Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1986, Síða 42

Ægir - 01.02.1986, Síða 42
til hafna í Evrópu hafa ekki dregið úr ísfisksölum fiskiskipa þangað en magnaukningin hefur í ein- staka tilvikum haft áhrif til lækk- unar á verði. Óvíst er enn um þróunina í þessum málum. Óhætt er því að fullyrða að ýmsar hreyfingar séu í gangi sem knúið geti á um verulegar breyt- ingar á starfsaðstöðu frystihús- anna í framtíðinni, framleiðslu- búnaði þeirra og skipulagi vinnsl- unnar. Eftir sem áður má þó telja full- víst að hin hefðbundna vinnslu- rás verði enn um sinn kjarninn í uppbyggingu frystihúsanna en ýmiss konar sérvinnsla þróist í auknum mæli til hliðar við hana eins og verið hefurfram að þessu. Framleiðsla á fiskfarsi að japönsk- um hætti og vörum úr því (surimi og kamaboko) hafa e.t.v. nokkra sérstöðu ef farið verður út í hana hér á landi en á þó að geta þróast með annarri framleiðslu séu full- nægjandi aðstæður fyrir hendi. 4. Framtíðarþróun búnaðar í frystihúsum Ef því er slegið föstu að hin hefðbundna vinnslurás verði enn um sinn þungamiðjan í starfsemi frystihúsanna og sérvinnsla alls konar verði stunduð til hliðar við hana, mun í framtíðinni verða leitast við að bæta þá þætti vinnslurásarinnar sem skemmst eru á veg komnir tæknilega. Eins og áður hefur komið fram er sjálfvirkni í flökunarsal veru- lega mikil. Þó þarf mann til að raða í hausara, annan til að raða í flökunarvél og einn til tvo til að sjá um að roðfletting gangi eðli- lega fyrir sig. Með nýrri vélasam- stæðu, Baader 185, er aðeins þörf fyrir einn mann auk manns- ins sem raðar í hausarann. Þessi vél er það ný að lítið er um hana Vetrarvertíðin hefur oft verið gjöful. hér á landi enn sem komið er. Óvíst er þó hvort það svari kostn- aði að skipta á þessari vél og þeim sem fyrir eru, séu þær í góðu standi en nýja vélin er álitlegur kostur þegar endurnýjunar er þörf og ef bæta þarf við vegna afkasta- aukningar. Sá hluti vinnslurásarinnar sem mestur áhugi er á að endurbæta er vinnusalurinn, þ.e. snyrting, vigtun og pökkun. Til mikilserað vinna því meginþorri starfsfólks- ins er bundinn þar. Þennan hluta vinnslunnar gengur jafnframt verst að manna. Skapast þar iðu- lega framleiðslutregða (flösku- háls) þar sem framleiðslugeta annarra vinnsluþátta er oftast meiri, jafnvel þótt salurinn séfull- mannaður. Helsta vandamálið er greining á ormum og beinum og fjarlæg- ing þeirra. Töluverðar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna möguleika á sjálfvirkni í grein- irigu orma og beina en ennþá án árangurs. Finnist slík greiningar- aðferð er talið tiltölulega auðvelt að hanna búnað til að fjarlægja þau. Aðferðir til sjálfvirkrar pökk- unar eru þekktar en þær þarf að laga að kröfum viðskiptavina á hverjum tíma um frágang í umbúðir. 102 - ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.