Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1986, Page 43

Ægir - 01.02.1986, Page 43
Talið er vænlegt til árangurs að kanna möguleika til sjálfvirkni í frystingu, pökkun í kassa, flutn- ln8 í frostgeymslu og aftur úr f>enni við brottflutning afurða. Rannsóknir hafa verið gerðar á tekjum til gæðaeftirlits, þar með talinn sjálfvirkur ferskleikamælir. fTugsanlegt er að nothæf tæki til gæðaeftirlits eigi eftir að sjá dags- 'ns Ijós í framtíðinni. Allir eru þessir kostir áhuga- výrdir. Fæstir þeirra eru þó erm 1 sjórimáli sem praktísk lausn a framleiösluvandamálum frysti- iðnaöarins. Eðlilegtogsjálfsagter að veita stuðning til frekari rann- sókna á þeim í þeirri von að árangur skili sér í framtíðinni. T- Þróunarmöguleikar í augsýn Hér að framan var fjallað um nauðsyn þess að Ijúka frágangi á Wstihúsum samkvæmt uppruna- legri áætlun og einnig var tæpt á ta^kjabúnaði sem þegar er kom- inn í mörg frystihús en önnur ekki bótt sumt af þessum búnaði eigi heima í nær öllum frystihúsum eins og tölvuvætt vigtunar- og fram leiðsl uefti rl itskerf i. Það fyrra verður að telja grund- vallarfrágang á framleiðslustað fyrir matvæli ásamt lágmarks- skipulagi á framleiðslunni til að geta vænsta.m.k. meðalárangurs í afkomu. Þaö seinna tryggir eftirlit með bví að afkomuárangurinn náistef aðrir þættir eru að jafnaði í lagi auk bættrar pakkanýtingar á fiskinum vegna nákvæmari vigt- unar. Til umræðu hefur verið þörf fyrir ýmsan tækjabúnað til við- bótar við þann sem þegar er til staðar, t.d. fleiri lausfrystitæki, samvals- og þyngdarflokkunar- tæki, Baader 185 í stað núverandi flökunarbúnaðar, varmadælur til orkusparandi aðgerða og ýmis- legtfleira. Allt eru þetta aðgeröir sem unnt er aö framkvæma strax ef sýnt þykir að þær svari kostnaði, ef fjármagn er fyrir hendi og ef von er um að þær styrki markaðs- aðstöðu okkarerlendis. Rétterað tilgreina hér til viðbótar tæki til vinnslu á nýrri gerð flaka (formflök) og tæki til framleiðslu á „surimi" sem á sívaxandi vin- sældum að fagna. Ekki er ástæða til að fara út í frekari upptalmngar í stuttri greinargerð sem þessari. , Niöurstööur Umfram allt ætti að Ijúka við framkvæmdir í samræmi vi upprunalegar ráðagerðir; um lágmarksfrágang a frystihus- unum. , Hvetja þarftil víðtækari notk- unar á tölvuvæddum voga- og framleiðslueftirlitskerfum. Hvetja þarf til víðtækan notk- unar á þróuðum flutninga- og tilfærslukerfum sem letta vinnu og spara starfsfolk. i Auðvelda þarf öflun nyrra tækja til frystihúsa meðkuauP: leigusamningum. Er þa bæði átt við innlenda framleiðslu oginnflutta. Cera verðunnn- lendum framleiðendum kleift að takast á hendur fjárhags- legar skuldbindingar í þessu skyni og má aðstaða þeirra aldrei verða lakari enerlendra framleiðenda og umboðs- manna þeirra hér a landi. Þetta mundi auðvelda frysti- húsunum að taka nýja tækm fyrr í þjónustu sína en ella og þeim smæstu að nýta ser tækni sem þau annars reöu ekki viö. 5. Hvetja ætti til áframhaldanai rannsóknarstarfa við lausn á þeim tæknivandamálum sem frystiiðnaðurinn býr enn við. Þetta þarf að framkvæmda með samstarfi einstaklinga, fyrirtækja og samtaka, rann- sóknar- og þróunaraðila og annarra sem hagsmuna hafa að gæta, á sem breiðustum grundvelli til að tryggja æski- legustu aðkomu að hverju verkefni. í mörgum tilvikum má ekki ein- blína á skjótan árangur, sérstak- lega þegar leita þarf eftir tækni sem enn er óþekkt, en í öðrum eygir í árangur innan skemmri tíma. Jat'nframt því sem unnið hefur verið að lausn ýmissa vandamála í fiskvinnslu á undanförnum árum af rannsóknarstofnunum og einstaklingum upp á eigin spýtur, hafa sölusamtökin staðið að slíkri rannsóknarstarfsemi innanlands sem utan með samstarfi við stofn- anir og einstaklinga. Því er lögð áhersla á þetta hér að æskilegt verður að fjármögn- unaraðilar hafi gott samstarf við umbjóðendur fyrirtækja í frysti- iðnaði jafnt sem fyrirtækin sjálf í því starfi sem í vændum er. Einnig er rétt að leggja áherslu á að hlutur opinberra aðila í sam- starfi við atvinnureksturinn verði fyrst og fremst aðstoð og þjónusta því nauðsynlegt er að frumkvæði til framkvæmda komi í sem mestum mæli frá fyrirtækjunum sjálfum og umbjóðendum þeirra ef samstilltur árangur á að nást að verkefnum loknum. Að lokum er vert að leggja sér- staka áherslu á nauðsyn þess að styðja við bakið á innlendum þróunar- og framleiðslufyrir- tækjum sem hlotið hafa viður- kenningu á innlendum markaði og sum hver erlendum vegna búnaðar fyrir fiskvinnslu. Hafi þessi fyrirtæki álitleg þróunar- verkefni á prjónunum ættu fjár- mögnunaraðilar á þróunarsviði að líta til með þeim. ÆGIR- 103

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.