Ægir - 01.09.1985, Blaðsíða 43
eða þá nokkru eftir áramót.
'ð Stýrimannaskólann í Reykja-
í Keflavík og á Dalvík er
a °rmað að Ijúka 200 rúmlesta
rettindanámi, sem er 40 kennslu-
^agar auk prófa og námskeiðs í
e'Isufraeði í febrúar/mars.
loknu þessu réttindanámi
þátttakendur skilað í sjó-
Dannafræðum, þ.e. í siglinga-
rðeði, siglingareglum, skipagerð,
sJórétti sama námsefni ogtilskilið
er yið 1. stigs deildir stýrimanna-
^ólanna, en verða að taka inn-
,°kuPróf í tungumálum og hafa
a§markseinkunn 5 í stærðfræði
1 að geta sest í 2. stig.
I skólasetningarræðu hvatti
s ólastjóri Stýrimannaskólans
a a til að halda vöku sinni í
^nntunarmálum sjómanna.
Undanþágum til skipstjórnar
elUr miðað við 31. júlí s.l.
®kkað um nærri 33% eða um
| Qr
3 menn frá því sem var á sama
'eia ' fyrra. En þá voru samtals
,} menn með undanþágu til
JP^jórnarstarfa. Þessi tala mun
r, síálfsögðu lækka mikið þegar
^ttindanáminu lýkur. í skóla-
^tningarræðu sagði skólastjóri
a. til nemenda: „Þið eruð nú
umnir í skóla yfirmanna og for-
^ umanna á íslenskum skipum.
■ ,n*stu mánuðum hvílir sú
V da á okkur kennurum að búa
ykkur sem allra best til þeirra
starfa að taka við ábyrgð á skipi
og mönnum. Til að ætlunarverk
okkar takist - ykkar nemenda að
ná góðum ogfullnægjandi tökum
á námsefni og viðunandi eink-
unnum en okkar kennara að miðla
ykkur af þekkingu og reynslu -
verður að takast með okkur gott
samstarf. Við verðum að vinna
saman að settu marki, sem ykkur
mörgum finnst nú fjarlægt, en
náð er fyrr en varir. Ég bið ykkur
að minnast þessara hluta - mark-
miðs ykkar og skólans ykkar. Ég
og við kennarar skólans munum
eftir bestu getu styðja ykkur að
þessu marki, en þið verðið einnig
að leggja ykkur fram með lífi og
sál, hug og dáð."
Að lokum vitnaði hann í skóla-
setningarræðu Sveinbjörns Egils-
sonar rektors á Bessastöðum, sem
var afi og alnafni Sveinbjarnar
sæfara og lengi ritstjóra Ægis,
sem kenndi verklega sjóvinnu við
Stýrimannaskólann í Reykjavík
um árabil og skrifaði frægar sjó-
ferðasögur og endurminningar.
En í skólasetningarræðu árið
1836 sagði Sveinbjörn: „Hafið
gát á, hvernig þér brúkið tíðina,
minnugir þess að æskutiminn
hleypur 'og hann kemur ekki
aptur."
Þegar skólinn var settur var
nemendum og kennurum
afhentur nýr námsvísir Stýri-
mannaskólans fyrir árið 1985—
1986.
Auk námskeiða fyrir réttinda-
nám undanþágumanna hefur
Stýrimannaskólinn auglýst 8
vikna kvöldnámskeið fyrir 30
tonna réttindi á haustönn, sem
hófst 19. september. Kennt
verður í 72 tíma, sem skiptast á
siglingafræði, stöðugleika, sigl-
ingareglur og meðferð siglinga-
tækja og er það í anda nýju
atvinnuréttindalaganna að
kennsla fyrir þessi námskeið
verði á vegum stýrimannaskól-
anna eða fjölbrautaskóla í umsjá
menntamálaráðuneytisins og
Stýrimannaskólans í Reykjavík.
Á vorönn er áformað að halda
4. stigs deild, sem hefst 6. janúar,
ef næg þátttaka fæst, en lág-
marksfjöldi er 10 nemendur og
inntökuskilyrði 1. einkunn úr 3.
stigi. Væntanlegir þátttakendur
eru beðnir að tilkynna þátttöku
fyrir 1. nóvember.
Endurmenntunarnámskeið
fyrir starfandi skipstjórnarmenn,
sem haldin hafa verið undanfarin
vor verða auglýst um áramót og
verður reynt að koma þeim af
stað upp úr miðjum vetri.
Námsvísir Stýrimanna-
skólans í Reykjavík
skólaárið 1985-1986
sk'/°rm^'a "Námsvísins" ritar
0astjóri Stýrimannaskólans,
f,U Ármann Eyjólfsson, eftir-
tarandi:
^egar Jónas Sigurðsson skóla-
shóri lét af störfum í ágústlok
árið 1981 kom út 1. útgáfa
námsvísis Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Námsvísirinn var
unninn af þeim Ásmundi Hall-
grímssyni og Þorvaldi Ingi-
bergssyni kennurum við Stýri-
SKÓLAÁRIÐ 1985-1986
ÆGIR-527