Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1986, Page 34

Ægir - 01.02.1986, Page 34
sem hann gat sjálfur ráðið hvað var í sjóði. Hann gerðist seðla- bankastjóri. 1966 hafði Tæknideild verið stofnuð og að henni ráðinn Hörður Frímannsson rafmagns- verkfræðinguren síðará því sama ári var Jón B. Hafstein skipaverk- fræðingur einnig ráðinn þar til starfa. 1971 réð Fiskifélagið til sín Ingi- mar Jóhannsson, fiskeldisfræð- ing, til að annast tilraunir með fiskeldi í söltu vatni og hóf hann sumarið 1972, tilraunir með lax- eldi í sjó í flotgirðingu við Hvammsey í Hvalfirði. Starfsemi Tæknideildar hafði legið niðri um hríð og var hún endurreist á árinu 1972 með því að ráðnir voru tveir verk- fræðingar í skipa- og vélaverk- fræði, Emil Ragnarsson og Auð- unn Auðunsson, síðar var einnig ráðinn að deildinni vélfræðingur, Helgi Laxdal. 1972 var lagt fram á Fiskiþingi frumvarp að nýjum lögum fyrir Fiskifélag íslands. Sem fyrr segir voru ýmis hagsmunasamtökorðin mest ráðandi í ýmsum málaflokk- um, sem Fiskifélagið hafði áður haft mikiðtil umfjöllunarog mikil áhrif á gang þeirra mála. Ýmsir menn úr hagsmunasam- tökum sátu á Fiskiþingum en þeir voru þá sumir í þeim fleiri en einu og sumir í þeim öllum og gátu því ekki talizt fulltrúar neinna einna þessara samtaka. Af þessu varð það að ráði að taka inn í félagið eftirtalin sambönd og samtök í sjávarútvegi: Landsam- band ísl. útvegsmanna, Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda, Sjó- mannasamband Islands, Far- manna- og fiskimannasamband íslands, Sölummiðstöð hraðfrysti- húsanna, Félag Sambands fisk- framleiðenda, Sölusamband ísl. Vigtun og pökkun. fiskframleiðenda, Félag síldar- saltenda á Norður- og Austur- landi, Félag síldarsaltenda á Suð- vesturlandi, Félag skreiðarfram- leiðenda, Félag ísl. niðursuðu- verksmiðja, Félag ísl. fiskimjöls- verksmiðja. Þarna bættustvið 12 nýir Fiskiþingsful Itrúar með öllum réttindum deiIdarfulItrúa sem voru 24 og hafa því síðan setið Fiskiþing 3'6 fulltrúar. Þá var og með þessum lögum gerð breyting á skipan Fiskifé- lagsins og er nú skrifstofu þess skipt í eftirfarandi deildir: Almenn deild, annast reikn- ingshald félagsins og félagsleg tengsl .þess við fjórðungsdeildir og annað það, sem lýtur að fé- lagsstarfinu og undir þessa deild heyrir útgáfa Sjómannaalmanaks- ins sem Guðmundur Ingimarsson frá Hnífsdal hefur annast til margra ára og tímaritið Ægir, sem Birgir Hermannsson ritstýrir nú. Hag- og tölvudeild. Þessari deild stjórnar skrifstofustjóri, Jónas Blöndal viðskiptafræðing- ur. Hann réðst til Fiskifélagsins 1967. Undir hagdeild heyrir Reikningaskrifstofa sjávarútvegs- ins og þar eru unnar framleiðslu- skýrslur, skipaskrár og áætlana- gerðir og „hagrænar spár". 1974 var keypt tölva til Fiskifélagsins og jókst þá skýrslugerðarstarf- semin bæði fyrir Fiskifélagið og ýmsar stofnanir og stjórnvöld. Segja má, að nú séu allar heildar- upplýsingar um sjávarútveg, fisk- vinnslu og markaði í höndum Fiskifélagsmanna. Um nokkurra ára skeið hefur verið get'in út árbók um sjávarútveginn með tölulegum upplýsingum um afkomu veiða og vinnslu og annað það, sem gerzt hefur árlega og tölum verður á komið í atvinnuveginum. í hag- og tölvudeild er Magnea Jónsdóttir vinnslustjóri og við þá deild starfar einnig Ingólfur Arn- arson, erindreki Fiskifélagsins á Suður- og Suðvesturlandi, og Ing- ólfur sá einnig um útvarpsþætti á vegum Fiskifélagsins um skeið. Hann hefur verið í stjórnfélagsins og fiskifulItrúi svo árum skiptir. Þá er og nýkominn til starfa hjá Fiskifélaginu kunnur Súgfirðing- ur, Óskar Kristjánsson. 94 - ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.