Ægir - 01.02.1986, Síða 10
félag fyrir landið til stuðnings
sjávarútveginum. Hafði foringi
þessi handsamað hér marga land-
helgisbrjóta og reynzt skilnings-
betri á íslenzka hagsmuni en
almennt gerist um erlenda menn,
og var því allmikið mark tekið á
því, sem hann sagði. Tilþessarar
rótar virðist mega rekja það, að á
þessu ári rumskaði útgerðar-
mannafélagið við Faxaflóa, sem
stofnað hafði verið 1895 (var
stofnað 30. sept. 1894. ÁJ.) og
minnzt hefur verið á ofurlítið, en
það hafði þá verið athafnadauft
um mörg ár. Félag þetta setti nú
nefnd til þess að undirbúa ný lög
fyrir sig, og er þau komu til
umræðu, kom það greinilega í
Ijós, að allmikill áhugi var meðal
manna um að koma á slíku alls-
herjarfélagi. En þegartil kastanna
kom, treysti félagið sérekki til að
koma því á laggirnar, en taldi það
eitt með í lögunum markmið sitt:
„að kosta kapps um, að slíkur
félagsskapur sem þessi (þ.e.
útgerðarmannafélagið) geti mynd-
azt annarsstaðar við landið, þar
sem þilskipaútvegur er stundað-
ur, en allsherjarfélag var þar ekki
nefnt á nafn. Þetta sama sumar í
júlímánuði hafði útgáfa fisk-
veiðatímaritsins „Ægir" verið
hafin, og lét það ekki félagsmálið
til sín taka um sinn, en er útgerð-
armannafélagið hafði gert þessa
samþykkt, kvað tímaritið uppúr
með það, pð stofnun slíkra félaga
væri þarfa verk, en að þau að síð-
ustu yrðu að mynda eitt félag fyrir
allt landið. Sama ár bar þáver-
andi 2. þm. Gullbringu- og Kjós-
arsýslu, Valtýr Guðmundsson,
síðar prófessor, fram á þingi
frumvarp til laga um stofnun fisk-
veiðasjóðs íslands. Á umræð-
unumum frumvarpið (það er fisk-
veiðasjóðsfrumvarp Valtýs) sést
að sjóður þessi er ætlaður sem
nokkurskonar hugnun til sjávar-
útvegsins fyrir það, að settur hafði
verið á stofn Ræktunarsjóður
handa landbúnaðinum. Umræð-
urnar um frumvarpið voru fullt
eins merkilegar eins og það var
sjálft, því flutningsmaðurinn dr.
Valtýr, tók það þá skýrt fram, að
það yrði nú að fara að vinda
bráðan bug að því að koma upp
allsherjarfélagi, og var vel undir
það tekið.
Það kom og greinilegafram, að
þingmönnum þótti nú vera mál til
komið að gert væri eitthvað af
hálfu hins opinbera fyrir útveg-
inn, þar sem hann væri nú engu
ómerkilegri stoð undir þjóðarbú-
skapnum en landbúnaðurinn,
sem var orð og að sönnu því að
útflutningur sjávarafurða nam
þegar þá miklu meiri upphæð en
útflutningur búnaðarafurða. Það
kvað svo rammt að þessu að ráð-
herrann, Hannes Hafstein, fór
beinlínis hjá sér af því að þing-
maður hafði orðið til að flytja
frumvarpið en ekki stjórnin."
Þarna er karl kominn að því
sem hann hefurstefntaðmeðallri
frásögninni að koma högginu á
Hannes Hafstein og til þess jafn-
framt að gera hlut Valtýs höfuð-
andstæðings Hannesar sem
mestan lætur hann Valtý koma
fram með frumvarpið án þess að
nokkur hafi ýtt við honum. Þegar
Guðbrandur segir frá áróðri
Schacks, þá getur hann aðeins
þess að áróður hans hafi verið á
Útgerðarmannafélagið og aðeins
um stofnun landsfélags en ekki
fiskveiðasjóðs og þegar hann segir
frá þeim félagsskap kemur hann
höggi á Tryggva, frænda Hannes-
ar, sem var formaður þess félags,
og loks gefur Guðbrandur ótví-
rætt í skyn, að Matthías Þórðar-
Fiskibáturinn „Glaður", 22 smálestir, byggður íReykjavík 1929.
70-ÆGIR