Ægir - 01.09.1985, Blaðsíða 23
unnar. Slík kerfi hafa nú verið sett
upp í 20 frystihúsum hér á landi,
og er hafinn útflutningur á þeim.
I sumar kom Póllinn fram með
nýjung sem margfaldar alla
möguleika á notkun vogakerf-
anna. Aður voru kerfin hönnuð
• fyrir eina ákveðna tegund tölva.
En nú hefur verið sett saman
tengistykki sem flutt getur boðin
frá vogunum til allra gerða af
venjulegum tölvum sem í notkun
eru. Þannig eru nú Póllinn og
kaupendur vogakerfanna alger-
lega óháðir tölvufyritækjunum.
Söluaukning hefur verið mikil
undanfarið og um mitt þetta ár
var búið að selja jafnmikið og allt
árið í fyrra. Af því fór um fjórð-
ungurtil annarra landa.
Útflutningur
Útflutningurinn hefur vaxið
mjög undanfarin ár og binda
menn miklar vonir við árangur á
því sviði. Færeyingar voru fyrstir
til að taka upp Pólsvogirnar. Þar
hefur Póllinn átt samstarf við
fyrirtækiðComdata. Póllinn selur
þeim vogirnar og forritin, en hið
færeyska fyrirtæki sér um tölv-
urnar og uppsetningu búnaðar-
ins. Sagt er að Pólsvogir sé nú að
finna í sem næst öllum frysti-
húsum í Færeyjum.
Þá er nú hafin útflutningur
vogakerfa til annarra land. Starfs-
menn Pólsins hafa farið utan og
sett upp í sumar slík kerfi í Alaska
og Noregi. Vonast menn til að
það sé upphafið að öðru meira.
I Bandaríkjunum hefur verið
farin sú leið að selja þarlendu
fyrirtæki framleiðsluleyfi á Póls-
vogunum. Er nú hafin framleiðsla
á vogum þar og eru þær taldar
eiga mikla möguleika í matvæla-
iðnaði Bandaríkjanna.
Áfram er unnið að kynningar-
starfi á vegum Pólsins, og má
segja að allt þetta sé rétt á byrjun-
arstigi ennþá. Markaðssókn er-
Q3''^Sústsson sölustjóri og Ingólfur Eggertsson útvarpsvirki innan um tölvuvogir
/e/g3 Un' *n8ólfur var brautryöjandi í framleiðslustarfi Pólsinserhann hóf aðfram-
a sPennustilla og fleiri tæki fyrir ístenskan sjávarútveg.
nia,
rgerð/r tölvuvoga eru á boðstólum nú. Þessar tvær systur eru ætlaðar til að
að v assa^sÁ skreið eða saltfisk (til vinstri), en sú minni ersvonefnd millivog til
tolVu Sa ^ ' bökkum frá einstökum vinnslustigum. Vogirnar má síðan tengja
una ' fcnnig skrá allar hugsanlegar upplýsingar á leið fisksins gegnum vinnsl-
polsvogir og -vogakerfi
ólsvogirnar hafa nú verið
^ dartil meiren 120 fyrirtækja í
'5. '^naði og öðrum matvælaiðn-
'■ Notkun voganna er þó ekki
Ur>din við matvæli, þær hafa
e,nnig verið teknar í notkun á
fleiri sviðum iðnaðar og þjón-
ustu.
í framhaldi af þessu býður Póll-
inn samtengt kerfi voga- og tölvu-
búnaðar, sem safnar og flokkar
allar þær upplýsingar sem
vogirnar gefa í hverju stigi vinnsl-
ÆGlR-507