Ægir - 01.02.1986, Qupperneq 34
sem hann gat sjálfur ráðið hvað
var í sjóði. Hann gerðist seðla-
bankastjóri.
1966 hafði Tæknideild verið
stofnuð og að henni ráðinn
Hörður Frímannsson rafmagns-
verkfræðinguren síðará því sama
ári var Jón B. Hafstein skipaverk-
fræðingur einnig ráðinn þar til
starfa.
1971 réð Fiskifélagið til sín Ingi-
mar Jóhannsson, fiskeldisfræð-
ing, til að annast tilraunir með
fiskeldi í söltu vatni og hóf hann
sumarið 1972, tilraunir með lax-
eldi í sjó í flotgirðingu við
Hvammsey í Hvalfirði.
Starfsemi Tæknideildar hafði
legið niðri um hríð og var hún
endurreist á árinu 1972 með því
að ráðnir voru tveir verk-
fræðingar í skipa- og vélaverk-
fræði, Emil Ragnarsson og Auð-
unn Auðunsson, síðar var einnig
ráðinn að deildinni vélfræðingur,
Helgi Laxdal.
1972 var lagt fram á Fiskiþingi
frumvarp að nýjum lögum fyrir
Fiskifélag íslands. Sem fyrr segir
voru ýmis hagsmunasamtökorðin
mest ráðandi í ýmsum málaflokk-
um, sem Fiskifélagið hafði áður
haft mikiðtil umfjöllunarog mikil
áhrif á gang þeirra mála.
Ýmsir menn úr hagsmunasam-
tökum sátu á Fiskiþingum en þeir
voru þá sumir í þeim fleiri en
einu og sumir í þeim öllum og
gátu því ekki talizt fulltrúar
neinna einna þessara samtaka. Af
þessu varð það að ráði að taka inn
í félagið eftirtalin sambönd og
samtök í sjávarútvegi: Landsam-
band ísl. útvegsmanna, Félag
ísl. botnvörpuskipaeigenda, Sjó-
mannasamband Islands, Far-
manna- og fiskimannasamband
íslands, Sölummiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Félag Sambands fisk-
framleiðenda, Sölusamband ísl.
Vigtun og pökkun.
fiskframleiðenda, Félag síldar-
saltenda á Norður- og Austur-
landi, Félag síldarsaltenda á Suð-
vesturlandi, Félag skreiðarfram-
leiðenda, Félag ísl. niðursuðu-
verksmiðja, Félag ísl. fiskimjöls-
verksmiðja. Þarna bættustvið 12
nýir Fiskiþingsful Itrúar með
öllum réttindum deiIdarfulItrúa
sem voru 24 og hafa því síðan
setið Fiskiþing 3'6 fulltrúar.
Þá var og með þessum lögum
gerð breyting á skipan Fiskifé-
lagsins og er nú skrifstofu þess
skipt í eftirfarandi deildir:
Almenn deild, annast reikn-
ingshald félagsins og félagsleg
tengsl .þess við fjórðungsdeildir
og annað það, sem lýtur að fé-
lagsstarfinu og undir þessa deild
heyrir útgáfa Sjómannaalmanaks-
ins sem Guðmundur Ingimarsson
frá Hnífsdal hefur annast til
margra ára og tímaritið Ægir, sem
Birgir Hermannsson ritstýrir nú.
Hag- og tölvudeild. Þessari
deild stjórnar skrifstofustjóri,
Jónas Blöndal viðskiptafræðing-
ur. Hann réðst til Fiskifélagsins
1967. Undir hagdeild heyrir
Reikningaskrifstofa sjávarútvegs-
ins og þar eru unnar framleiðslu-
skýrslur, skipaskrár og áætlana-
gerðir og „hagrænar spár". 1974
var keypt tölva til Fiskifélagsins
og jókst þá skýrslugerðarstarf-
semin bæði fyrir Fiskifélagið og
ýmsar stofnanir og stjórnvöld.
Segja má, að nú séu allar heildar-
upplýsingar um sjávarútveg, fisk-
vinnslu og markaði í höndum
Fiskifélagsmanna. Um nokkurra
ára skeið hefur verið get'in út
árbók um sjávarútveginn með
tölulegum upplýsingum um
afkomu veiða og vinnslu og
annað það, sem gerzt hefur
árlega og tölum verður á komið í
atvinnuveginum.
í hag- og tölvudeild er Magnea
Jónsdóttir vinnslustjóri og við þá
deild starfar einnig Ingólfur Arn-
arson, erindreki Fiskifélagsins á
Suður- og Suðvesturlandi, og Ing-
ólfur sá einnig um útvarpsþætti á
vegum Fiskifélagsins um skeið.
Hann hefur verið í stjórnfélagsins
og fiskifulItrúi svo árum skiptir.
Þá er og nýkominn til starfa hjá
Fiskifélaginu kunnur Súgfirðing-
ur, Óskar Kristjánsson.
94 - ÆGIR