Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1985, Page 21

Ægir - 01.09.1985, Page 21
Skipasmíðar ísfirðinga í nýrri tíð Skipasmíðar eiga sér langa °§u meðal þjóðarinnar. En k'Pasmíðar í nýrri tíð urðu til e vélbátunum á þessari öld. arður G. Tómasson f' ?/rSta sk'Pasmíðastöðin á ísa- s'r 1 Var mist af Bárði C. Tómas- Ig111 skipaverkfræðingi árið l 1 • Var hún staðsett áTorfnesi, Sk ' |Sem r'S'^ bus Mennta- Jolans á ísafirði. Bárður rak 1 g?asrn^astöðina allt til ársins fi’U teiknaði og smíðaði a° a báta fyrir ísfirðinga. Meðal i nnars smíðaði hann fyrstu „Dís- baar" árið 1938, sem voru um 14 ■ að stærð og eru einhverjar dag^ ve'^um enn bann dag í p. 'PPÍnn á Torfanesi keypti l9arsellíus Bernharðsson árið ^ °g starfrækti hann allt fram *attunda áratuginn. Fóru þar ega fram viðgerðir á trébát- tr • Muna margir eftir hinum Usta völundi, Eggert Lárussyni m lengst af réð ríkjum í slippn- Urn a Torfnesinu. ^drsellíug Bernharbsson nnur skipasmíðastöð var reist á ísafirði í Neðsta. Það var Marsellíus Berharðsson sem hana reisti árið 1939, en hann hóf skipasmíðar þrem árum áður. Fyrsti þilfarsbáturinn sem Marsellíus smíðaði var Mímir 17 brl. að stærð. Eigandinn var Ingi- mar Finnbjörnsson í Hnífsdal. Reyndist hann happafleyta. Fram til ársins 1945 voru smíð- aðir 20 smærri og stærri bátar hjá skipasmíðastöð Marsellíusar. Stærsta smíðin var „Richard", 92 brl., byggður árið 1940 fyrir Björgvin Bjarnason útgerðar- mann. Á þessum árum störfuðu 35—45 menn hjá Marsellíusi. Kringum árið 1950 varð lægð í skipasmíðum hérlendis og störf- uðu þá aðeins örfáir menn við slippina á ísafirði. En það rættist úr fyrir skipasmiðum á ný og eftir 1955 var nokkrum 30^10 brl. skipum hleypt af stokkunum í Neðsta. Síðasti trébáturinn var afhentur árið 1961 og bar hann smíðanúmer 40. Þá voru nýir tímar að ganga í garð í skipa- smíðum og stálbátar þóttu bera af hinum eldri bátum. Og Marsell- íus tók einnig upp nýja hætti. Stálskip Reistur var yfirbyggður slippur á Suðurtanganum, áfastur við smiðjuhús og annað sem tilheyrir nýtísku skipasmíðum. Stöðin var í byggingu á árunum 1960- 1966, og kjölur fyrsta stálskipsins lagður árið 1967. Skipið var afhent tveim árum seinna. Nefndist það Kofri og var gert út frá Súðavík. Næstu tólf árin voru smíðuð 10 stálskip í Skipasmíða- stöð M. Berharðssonar. Stærsta skipið var Heiðrún frá Bolungar- vík, 41 metri á lengd og um 160 brl. að stærð. Eftir 1982 varð fyrirtækið verkefnalaust og hætti starfsemi í kjölfar þess. Auk skipasmíðastöðvarinnar starf- rækti Marsellíus stóra dráttar- braut á Suðurtanganum, vél- smiðju, trésmíðaverkstæði, bif- reiðaviðgerðir og verslun með járn- og byggingarvörur. Á rótum hins eldra fyrirtækis var nýttfyrir- tæki stofnað árið 1983. Nefnist það Skipasmíðastöð Marsellíusar h.f. Starfrækir það stöðina sjálfa og smiðjuna. Heimild: Ægir, júlí-ágúst 1951. Ásgeir Sigurðsson og Þórður Pétursson á ísa- firði. Þe,r hafa átt mörg handtökin við skipasmíðastöðina. Sigurður og Högni Marsellíussynir ídagsins önn. ÆGIR-505

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.