinnu-
staðurinn verði nær heimilum
starfsmanna.
Útgerð Hafþórs
Frá því í mars á síðasta ári hafa
þrjár rækjuverksmiðjur á ísafirði
haft á leigu togarann Hafþór frá
Reykjavík og haldið honum til
rækjuveiða á Dohrnbanka. Það
eru Rækjuverksmiðja O.N.
Olsen, Rækjuverksmiðjan í
Hnífsdal og Rækjustöðin sem
standa að þessari útgerð. Hafa
þær Hafþór á leigu til ársins
1988. Hafþór stundaði veiðar
allan síðasta veturog frysti aflann
um borð. Stærri rækjan er síðan
flutt úttil Japans, en minni rækjan
er þýdd upp hér heima og unnin í
rækjuverksmiðjunum á hefð-
bundinn hátt. Á síðasta ári aflaði
Hafþór 605 tonn af rækju og frá
janúar til maí á þessu ári landaði
hann 370 tonnum.
Staða rækjuvinnslunnar
Eftir nokkur hagstæð ár í rækju-
útflutningi varð verðlagsþróun
mjög slæm á síðasta ári. Munaði
þar mestu hin mikla lækkun
pundsins á alþjóðlegum mark-
aði. Bretland hefur verið mikil-
vægasti kaupandi íslenskrar
rækju ásamt Danmörku. Nú síð-
ustu tvö ár hefur Bandaríkjamark-
aður mjög sótt á. Árið 1984 varð
einnig mikil sölutregða, auk
hinnar óhagstæðu verðþróunar.
Rækjuvinnslan varð því fyrir
verulegum skakkaföllum á því
ári. Á þessu ári hefur sala rækj-
unnar gengið betur og staða
pundsins heldur batnað, svo
brúnin á „rækjukóngunum" hefur
aðeins lyftst.
Norðmenn undirbjóða
Það er einkum tvennt sem t0^
svarsmenn rækjuvinnslunnar °
uggandi um varðandi útflutn'0-
á rækju. Hið fyrra er s0^
Norðmanna á markaðinn 111
undirboðum. RækjuútvegurN01^
manna nýtur mikilla ríkisstyr Ja’
„sjómennirnir eru nánast rl
starfsmenn", eins og einn orða
það. Veiðar þeirra hafa stórau 1 ^
allra síðustu ár, og þeir ásaí11
Rækjan kemur úr vélunum og á bandið. Vökul augu kvennanna og snör handtök
sjá um eftirhreinsun, svo ekkert óæskilegt slæðist með í frystinguna.
494-ÆGIR