Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1986, Side 32

Ægir - 01.02.1986, Side 32
Handftökun. ara stofnana, hefur gjörbreytzt, frá því, er þær tóku til starfa. Með tilliti til þessarar breytingar, sem orðin er, ekki sízt síðan styrjöldin hófst, verður ráðuneytið að telja eðlilegt, að hlutast til um það, að fram fari endurskoðun á starfsemi allra þessara stofnana, með sér- stakri athugun á því, hvort ekki þætti betur fara að stofnanirnar yrðu meira eða minna samein- aðar og fækkað, og að lögum og reglum yrði þá breytt í samræmi við það." Þótt þetta væri í bígerð hjá stjórnvöldum, sem ekkert varð reyndar af, þá hélt Fiskifélagið sínu striki á næsta Fiskiþingi og ræddi þar ef svo má segja af yfir- náttúrlegri bjartsýni um uppbygg- ingu fiskiflotans eftir styrjöldina, sem enginn sá þó fyrir endann á, hún geisaði þá sem áköfust. í þingtíðindum 16. Fiskiþings, sem sett var 16. febrúar 1942 segir svo: „Fjárhagsnefnd er sammála um það nauðsynjaverk, að Fisk- veiðasjóður sé þess fær að styrkja öfluglega nýþyggingu fiskiflotans með hagkvæmum lánum, þegar styrjaldarástandið lægir svo, að veruleg nýsmíði skipa geti hafist aftur." Síðan segir í áliti fjárhags- nefndar 1942: „Hins vegar er fjárhagsnefnd Fiskiþings Ijóst, að Fiskveiða- sjóður verður að sinna miklum lánabeiðnum, þegar styrjaldar- ástandinu léttir. Skýrslur um skipatjón hér á landi frá síðustu árum sýna, að gera má ráð fyrir að um 6% af skipastólnum ónýtist árlegaafslysum, en þarviðbætist að margt af fiskiflotanum er orðið gamalt og úrelt og sumt af skip- unum tæpast sjófært. Það er því engin fjarstæða að áætla, að smíða þurfi um 100 ný skip á ári fyrstu árin eftir styrjöldina." Á 17. þingi Fiskifélags íslands, 1944 var lagt fram frumvarp til laga fyrir Fiskifélag íslands og var þar margt nýmæla sem menn töldu fallin til að auka áhrif og hleypa auknu lífi í alla starfsemi félagsins, ogerhérekki rúmtil að rekja þær lagabreytingar, þær breyttu engu um megintilganginn, sem finna mátti í fyrstu lögunum. í þessum lögum var embættisheiti stjórnarformanns breytt úr forseta í fiskimálastjóra og hefur verið svo síðan. Slysatryggingarmál og björg- unarmál voru mikilvægir mála- flokkar á Fiskiþingum á stríðs- árunum. Að lokinni styrjöldinni þurfti sjávarútvegurinn margs með í uppbyggingu á öllum sviðum og uppbygging flotans og því sem henni fylgdi á ýmsum öðrum sviðum urðu aðalmál Fiskiþinga og stjórnar á eftirstríðsárunum og þá ekki síður landhelgismálin, sem Fiskifélagið hafði allatíðgert ýmsar samþykktir um, þótt ekki gengju fram fyrren síðar, en 1946 kom fram tillaga á Alþingi um uppsögn samningsins frá 1901 og síðan var það næst að land- grunnslögin voru sett 1948 og þar gert ráð fyrir útfærslu fiskveiði- lögsögunnar. Fiskifélagið lét þetta mikla mál eðlilega mikið til sín taka ekki sízt vegna þess að fiskimálastjóri varð atkvæða- maður í þeim málum. Á árinu 1945 var Bárður G. Tómasson, skipaverkfræðingur ráðinn ráðu- nautur félagsins í skipasmíðum. 1949 var Fiskifélaginu falið að annast tilsjón með nýstofnuðum Hlutatryggingarsjóði, síðar Afla- tryggingarsjóði, og var Þórarinn Árnason þá ráðinn til að safna skýrslum. Þórarinn varð síðar framkvæmdastjóri Aflatryggingar- sjóðs, eftir að Már Elísson varð fiskimálastjóri, en hann hafði ráðist til Fiskifélagsins 1954 til skrifstofustarfa og varð síðar fram- kvæmdastjóri Hlutatryggingar- sjóðs, en kosinn varafiskimála- stjóri á 28. Fiskiþingi og tók við starfi fiskimálastjóra í ágúst 1967. Þá hefur Davíð verið orðinn svo þreyttur á peningaleysi Fiskifé- lagsins að hann brá sér þangað 92 -ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.